Fréttablaðið - 03.08.2001, Síða 17

Fréttablaðið - 03.08.2001, Síða 17
FÖSTUDAGUR 3. águst 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 17 etóeci&lN niiiTiiiiTiiiTniimiiiinumiirTTnTmo^-o Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15 v'™1 IDRIVEN kl. 5.50, 8 og 10.15||v"l Ibrother kl. 5.45, 8 og 10.15|P,rel |SPOT W-4|m jPOKEMON 3(isLtaÍ) kl.3.45||vtt| LAUOAflÁS ** ffh i M Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og 12 ISCARY MOVIE 2 kl.4,6,8, 10ogl2l IÁNIMAL kl.4,6,8, 10ogl2| Sýnd kl. 6, 8 og 10 lEVOLUTION kl6,8<nilo| Tennisstjarnan Anna Kournikova neitar því að hún sé búin að gifta sig. Sögusagnir hafa gengið um að hún hafi gifst ís- hokkýleikaranum Sergei Federov fyrir stuttu en í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér á heimasíðu sinni neitar hún því. „Ég sleppi því yf- irleitt að tjá mig opinberlega um einkalíf mitt. En ég get staðfest það að ég er ekki búin að gifta mig. Ég get ekki gert neitt meira en ég vona að þetta svar bindi enda á sögusagnirnar." A ngelina Jolie er samkvæmt Xinýjustu fréttum í barneigna- hugleiðingum. líún ætlar að taka sér tveggja ára frí frá leik í Tomb Raider myndunum ef hún verður ólétt. Þetta kemur þvert á sögu- sagnir því hún hefur alltaf haldið því fram að hún vilji ekki verða ólétt, ætli frekar að ættleiða börn. Þegar hún var spurð hvort eigin- maður hennar Billy Bob Thornton hefði íhugað að ættleiða barn utan Ameríku sagði hún. „Við höfum talað mikið um þetta og ég er viss um að þið fréttið það. Það eiga all- ir eftir að frétta það.“ Sean Connery, sem eitt sinn var Herra Heimur og lék James Bond, mun birtast í auglýsingum fyrir Skoda. Að sögn The Daily Telegraph, mun Skoda borga Connery milljón pund fyrir að aug- lýsa nýju Octaviu týpuna. Auglýs- ingin gerist að sjálfsögðu í Skot- landi, þar sem hann keyrir um há- lendið og stöðvar fyrir utan Eilan Donan kastalan. Hingað til hefur Connery verið tengdur Aston Martin, sem James Bond keyrir. á sýningartjöldum, ósóttum viðgerðum tjöldum nokkrum nýjum tjöld og einum tjaldvagni í DAG KL 14.00 VIÐ EYJARSLÓÐ 7, REYKJAVÍK yatsen,/- Líkt og alþjóð veit var Mariah Carey lögð inná spítala og sögn talsmanna var það vegna of- þreytu. Kunningj- ar söngkonunnar sögðu hana hins- vegar hafa reynt að fremja sjálfs- morð en nú hefur Cindy Berger, talsmaður Carey, neitað þeim frétt- um. Að sögn Berger skar söngkonan sig á glerbrotum rétt áður en hún fékk taugaáfall. „Hún braut diska og glös og það er ekki ólíklegt að hún hafi stigið á þau,“ sagði Berger. Hið meinta taugaáfall kemur á versta tíma fyrir söng- konuna en í apríl s.l. yfirgaf hún Columbia útgáfufyrirtækið, þar sem hún hóf feril sinn, og skrif- aði undir milljarða samning við Virgin. Carey mun að öllum lík- indum ekki taka þátt í að kynna kvimyndina Glitter sem hún fer með aðalhlutverkið í. Dularfullar systur Myndin The Virgin Suicides er draumkennd mynd og afar sérstæð. Sagt er af Lisbon systrunum fimm, draumum þeirra og harmi. Systurnar eru hver á sínu árinu, 13 til 17 ára en saga þeirra er sögð af aðdá- anda þeirra, áratugum síðar. Áhorfendur kynnast systrun- um því aðeins frá sjónarhóli drengjanna sem dást að þeim, aðallega úr fjarlægð. Myndin lýsir á átakanlegan hátt hvern- ig foreldrar geta brotið niður börn sín þótt það sé alls ekki ætlunin heldur telji þeir sig þvert á móti veita þeim skyn- samlegt uppeldi og vita hvað þeim er fyrir bestu. Þetta er áhrifarík mynd og anda átt- unda áratugarins er komið vel tii skila. Leikurinn er jafn og einstaklega góður og systurnar THE VIRCIN SUICIDES: Handrlt byggt á sögu Jeffrey Eugenides: Sofia Coppola Leikstjórn: Sofia Coppola Aðalleikarar: James Woods, Kathleen Turner, Kirsten Dunst, Josh Hartnett, Hanna Hall, Chelsea Swain, AJ. Cook, Leslie Hayman Sýnd I Háskólabfói eru bæði þokkafullar og dular- fullar. Þetta er áhugaverð mynd sem fer gegn straumn- um. Stainunn Stafánsdóttlr MTV tuttugu ára: Margar kynslóðir tónlistarmanna sjónvarp Öll gömlu brýnin sem voru í stanslausri spilun á MTV á áttunda áratugnum fengu upp- reisn æru og skemmtu sér með nýstirnunum á tuttugu ára af- mæli sjónvarpsstöðvarinnar á miðvikudaginn. Hátíðin var stjörnum prýdd og voru fjölmörg skemmtiatriði. Billy Idol var einn af hápunktum kvöldsins, flutti Rebel Yell. Hip hop áranna var minnst af Naughty by Nature, Salt n’ Pepa, Run DMC, Method Man og Didda Combs. Einnig komu Jane’s Addiction, Aer- osmith, Mary J. Blige, Janet Jackson og Depeche Mode fram. í tilefni af afmælinu gafst tækifæri til að líta yfir farinn veg og minnast þeirra tónlistarmanna sem undu sér á öldum stöðvarinn- ar en sukku jafnhratt og þeim skaut upp á yfirborðið. Á níunda áratugnum var aðaláherslan á myndbönd, þá voru engir Jac- kass, Celebrity Deathmatch eða Real World þættir, þá voru líka margar af unglingastjörnum dagsins í dag enn í móðurkviði. Mariah Carey átti að vera aðal- númer kvöldsins en hún liggur enn rúmföst. ■ UPPRUNALEGU KYNNARNIR Þessi andlit birtust á skjánum á MTV öll kvöld fyrir 20 árum, J.J. Jackson, Nina Blackwood, IVIark Goodman, Martha Quinn og Alan Hunter. Þau mættu á hátíðina, þar sem fáir könnuðust við þau.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.