Fréttablaðið - 15.08.2001, Blaðsíða 19
MIDVIKUDAGUR 15. ágúst 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
Gula húsið:
Skyggnst í sögu
húss
mynplist Um þessar mundir er
Gula húsinu tjaldað í Gula húsinu
en Gula húsinu tjaldað er einmitt
yfirskrift sýningar Maríu Péturs-
dóttur í Gula húsinu að Lindar-
götu 49. Sýningin er innsetning
með hljóði en verkið byggir á við-
tölum við þrjár kynslóðir fólks
sem þekkja sögu hússins eða hafa
dvalið þar í einhverri mynd.
María Pétursdóttir útskrifaðist
úr fjöltæknideild MHÍ 1998 og er
þetta þriðja einkasýning hennar.
Auk þess hefur hún tekið
þátt í samsýningum bæði
hér heima og erlendis.
Sýningin var opnuð á
laugardaginn og stendur
til 24. ágúst og er opin
mánudaga, miðviku-
daga, föstudaga og
sunnudaga frá kl. 14.00
til 18.00. Auk þess verð-
ur sýningin opin á Menn-
ingarnótt laugardaginn
18. ágúst. ■
GULA HÚSINU TJALDAÐ
Hér er húsinu tjaldað í bókstaflegri merkingu.
UTIVERA
Lagst í lyngið
Stundum leitar maður langt
yfir skammt, langar að upp-
lifa náttúruna og æðir af stað í
rnargra klukkustunda bíltúr í
leit að lyngi og mosató til að
leggjast í. Um verslunarmanna-
helgina datt mér í hug að fara
hina leiðina og fara ekki lengra
en í Heiðmörk. Þá rifjaðist upp
fyrir mér hversu yndislega
náttúruperlu er þar að finna,
rétt við höfuðborgina. í Heið-
mörk er vitaskuld hægt að fara
í marga skemmtilega göngut-
úra og það er líka ekki óvitlaust
að hjóla þangað. Þar er líka
mjög auðvelt að finna fallegar
HEIÐMÖRK______
Fallegur staður í túnfæti höfuðborgar-
innar.
lautir þar sem haegt er að koma
sér fyrir á góðviðrisdegi, taka
með sér nesti og njóta. Ég valdi
það síðastnefnda um daginn og
var ekki svikin. Það var enginn
á ferli, sem gæti reyndar verið
vegna verslunarmannahelgar-
innar. Kjarrið ilmaði og sólin
skein og ég verð að segja að
það er mjög góð tilbreyting að
fara eitthvað út í náttúruna án
þess að þurfa að sitja lengur í
bíl en tuttugu mínútur.
Sigríður Björg Tómasdóttir
mótuð form úr postulíni og grófum
steinleir. Opið virka daga frá 10 til 18 og
laugardaga 11 til 16. Sýningin til 29.
ágúst.
í Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6 standa
Ljósálfar fyrir Ijósmyndasýningunni Ljós
og skuggar. Myndirnar á sýningunni
voru allar teknar í sumar í Skuggahverf-
inu í Reykjavík. Ljósálfar eru Einar Óli
Einarsson, Friðrik Þorsteinsson, Lars
Björk, Svavar G. Jónsson og Vilmundur
Kristjánsson. Sýningunni lýkur 26. ágúst.
í Gula húsinu stendur myndlistarsýning
Maríu Pétursdóttur, Gula húsinu tjald-
að. Sýningin er innsetning með hljóði
en verkið byggir á viðtölum við þrjár
kynslóðir fólks sem þekkja sögu hússins
eða hafa dvalið þar. Sýningin er opin
mánudaga, miðvikudaga, föstudaga og
sunnudaga frá kl. 14.00 til 18.00 og
stendur til 24. ágúst.
Max Cole sýnir nú í iSgallerí. Myndir
hennar byggjast á láréttum línum sem
myndaðar eru með smágerðum lóðrétt-
um hreyfingum. Samspil láréttra forma
og einsleitra litaflata mynda taktfastan
samhljóm. Sýningin er opin alla daga
nema sunnudaga og mánudaga frá kl.
