Fréttablaðið - 03.08.2001, Síða 7

Fréttablaðið - 03.08.2001, Síða 7
FÖSTUPAGUR 3. ágúst 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 7 Bátum hvolfir í Skaftá: Ovissan hræðileg Herdómstóll í Palestínu: Svikari dæmdur til dauða jerúsalem. flP. Palestínskur herdóm- stóll dæmdi í gær fimmtugan Palestínubúa til dauða fyrir að að- stoða ísraelsher í banvænni árás. Með dómnum eru palestínsk dómsvöld að reyna að stemma stigu við allri mögulegri samvinnu á milli þjóðanna tveggja sem gæti átt sér stað í dómsölum eða úti á götu. Mað- urinn viðurkenndi við réttarhöldin að hafa látið ísraelsmönnum í té upplýsingar um ferðir Salah Darwazeh, sem myrtur var þann 25. júlí þegar ísraelsk eldflaug spreng- di upp bíl hans. ■ SLYS Mun betur fór en á horfðist á miðvikudagskvöldið þegar tveir Zodiak-gúmmíbátar, með starfsfólk Flugleiðahótelsins að Kirkjubæjarklaustri og leið- sögumenn þeirra, steyttu á skeri í Skaftá rétt fyrir neðan bæinn Hunkubakka og 12 manns féllu útbyrðis. Alls voru 19 um borð í þremur bátum og til allrar ham- ingju var báturinn sem ekki hvolfdi síðastur í röðinni. „Menn vissu ekki hverjir hefðu farið í ána og hverjir ekki,“ sagði Kristján Gíslason, enn yfirmanna Flugleiðahótels- ins en ferðinni var ætlað að vera starfsfólki hótelsins til skemmt- unar þar sem það býr sig nú und- ir að vinna eina mestu ferða- helgi ársins, verslunarmanna- helgina. Fólkið sem var í bátun- um var á öllum aldri, frá 15 til 51 árs. „Við vorum með lista yfir hverjir fóru í ferðina og þegar við töldum að flestir væru komnir upp á árbakkann ákváð- um við að fara upp í félagsheim- ili og telja hausana. Þá kom í ljós að allir höfðu skilað sér,“ sagði Gísli. ■ SLUPPU VEL Eftir slysið sat fólkið saman í félagsheimilinu Kirkjuhvol á Kirkjubæjarklaustri. Ein kona var flutt til Reykjavíkur til frekari aðhlynningar og heilsast henni vel. Samtals fóru 12 manns í ána og var á tíma tvísýnt með líf tveggja þeirra. Á myndinni er Kristján Glslason. METHAFAR Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór og Guðmundur Sigurðsson fylltu Hallgríms- kirkju í gær. Bjargaði fötluðum vini sínum úr ánni Hádegistónleikar: Húsfyllir í Hallgríms- kirkju tónleikar Jóhann Friðgeir Valdi- marsson tenór og Guðmundur Sigurðsson organisti settu að- sóknarmet á hádegistónleikum í Hallgrímskirkju í gær. Um 600 manns fylltu kirkjuna og hlýddu á listamennina flytja nokkur af fal- legustu lögum liðinna alda. Að sögn aðstandenda tónleikaraðar- innar Sumarkvölds við orgelið áttu þeir von á góðri aðsókn en hún fór þó fram úr björtustu von- um. Áheyrendur kunnu vel að meta flutning þeirra félaga og klöpp- uðu þeim lof í lófa lengi eftir að síðasti tónninn dó út. Jóhanns Friðgeir syngur aftur í Sjallanum á Akureyri á laugardagskvöld. ■ ♦ Arafat hitti Jóhannes Pál páfa í gær og gaf honum þá þetta forláta jötubox frá Bet- lehem. ftalir og Vatikanið hafa lengi stutt við bakið á Palestínumönnum í deilu þeir- ra við Israela. Yasser Arafat heimsækir Italíu: Hitti Berlusconi og páfann róm. ap. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, heimsótti Ítalíu í gær. Lýsti hann því yfir að hann muni berjast fyrir því að vopnar- hléi verði komið á við ísraela. „Frá Róm vil ég að öllu ofbeldi linni, þar á meðal sprengingum, auk þess sem ég vil að alþjóðlegir eftirlitsmenn verði sendir á vett- vang á átakasvæðinu," sagði Ara- fat við lok heimsóknarinnar. Ara- fat hitti m.a. Silvip Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu og Jó- hannes Pál páfa II í heimsókn sinni, sem stóð yfir í sólarhring. ■ Ungur maður stekkur út í Skaftá til þess að bjarga fötluðum æskuvini sínum. Hann spáði lítið í það hversu köld áin var áður en hann lét vaða. Taldi víst að hann kæmist ekki af sjálfsdáðum á þurrt. SLYS Það er ekki á hverjum degi sem