Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.08.2001, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 03.08.2001, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 5. ágúst 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 19 Nýtt bókasafn í Alexandríu: Reist á fornri frægð alexandrIa. ap Nýtt og glæsilegt bókasafn hefur verið reist í borginni Alexandríu í Egypta- landi, einungis fáeinum metrum frá þeim stað þar sem talið er að hið fornfræga bókasafn þar í borg hafi staðið þangað til það brann fyrir um tvö þúsund árum. Safninu er ætlað að end- urvekja að einhverju leyti anda hins forna bókasafn ásamt því að vera alþjóðleg rannsóknar- miðstöð með aðdráttarafl fyrir fræðimenn hvaðanæva úr heim- inum. Mörgum þykir mannréttinda- ástandið í Egyptalandi reyndar ekki vera góður jarðvegur fyrir stofnun af þessu tagi, og marg- víslegar tafir hafa orðið á bygg- ingu þess auk þess sem fáar tryggingar þykja vera fyrir því að bókakostur safnsins standi undir væntingum. Hið forna bókasafn í Alex- andríu var eitt merkasta bóka- safn sögunnar, en það brann að stórum hluta árið 48 fyrir Krist þegar Júlíus Cæsar réðst inn í borgina. í safninu voru um það bil fimm hundruð þúsund bók- rollur með öllum helstu verkum fornaldar í vísindum og heim- speki og hefur bruninn án efa átt sinn þátt í því að mörg þeirra verka eru glötuð. ■ STÓR BÓK f STÓRU SAFNI Fyrstu bækurnar eru þegar komnar í safn- ið, sem verður þó ekki opnað almenningi fyrr en á degi bókarinnar, þann 23. apríl árið 2002. ÚTIVIST Risastór heitur pottur Sundlaugin á Reykjanesi við ísafjarðardjúp er einhver sérstæðasta sundlaug landsins. Eiginlega er hún fremur eins og risastór heitur pottur en sund- laug. Hún er ein af fáum laugum á landinu sem er byggð 50 metr- ar á lengd en búið er að taka 4 metra af lauginni með trétröpp- um niður í hana sem einnig þjóna þeim tilgangi að verja sundlaugargesti gegn heitum vatnsstrauminum. Hitastig laugarinnar er það hátt að hún telst varla henta sérlega vel til að iðka sundíþrótt. Hins vegar er dásamlegt að vera í lauginni, SUNDLAUGIN f REYKJANESl SturtugjaÍd 150 opið milli 8 og 11 einkum snemma á morgnana og seint á kvöldin þegar lygnast er. í lauginni eru bekkir til að sitja á sem auka enn á heitapottsstemn- inguna. Ágæt sólbaðsaðstaða er við sundlaugina og gufubað. Sturtu- og búningsaðstöðu mætti áð ósekju hressa upp á. Rétt er að taka fram að sundlaugagestir eru í lauginni á eigin ábyrgð. Steinunn Stefánsdóttir Ungur Norðmaður, Stian Rönning, sýnir nú í Gallerí Geysi við Ingólfstorg. Sýningin hefur yfirskriftina Sérð Þú það sem Eg sé. Hann sýnir Ijósmyndir sem eru teknar á Thailandi, Laos, Noregi og ísland á árunum 1999 til 2001. Sýningin stendur til loka ágúst Þóra Sigurþórsdóttir leirlistarkona sýnir i Gullsmiðju Hansínu Jens að Laugavegi 20b. i Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni stendur nú sýning á verkum Gerðar Helgadóttur, Glerlist og höggmyndir. f tilefni sýningarinnar er kynning á minja- gripum sem hópur hönnuða hefur unnið út frá verkum Gerðar. Minjagripirnir eru silfurmunir, postulín, slæður, bolir og minnisbækur og verða þeir til sölu í safninu. Sýningin stendur til 12. ágúst og er opin alla daga nema mánudaga frá 11-17. fslenskar þjóðsögur og ævintýri er þema sumarsýningar Safns Ásgríms Jónssonar við Bergsstaðastræti 74 í Reykjavík. Á sýningunni eru margar af frægustu þjóðsagnamyndum lista- mannsins og þar má sjá vinnustofu, heimili og innbú hans. Sýningin stendur til 1. september. í Listasafni Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum er sýning sem ber nafnið Flogið yfir Heklu. Sýningarstjóri er Einar Garibaldi Eiríksson myndlistar- maður og prófessor við Listaháskóla íslands. A sýningunni getur að líta mis- munandi