13 til 17 og lýkur henni 15. september.
Thomas Ruppel sýnir í neðra rými
i8gallerí. Sýningin er opin alla daga
nema sunnudaga og mánudaga frá kl.
13 til 17 og lýkur henni 15. september.
Á Sjóminjasafni fslands í Hafnarfirði
stendur nú sýning grænlenska lista-
mannsins Johannesar Kreutzmann.
Hann sýnir málaðar tréskurðarmyndir.
Sýningin er opin milli kl. 13 og 17 og
lýkur sýningunni 2. september.
Birtan í rökkrinu nefnist sýning Huldu
Vilhjálmsdóttur í Gallerí Horninu i
Hafnarstræti. Sýningin stendur til 9.
september.
Ungur Norðmaður, Stian Rönning, sýnir
nú í Gallerí Geysi við Ingólfstorg. Sýning-
in hefur yfirskriftina Sérð Þú það sem
Ég sé. Hann sýnir Ijósmyndir sem eru
teknar á Thailandi, Laos, Noregi og
ísland á árunum 1999 til 2001. Sýningin
stendur til loka ágúst.
Þóra Sigurþórsdóttir leirlistarkona sýnir
í Gullsmiðju Hansínu Jens að Lauga-
vegi 20b.
íslenskar þjóðsögur og ævintýri er
þema sumarsýningar Safns Ásgríms
Jónssonar við Bergsstaðastræti 74 í
Reykjavík. Á sýningunni eru margar af
frægustu þjóðsagnamyndum lista-
mannsins og þar má sjá vinnustofu,
heimili og innbú hans. Sýningin stendur
til 1. september. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 13.30 til 16.00.
í Listasafni Reykjavíkur - Kjarvalsstöð-
um er sýning sem ber nafnið Flogið yfir
Hekiu. Sýningarstjóri er Einar Garibaldi
Eiriksson myndlistarmaður og prófessor
við Listaháskóla islands. Á sýningunni
getur að líta mismunandi myndir Heklu
sem sýndar eru hlið við hlið. Sýningin er
opin alla daga kl. 10 til 17 en til kl. 19 á
miðvikudögum. Hún stendur til 2. sept-
ember.
I miðrými Kjarvalsstaða er sýning
sem ber yfirskriftina 1461 dagur. Þar
sýnir Grétar Reynisson vaxtarverkefni
af þeirri tegund sem á ensku væri kallað
„work in progress." Sýningin er opin alla
daga kl. 10 til 17 en til kl. 19 á miðviku-
dögum. Hún stendur til 19. ágúst.
Yfirlitssýning Errósafnsins stendur í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Sýn-
ingin er opin alla daga kl. 10 til 17 en til
kl. 19 á miðvikudögum. Hún stendur til
7. október.
Sumarsýning Listasafns Sigurjóns
Ólafssonar ber yfirskriftina Hefð og ný-
sköpun. Þar má sjá úrval verka eftir Sig-
urjón frá þrjátíu ára tímabili, 1930-1960.
Safnið er opið alla daga milli klukkan 14
og 17, nema mánudaga.
Upphaf iðnvæðingar:
Landsins forbetran
sacnfræði Hið íslenska hlutafélag
var stofnað fyrir 250 árum til að
sameina krafta landsmanna um
Landsins forbetran. í tilefni af
þessum tímamótum er komin út
bók eftir Hrefnu Róbertsdóttur,
sagnfræðing sem ber heitið:
Landsins forbetran - Innrétting-
ar og verkþekking í ullarverk-
smiðjum átjándu aldai'. Þann 19.
júlí 1751 komu íslenskir embætt-
ismenn saman við Öxará á Þing-
völlum til að stofna með sér fé-
lag um viðreisn atvinnuvega á
íslandi. Forlagið fékk stórfelld-
an stuðning konungs í Kaup-
mannahöfn og hafa fram-
kvæmdir þess lengst af gengið
undir nafninu Innréttingarnar.
