Fréttablaðið - 10.08.2001, Síða 2
KJÖRKASSINN
FRÉTTABLAÐIÐ
10. ágúst 2001 FÖSTUPAGUW
KLÓNUN
Kjósendur á visi.is
eru flestir andvígir
hugmyndum um
einraektun
manna.
Á að leyfa að klóna menn?
Niðurstöður gærdagsins
i vwvw.vlsir.is
Spurning dagsins í dag:
Heldur þú að þú munir lifa það að sjá
ísraeismenn og Palestínumenn semja
og halda frið?
Farðu inn á vlsi.is og segðu
þina skoðun
ELLERT EIRÍKSSON
Byggðastofnun á hlut I eignarhaldsfélagi
sem styrkir önnur fyrirtæki á svæðinu. Ný
skipan mála veldur óvissu sem þarf að
eyða, segir bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Nýtt byggðakort:
Ovissa um
atvinnustyrki
byggðastofnun Eftir breytingar
Eftirlitsstofnunar EFTA á
byggðakorti fyrir ísland, sem til-
kynntar voru í gær, verður
Byggðastofnun ekki lengur heim-
ilt að veita byggðastyrki til fjög-
urra sveitarfélaga á Suðurnesj-
um. Ellert Eiríksson, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, hefur haft sam-
band við Kristján Pálsson, þing-
mann kjördæmisins, til að kanna
áhrif þessa á sveitarfélögin á Suð-
urnesjum. Hann óttast helst að
óbein tengsl Byggðastofnunar við
atvinnuþróun á svæðinu verði
óheimil með nýrri ákvörðun Eftir-
litsstofnunarinnar.
„Það má taka sem dæmi að við
rekum hér eignarhaldsfélag um
styrkingu á atvinnustarfsemi á
svæðinu sem Byggðastofnun hef-
ur keypt hlutafé í undanfarin ár,“
segir Ellert og tekur fram að eyða
þurfi óvissu um hvort stofnunin
megi tengjast félaginu á einhvern
hátt. „Verði þetta bannað þá eru
forsendur sem við erum tiltölu-
lega nýbúnir að ganga frá í sam-
ráði við fyrrum forstjóra Byggða-
stofnunar varðandi hlut þeirra í
Eignarhaldsfélagi Suðurnesja
brostnar,“ segir Ellert. ■
Tíu blóðugir mánuðir í átökum ísraelsmanna og Palestínumanna:
Sjöhundruð hafa látið lífið
SÝNA ANDÚÐINA í VERKI
Israelskur drengur sést þarna sparka í palestínska konu á markaðnum í Hebron á Vestur-
bakkanum í gær, meðan unglingsstúlka togar I höfuðklút konunnar.
jerúsalem. ap Alls hafa 709 manns
týnt lífinu í átökum Palestínu-
manna og ísraelsmanna undan-
farna tíu mánuði, þar af 561
Palestínumaður og 148 ísraels-
menn.
Meðal Palestínumannanna sem
féllu eru taldir 16 sjálfs-
morðsárásarmenn, nokkrir
Palestínumenn sem myrtir hafa
verði af Palestínumönnum vegna
gruns um að þeir hafi verið upp-
ljóstrarar fyrir ísrael, 13 arabar
með ísraelskan ríkisborgararétt
sem látist hafa í óeirðum af völd-
um Palestínumanna ásamt einum
þýskum íbúa á Vesturbakkanum.
Meðal hinna 148 ísraelsmanna
eru taldir fjórir ísraelskir her-
menn, sem ekki eru Gyðingar,
tveir rúmenskir verkamenn sem
fórust í sprengjuárás á landa-
mærunum ásamt einum grískum
munki sem lést í skotárás. ■
Bush og Annan:
Fordæma
hryðjuverkið
crawforp. texas. ap George W.
Bush Bandaríkjaforseti fordæmdi
í gær sprengjuárásina í Jerúsal-
em og krafðist þess að Jasser Ara-
fat leiðtogi Palestínumanna láti
handtaka þá sem bera ábyrgð á
henni og færa þá fyrir dómstóla.
Hann hvatti jafnframt bæði
ísraelsmenn og Palestínumen til
þess að koma á vopnahléi og
„kjósa þá leið sem liggur til betri
framtíðar fyrir báðar þjóðirnar.“
Kofi Annan, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, for-
dæmdi sömuleiðis sprengjuárás-
ina og hvatti alla deiluaðila til
þess að halda aftur af sér.B
Kröfugerð byggð á mæl-
ingum á hafsbotninum
Stjórnvöld hefja undirbúning að mælingum á landgrunni Islands utan 200 sjómílna. Byggja kröf-
ur um yfirráð á þremur svæðum á þessum mælingum. Mun taka tíma að ná samkomulagi,
segir Halldór Asgrímsson.
Landgrunnur utan 200 sjómílna mun hafa aukna þýðingu í framtíðinni og mikilvægt að tryggja yfirráð yfir honum til að eignarhald á
væntanlegum auðlindum sé skýrt.