myndir Heklu sem sýndar eru hlið við hlið. Sýningin stendur til 2. sep- tember. í miðrými Kjarvalsstaða er sýning sem ber yfirskriftina 1461 dagur. Þar sýnir Grétar Reynisson vaxtarverkefni af þeirri tegund sem á ensku væri kallað „work in progress." Sýningin stendur til 19. ágúst Yfirlitssýning Errósafnsins stendur í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Fjórir listamenn sýna í Nýlistasafninu. Þeir eru Daníel Þorkeli Magnússon í Gryfju, Ómar Smári Kristinsson á palli, Karen Kirstein í forsal ogPhilip von Knorring í SÚM-sal. Sýningin List frá liðinni öld stendur yfir í Listasafni ASÍ. Á sýningunni eru önd- vegisverk úr eigu safnsins. Sýningin stendur til 12. ágúst. Sumarsýning Listasafns Islands nefnist Andspænis náttúrunni. Á henni eru verk eftir íslendinga í eigu safnsins og fjallar hún um náttúruna sem við- fangsefni íslenskra listamanna á 20. öld. Opið er frá kl. 11 til 17 alla daga nema mánudaga og er aðgangur er ókeypis á miðvikudögum. Sýningin stendur til 2. september. Ferðafélagið: Þórsmörk og Esja gönguferðir Ferðafélag fslands býður að vanda upp á fjölbreyttar gönguferðir um verslunarmanna- helgina. Hraðganga verður um Laugveginn frá Landmannalaug- um í Þórsmörk og er uppselt í þá gönguferð. Þá verður einnig boðið upp á göngudagskrá í Þórsmörk. Farið verður frá Reykjavík kl. 19 í kvöld og dvalið í skála Ferðafé- lagsins í Langadal í 3 nætur. Nauð- synlegt er að panta í þessa ferð. Þá verður boðið upp á dagsgöngu í Esju á mánudag og verður lagt af stað frá BSÍ klukkan 10:30. ■ FULLTRÚAR TVEGGJA KYNSLÓÐA Hörður Áskelsson organisti og Helgi Hrafn Jónsson básúnuleikari halda tónleika I Hallgrímskirkju um helgina. Þeir ætla að leika tónlist og leika sér í tónlist að sögn Harðar. Tenórbásúna og orgel í Hallgrímskirkju um helgina: Frumflutningur og spuni tónleikar Þeir sem ætla að sitja heima um verslunarmannahelg- ina eiga þess kost að njóta tón- leika í Hallgrímskirkju bæði í há- deginu á morgun og á sunnudags- kvöld en þessir tónleikar eru undir merkjum tónleikaraðarinn- ar Sumarkvöld við orgelið. Flytj- endurnir eru Hörður Áskelsson sem er tónlistarunnendum af góðu kunnur og Helgi Hrafn Jónsson, 21 árs gamall básúnu- leikari. Helgi hóf básúnunám sitt 8 ára gamall og lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1999. Síðan hefur hann stundað framhaldsnám við Tón- listarháskólann í Graz í Austur- ríki. Á efnisskránni er bæði gömul og ný tónlist. Þeir félagar flytja aðallega perlur frá barrokktíman- um en einnig frumflytja þeir verk eftir tónskáldið unga, Huga Guð- mundsson, á sunnudagskvöld. „Verkið er samið fyrir okkur,“ segir Helgi Hrafn. „Við Hugi erum mjög góðir vinir og vorum báðir að syngja með Röddum Evr- ópu í fyrrasumar. Undir lok ferða- lagsins vorum við staddir í Santi- ago á Spáni, í munkaklaustri þar sem við bjuggum og eitt kvöldið þegar við sátum á svefnbekkjun- um okkar var ég að segja Huga frá þeim draumi mínum að spila hér í Hallgrímskirkju með Herði. Þetta samtal endaði með því að ég pantaði verkið." Á tónleikunum á laugardag munu Hörður og Helgi Hrafn spinna saman á hljóðfæri sín út frá sálmalagi eftir Hörð. „Spuninn er okkar leið til að leika okkur enn þá meira en við megum í hinum verkunum," segir Hörður. „Það er aldagömul hefð organista í Miðevrópu aö spinna og líklega eina klassíska tónlistargreinin þar sem spuni hefur alltaf verið iðkaður. En það er fyrst á okkar dögum sem farið er að gefa þessu gaum.