Fréttablaðið - 15.08.2001, Side 1
FOLK
Mœttu
saman á
frumsýningu
bls 17
KNATTSPYRNA
Kreppa
framundan í
enska boltanum
bls 14
%
FRETTABLAÐIÐ
- . „ J
79. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 15. ágúst 2001
IMDÐVIIKUMGUIR
Miðar á
Jet Black Joe
TÓNLEIKAR EínS Og
margir vita er
hljómsveitin Jet
Black Joe komin
saman eftir langt
hlé. Hún heldur
tónleika á Gauk á
Stöng á morgun.
Miðasalan hefst á Gauknum í dag
kl. 13. Aðeins S00 miðar eru í boði
þannig að það borgar sig að mæta
tímanlega.
Njálssaga á ensku
fyrirlestur Prófessor Andrew
Wawn, frá háskólanum í Leeds og
formaður breska Víkingafélagsins,
flytur fyrirlestur á ensku, en hann
nefnist Njalssaga and the Victori-
ans. Fyrirlesturinn verður í Nor-
ræna húsinu.
| VEÐRIÐ f DAC|
REYKJAVÍK Norðvestlæg átt,
3-8 m/s. Skýjað með köflum
og stöku síðdegisskúrir.
Hiti 10 til 15 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Isafjörður Q 8-13 Skýjað Ol2
Akureyri Q 8-13 Bjart Ql2
Egilsstaðir o 5-8 Þokusúld 011
Vestmannaeyjar Q 3-8 Skýjað O14
Hafnarganga
í Mosfellsbæ
KVdLPAGANGA Hafnargönguhópurinn
gengur í Mosfellsbæ í kvöld. Farið
verður með rútu frá Hafnarhúsinu
klukkan 20:00. Fylgt verður göngu-
stígum í fylgd staðfróðra heima-
manna.
Íslcind-Pólland á
Laugardalsvelli
knattspyrna íslenska landsliðið
mætir Pólverjum á Laugardalsvelli
kl. 18 í dag. Andri Sigþórsson, leik-
maður Salzburg, verður í byrjunar-
liðinu, þar sem Eiður Smári
Gudjohnsen er meiddur. íslending-
ar hafa þrisvar mætt Pólverjum og
tapað ölium leikjunum. Samanlögð
markatala er S-0 Pólverjum í vil.
IKVÖLDIÐ í KVÖLD|
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvað lesa
foreldrar
skólabarna?!
Meðallestur
á virkum
dögum.
70.000 íijntök
7 0 °/o í g l V ■. \m bísði
E
72,5% IBUA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS A ALDRINUM
!5 TIL 67 ÁRA LESA FRÉTTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI SAMKVÆMT,
KÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS FRÁ JÚLl 2001
Steinbíturinn verður
aftur settur í kvóta
Mikill þrýstingur frá þeim trillukörlum sem mestra hagsmuna hafa að gæta. Ríkisstjórnin leitar
að leið til að koma til móts við sjónarmið þeirra. Undirskriftarlistum skilað til ráðherra.
steinbítur Steinbítur verður ekki
tekin út úr kvóta eins og hefur
staðið til. Heimildir Fréttablaðs-
ins herma að verið sé að leita leiða
með hvaða hætti hægt verður að
breyta frá því sem ætlað var. Nýtt
fiskveiðiár hefst fyrsta september
og að óbreyttu verður allur stein-
bítur undaskilin kvóta frá þeim
degi. Sú ákvörðun hefur mælst
misvel fyrir og nú er svo komið að
fjöldi smábátaeigenda hefur ósk-
að þess að ráðherra hætti við frel-
si í steinbítsveiðum og setji hann í
kvóta.
Smábátaeigendur hafa til þessa
getað fiskað bæði steinbít og ýsu
utan kvóta. Ekki var meiri-
hlutavilji á Alþingi til að
halda því fyrirkomulagi
áfram. Ríkisstjórnin bauð,
skömmu fyrir þinglok, að
smábátar fengju 1.700
tonna kvóta í ýsu og 1.500
tonn í steinbít. Um það náð-
ist ekki samkomulag. Það
var fyrst og fremst Kristinn
H. Gunnarsson, þingflokks-
formaður Framsóknar-
flokksins og varaformaður
sjávarútvegsnefndar Al-
þingis, sem lagðist gegn því
samkomulagi. Mikið ósæKi varð
víða vegna málsins. í framhaldi af
ÁRNI M.
MAHIESEN
Hann er að leita
að leið til að
sætta sjón-
armið.
því ákvað Árni M.
Mathiesen að allur steinbít-
ur yrði utan kvóta. Sú
ákvörðun reyndist ekki
sætta sjónarmiðin og þess
vegna bendir allt til að
breytingar verði gerðar.