þjóðréttarmál íslensk stjórnvöld
eru að hefja undirbúning að
greinagerðar til landgrunns-
nefndar Sameinuðu þjóðanna um
mörk landgrunns íslands utan 200
sjómílna.
„Athygli manna er í auknum
mæli að beinast að hafsbotninum
og hugsanlegum verðmætum sem
þar kunna að vera, allt frá málm-
um til erfðaefnis lífvera. Það er
margt sem bendir til að réttindi
yfir landgrunninum komi til með
að hafa aukna þýðingu í framtíð-
inni og því mikilvægt að öðlast yf-
irráð yfir þessum svæðum þannig
að það sé vitað hverjir ráði þar
ríkjum,“ sagði Halldór Ásgríms-
son, utanríkisráðherra, en ráðu-
neyti hans mun bera ábyrgð á
greinagerðinni. Frestur er til 13.
maí 2009 til að skila greinagerð-
inni en stefnt er að því að skila
henni mun fyrr.
„Umfangsmesti og kostnaðar-
samasti þátturinn í þessari vinnu
eru mælingarnar. Svæðið sem
þarf að mæla er hvorki meira né
minna en þrettánfalt landsvæði
íslands," sagði Valgerður Sverris-
dóttur, iðnaðarráðherra, en mæl-
ingarnar verða í höndum Orku-
stofnunar. Valgerður segir að
kröfugerð íslands verði byggð á
landslagi hafsbotnsins og því séu
þessar mælingar mikilvægar til
að tryggja fullnægjandi upplýs-
ingar um mörk íslenska land-
grunnsins.
Um er að ræða þrjú svæði sem
ísland gerir kröfu til. Þessi svæði
eru Reykjaneshryggur, Hatton
Rockall svæðið og Síldarsmugan í
austri. Fleiri en eitt land gerir til-
kall til landgrunnsins á þessum
svæðum nema á Reykjanes-
hryggnum, en þar er ísland eitt
landa sem gerir kröfu.
Halldór Ásgrímsson sagði að
landgrunnsnefndin mætti ekki að-
hafast neitt sem hefur áhrif á af-
mörkun landgrunns á svæðum
sem tvö eða fleiri ríki gera tilkall
til. „Það verðum við að leysa í
samningum við viðkomandi ríki.
Landgrunnsnefndin hefur hins
vegar það hlutverk að afmarka
ytri mörk þessara svæða en þau
ytri mörk verða líklega mörkuð á
grundvelli þeirra kröfugerðar
sem þjóðirnar setja fram.“
„Það mun áreiðanlega taka
tíma að ná samkomulagi um skipt-
ingu landgrunnsins sem ríkin
gera kröfu um eða að ná sam-
komulagi um sameiginlega nýt-
ingu,“ sagði Halldór Ásgrímsson.
bjorgvin@frettabladid.is
Opið í Austurveri
frá 8:00 á morgnana
fit 2:00 effir miðnæf'
Margeir Pétursson skorar á Ólaf G. að sanna fullyrðingar um Frumaflsmálið:
Ahugi er eitt, kaupverð annað
lyfjaverslunin „Það er eitt að finn-
ast verkefni áhugavert, en annað að
semja um verð. Áður en samið er
um verð þá er samningur ekki kom-
inn á,“ segir Margeir Pétursson,
stjórnarformaður Lyfjaverslunar-
innar, um ásakanir Ólafs G. Einars-
sonar, bankaráðsformanni Seðla-
bankans, gegn honum í Morgun-
blaði gærdagsins. í grein sinni seg-
ir Ólafur að Margeir hafi gengið á
bak orða sinna með því að beita sér
gegn kaupum á Frumafli.
Margeir vísar þessu á bug og
segir það skyldu stjórnarmanna að
gæta hagsmuna hluthafa við samn-
ingagerð. Því hafi honum verið
skylt að beita sér gegn kaupum á
verði sem hann taldi óeðlilega hátt.
„Það sem Ólafur
segir nú svipar til
nýlegs málflutnings
Jóhanns Óla Guð-
mundssonar, sem ég
hef þegar svarað í
öllum aðalatriðum,"
segir Margeir.
Hann bendir á að
tilkynning frá stjórn
félagsins varðandi yfirstandandi
samningaviðræður um kaup á
Frumafli frá 1. júní sl., sem er að-
gengileg á vef Verðbréfaþingsins,
sé algerlega á skjön við fullyrðing-
ar Ólafs. „Ég er hræddur um að
Ólafur hafi ekki fylgst með gangi
málsins," segir Margeir og skorar
á hann að sanna full-
yrðingar um að bak-
tjaldamakk og óeðli-
leg vinnubrögð hafi
ráðið ferðinni þegar
hætt var við kaupin
á Frumafli.
Hæstiréttur taldi
að ólöglega hafi ver-
ið staðið að ákvörð-
un stjórnarinnar um kaupin á
Frumafli. Rétturinn setti því lög-
bann á viðskiptin. „Aðalatriði er að
stjórnin tók það að sér að útvega
einum hluthafa í fyrirtækinu ólög-
mætan ávinning,“ segir Margeir.
matti@frettabladid.is
ÓLAFUR G.
Sakar Margeir
um svik.