“ Á sunnudaginn ræðst Helgi Hrafn svo í það stórvirki að flytja sellósvítu nr. 2 eftir Bach á básúnu og telst það til nokkurra tíðinda. „Það er erfitt að líkja eft- ir sellóinu þannig að maður nálg- ast þetta öðruvísi. Samt er mesta hjálpin að hlusta á sellista til að læra verkið og fá ólíkar hliðar á því. Þetta er geysilega erfitt fyrir básúnu. Ég hef verið að vinna í þessu verki síðustu ár og stíft síð- asta hálfa árið,“ segir Helgi Hrafn. Tónleikarnir á morgun hefjast kl. 12.00 en á sunnudagskvöldið hefjast tónleikarnir kl. 20.00. steinunn@frettabladid.is Purcell og Bach í Skál- holti um helgina: Fjöldi tónleika skálholt Nú um verslunarmanna- helgina er fjórða tónleikahelgi Sumartónleika í Skálholtskirkju en þar verða leiknar tríósónötur eftir Henry Purcell og verk fyrir tvo sembala eftir Johann Sebasti- an Bach. Sónöturnar verða fluttar í tvennu lagi og eru það fiðluleikar- arnir Jaap Schröder og Svava Bernharðsdóttir, Sigurður Hall- dórsson cellóleikari og orgelleik- arinn Kee de Wijs sem flytja þær og semballeikararnir Elín Guð- mundsdóttir og Helga Ingólfs- dóttir flytja sembalverkin. Auk þess flytur organistinn Steingrím- ur Þórðarson verk eftir Bach á sunnudaginn í flutningi Stein- gríms Þórðarsonar. DÓMKIRKJAN í SKÁLHOLTI Tónar munu fylla Skálholtskirkju alla helgina. Þriðjudagstónleikar í Listasafni Sigurjóns: Nútímaverk en afar ólík tónleikar Á þriðjudaginn halda Berglind María Tómasdóttir flautuleikari og Arne Jprgen Fæ0 píanóleikari tónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Á efnisskránni eru frönsk og íslensk verk. „Þetta er nú- tímatónlist í mjög mismunandi mynd,“ segir Berglind. „Þetta eru allt verk sem höfða mjög mikið til mín og mér fannst þau líka ganga mjög vel saman.“ Fvrsta verkið sem flutt verður LEIKA SAMAN Á ÞRIÐJUDAG Berglind Maria Tómasdóttir flautuleikari og Arne Jorgen Fæo hafa bæði stundað nám i Konunglega Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. Berglind lauk námi þar í vor og Arne lýkur sínu námi f haust. á tónleikunum er Le merle noir fyrir flautu og píanó eftir Olivier Messiaen en í því er líkt eftir fuglahljóði. Næst er verkið Þrjár músíkmínútur fyrir flautu eftir Atla Heimi Sveinsson. „Verkið heitir Tuttugu og ein músíkmín- úta og er jafnmörg lítil sóló- stykki fyrir flautu. Mínúturnar sem ég flyt eru Fuglatónar, Tónatónar og Kvennatónar." Col- umbine fyrir flautu og píanó er konsert eftir Þorkel Sigurbjörns- son sem fluttur verður næst. „Þetta er mjög léttur og skemmtilegur konsert," segir Berglind. Þá verður frumflutt verk fyrir tölvu og flautu, Tón- smíð fyrir vinstra heilahvel - (heilafruma deyr) eftir Kolbein Einarsson. Loks er á efnisskránni hefðbundið franskt flautustykki, Sónatína fyrir flautu og píanó eftir Henri Dutilleux . Berglind fer að kenna við Tón- listarskóla Kópavogs í haust og einnig í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. „Svo bara spila ég við sem flest og fjölbreyttust tækifæri," segir hinn nýútskrif- aði flautuleikari. steínunn@frettabladid.is Dagskráin í Skálholti verður eftirfarandi: Laugardagur 4. ágúst 14:00 Jaap Schröder fiðluleikari flytur erindi um Henry Purcell og upphaf fiðluleiks á Englandi á 17. öld. Erindið er flutt í Skálholts- skóla. 15:00 Henry Purcell, Sonnataís of III Parts. Fyrri hluti: Sónötur I- VI. 17:00 Johann Sebastian Bach, tón- verk fyrir tvo sembala. 21:00 Henry Purcell, Sonnataís of III Parts. Seinni hluti: Sónötur VII-XII. Sunnudaginn 5. ágúst 15:00 Henry Purcell, Sonnataís of III Parts. Fyrri hluti: Sónötur I- VI. 16.40 Orgelverk eftir J. S. Bach í flutningi Steingríms Þórðarsonar 17:00 Messa þar sem verða fluttir þætti úr tónverkum helgarinnar. Sr. Egill Hallgrímsson predikar. Mánudaginn 6. ágúst 15.00 Johann Sebastian Bach, tón- verk fyrir tvo sembala. Tónleikarnir standa yfir í u.þ.b. klukkustund og er boðið upp á barnapössun í Skálholtsskóla fyr- ir þá sem þurfa. Veitingasala á milli tónleika er á vegum Skál- holtsskóla. Aðgangur er ókeypis á Sumartónlieka í Skálholti og eru allir velkomnir. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.