íslendipgar eignast hvunn- dags hetju. Á miðvikudagskvöldið —sl. þegar 12 manns lentu út í Skaftá - 6 gráðu heita jök- ulána - kom það í Ijós að í Sveini Hreiðari Jenssyni, 18 ára pilti frá Kirkjubæjar- klaustri, leyndist ein slík. Hann horfði á vinnufélaga sína steyta bátum sín- um á skeri og detta út í ána. Einn „Maður spáði ekkert í það sem var að gerast, heldur einungis hvað það væri sem ég þyrfti að gera til þess að ná honum - mér var drullusama um kuldann." æskufélagi Sveins og jafnaldri sem á við fötlun að stríða var meðal þeirra sem flutu framhjá honum þar sem hann stóð á ár- bakkanum í bol og stuttbuxum. Hann hugsaði sig ekki tvisvar um heldur stökk út í ána vini sínum til bjargar. „Eg var að horfa á hópinn frá brú sem liggur yfir ána og ætlaði að taka mynd af þeim þegar hann kæmi undir brúna. Síðan sé ég fólkið koma álengdar, eitt og eitt, og það var augljóst að bátnum hefði hvolft. Síðan sá ég síðasta bátinn og hann var á réttum kili og allir enn í honum,“ sagði Sveinn. í sömu mund sá hann vin sinn koma undir brúna og þar sem hann vissi af fötlun hans taldi hann víst að erfitt gæti reynst honum að komast á land af sjálfs- dáðum. „Ég hleyp þarna meðfram ánni og sá að þarna var einn leiðsögu- maður að reyna að húkka hann upp með einhverju bandi og það var auðséð að hann var ekkert að ná því. Ég stökk því út í,“ sagði Sveinn. Hann sagði að adrenalínið hefði verið í botni hjá honum því hefði hann ekki fundið fyrir kulda eða hræðslu þegar hann stökk út í kalda ána. „Maður spáði ekkert í það sem var að gerast, heldur einungis hvað það væri sem ég þyrfti að gera til þess að ná honum - mér var drullusama um kuldann." Sveinn er ekki mikill sundmað- ur en hann hefur þó leikið sér að því að synda í ánni þar sem hún er lygnari en þá alltaf klæddur þurr- búning. „Það má heldur ekki gleyma því að einn af leiðsögumönnunum kom konu þarna til bjargar sem hafði dottið út ánna og var síðar flutt til aðhlynningar til Reykja- víkur.“ omarrafrettabladid.is HÖFUÐ UNDIR VATNI Sjónarvottar segja að vinur Sveins hefði verið með höfuðið undir vatni þegar að Sveinn stökk út í ána til þess að koma honum til bjargar. Sveinn segir að hver sem er hefði gert þetta og gerir lítið úr hetjudáð sinni. Hótelstjóri Flugleiðahótels- ins er ákaflega stoltur af hetjunni sem venjulega starfar í eldhúsi hótelsins. Bátum hvolfir í Skaftá: Bidin langa slys „Frá því að bátunum hvolfdi og þar til að fólkinu hafði verið komið upp í félagsheimili leið einn og hálfur tími og beið fólkið í þann tíma í mikilli óvissu - enginn vissi í raun hvort einhverjum hefði ekki tekist að komast upp úr ánni eður ei,“ sagði Bessi Þorsteinsson, hót- elsstjóri og einn þeirra sem biðu eftir því að heyra um örlög starfs- manna sinna og félaga. „Björgunarsveitarmenn voru farnir að labba bæði upp og niður með ánni þegar þetta gerist og engin vissi hvort einhver væri enn ófundin. Þá hafði enn ekki farið fram manntal og því óvíst hvort um einhver líf væri að tefla eður ei,“ sagði Bessir og segir þegar hann er spurður hvort það hafi ekki verið mikill léttir fyrir fólkið þegar búið var að telja hausana, „þú getur rétt ímyndað þér.“ Bessi er sannfærður um það að lífi hans og annarra sé féllu í ána hafi verið bjargað sökum þess hve vel bæði leiðsögumennirnir, starfsfólk lögreglu og björgunar- sveitarmenn tóku á ringulreiðinni sem myndaðist. Hann bað Frétta- blaðið að koma til þeim kærum þökkum. ■ SAMHENT HÓTELSTARFSFÓLK Bessi segir að á meðan beðið var fregna af starfsfólkinu hafi tímin nánast staðið í stað. Þeir sem fóru I ferðina þurftu ekki að mæta til vinnu i dag á meðan þeir náðu sér eftir volkið og geðshræringuna, en flestir mættu þó, „enda mikill samhugur í fólki hér á hótelinu," sagði Bessi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.