Heimildir blaðsins herma að
ekki verði boðið sama magn
í kvóta og gert var á Alþingi
í vor.
Deildar meiningar eru
meðal smábátasjómanna
vegna þessa máls. Þeir sem
hafa fiskað meira en helm-
ing aflans á Vestfjörðum hafa
skorað á ráðherra að setja kvóta á
steinbít og safnað er á fleiri undir-
skriftarlista. Einn viðmælenda
blaðsins segir að sér virðist sem
klofningur sé meðal smábátasjó-
manna vegna málsins. Örn Páls-
son, framkvæmdastjóri Lands-
sambands smábátaeigenda, segir
að hann viti ekki til að nokkur
maður vilji fullt frelsi allra til
steinbítsveiða. Hann segir einnig
að seint verði sátt um að afli smá-
báta í þessum tegundum fari í
kvóta.
Hagsmunir smábátaeigenda
eru ólíkir. Rétt um 100 karlar fiska
um helmings alls afla smábáta og
aðrir 500 fiska hinn helminginn. ■
SVAMLAÐ I SJÓNUM Sjömenningarnir létu sig ekki muna um að synda 1,1 kílómetra - sem nemur 22 ferðum í 50 metra sundlaug.
Verðbréfaþingið:
Féllst ekki á skýr-
ingar Islandssíma
íslanpssími „Stjórn Verðbréfaþings
telur að fyrir birtingu útboðs- og
skráningarlýsingar eða fyrsta
söludag í útboði Íslandssíma hf.
hefði átt að endurskoða rekstrará-
ætlanir samstæðunnar og birta þá
niðurstöðu." Svo segir í yfirlýsingu
stjórnar VÞÍ.
Með þessu fellir stjórn þingsins
þann dóm að fjárfestar hafi keypt
hluti Íslandssíma á grundvelli
ófullnægjandi upplýsinga. Verð-
bréfaþingið mun ekki aðhafast
frekar í málinu
Fram hefur komið í Fréttablað-
inu að margir kaupendur hlutfjár
hafi haldið að sér höndum og ekki
staðið skil á greiðsluseðlum vegna
óvissunnar um forsendur útboðs-
ins. Eftir ákvörðun þingsins gæti
íslandsbanka reynst erfitt að inn-
heimta það sem enn vantar upp á.
íslandsbanki skrifaði undir útboðs-
lýsinguna og veitti Íslandssíma
sölutryggingu fyrir hlutunum sem
í boði voru, að markaðsvirði upp á
einn milljarð króna. f reglugerð
um Verðbréfaþing fslands segir að
umsjónaraðili útboðs sé bótaskyld-
ur gagnvart hluthöfum hafi hann
skrifað undir útboðslýsingu en
ekki aflað nauðsynlegra gagna. ■
| PETTA HELST |
Valdabaráttan í Lyfjaverslun-
inni er greinilega ekki í
rénun. Hún hefur náð inn í
stjórn Delta. bls. 2
Skýrsla Ríkisendurskoðunar
um mál Árna Johnsen er til-
búin og verður kynnt í dag.
bls. 4
Eg vil prófkjör, segir Inga
Jóna Þórðardóttir oddviti
sjálfstæðismanna. bls. 4
Ibúi að Vatnsstíg 11 óttast
vegna endurtekinna bruna í
húsinu. bls. 8
Sundkappar:
Syntuúr
Viðey í land
sunp Sjö meðlimir Sri Chinrhoy-
maraþonliðsins syntu í gærkvöldi
úr Viðey og inn í Sundahöfn í til-
efni þess að 70 ár eru liðin frá því
Sri Chinmoy fæddist. Vegalengd-
in sem sjömenningarnir syntu er
um 1.100 metrar og var sá fljót-
asti þeirra aðeins 25 mínútur að
synda vegalengdina og hinir sex
sundmennirnir fylgdu fast í kjöl-
farið og skiluðu sér í land á næstu
tíu mínútum.
Hiti sjávar meðan á sundinu
stóð var um 12 gráður og veður
ágætt þannig að vart er hægt að
fara fram á betri aðstæður til
sundsins. Sjömenningarnir eru á
aldrinum 23 ára til fertugs og
þreyttu sundið í fylgd Björgunar-
sveitarinnar Ársæls. ■
Bók fyrir bók
Skiptibókamarkaður
Pennans-Eymundsson
er opinn á eftirfarandi
tímum:
í Austurstræti:
Mán.-fös: 9-22,
lau: 10-22, sun: 13-22.
í Kringlunni:
Mán.-mið: 10-18:30,
fim: 10-21, fös: 10-19,
lau: 10-18, sun: 13-17.
Mál starfsmanns
Landssímans sem las
tölvupóst viðskiptavinar verður
rannsakað frekar. bls. 2