í bókinni er gefið yfirlit yfir
margþætta atvinnustarfsemi
Innréttinganna, auk þess sem
vefsmiðjur Innréttinganna á
Leirá, Bessastöðum og við Aðal-
stræti fá rækilega umfjöllun.
Við stofnun vefsmiðjanna var
mikil áhersla lögð á að þær
þjónuðu sem miðstöðvar fyrir
verkþekkingu í handverki.
Þannig áttu vinnubrögð að ná að
breiðast út um landið fyrir til-
stilli þeirra og verða uppspretta
efnahagslegrar sóknar íslend-
inga.
Með tilkomu margvíslegrar
starfsemi Innréttinganna til
Reykjavíkur um miðja átjándu
öld, breyttist Reykjavík úr
kirkjujörð í verksmiðjuþorp.
Þangað fluttist fjöldi manna úr
sveitum og vísir að annars konar
byggð myndaðist en áður hafði
þekkst á landinu. Á næstu ára-
tugum varð Reykjavík aðsetur
stjórnsýslu og verslunar og Að-
alstrætið, hin gamla sjávargata
Reykjavíkurbænda, varð fyrsta
gata þéttbýlisins.
Sagnfræðistofnun Háskóla ís-
lands gefur bókina út í samvinnu
við Háskólaútgáfuna. ■
LANDSINS FORBETRAN
IÐNVÆÐING HEFST
1 bókinni Landsins forbetran er greint frá
upphafi iðnvæðingar og þéttbýlis í Reykja-
vík.
BLÓMSTRANDI DAGAR
Um helgina verður umfangsmikil skemmtidagskrá fyrir fólk á öllum aldri í Hveragerði.
Blómstrandi dagar:
Allt milli himins
ogjarðar
hveragerði A föstudag kl. 18 hefj-
ast Blómstrandi dagar í Hvera-
gerði og standa þeir þangað til
síðdegis sunnudags. Þetta er sjö-
unda árið sem Hvergerðingar
halda helgarskemmtun fyrir
heimamenn og gesti undir þessu
heiti. Dagskráin verður fjöl-
breytt og má þar nefna göngu-
ferðir, útitónleika, barnaleik-
tæki, blús- og jazztónleikar,
þyrluflug, bifreiðakynningar,
brekkusöng, flugeldasýningu,
klettaklifur, hjólreiðakeppni, til-
boð á blómum og margt fleira.
Þátttakendur í Blómstrandi
dögum eru fjölmargir einstak-
lingar og fyrirtæki og eru bæði
fjölbreytt dagskráratriði í boði
og viðburðir sem standa alla há-
tíðina svo sem blómamarkaðir í
gróðrastöðvum. ■
Sýning í anddyri Norræna hússins:
Tré með sál
sýninc Forn tré í Eistlandi er yfir-
skriftin á sýningu á Ijósmyndum
sem eistneski ljósmyndarinn
Hendrik Relve hefur tekið. Á sýn-
ingunni sem stendur í anddyri
Norræna hússins eru 18 ljós-
myndir en sýningin er sett upp í
tengslum við Menningarhátíð
Eystrasaltsríkjanna á Norður-
löndum sem stendur yfir frá 1.
september til 1. nóvember 2001.
Hópur umhverfissinna í Eist-
landi sem kalla sig Order of the For-
est, komu á laggirnar verkefninu
Forn tré á árunum 1996 til 1999.
Hundruð manna tóku að sér að
finna og afla upplýsinga um gömul
tré víðs vegar um allt Eistland. Ald-
ur trjánna var greindur og fornar
sagnir dregnar fram. Upplýsingarn-
ar voru settar inn á gagnabanka
með lýsingum á yfir eitt þúsund
trjám. Hendrik Relve valdi úr þess-
um fjölda sérkennilegustu trén og
tók myndir af þeim.
TENGSL VIÐ GÖMUL TRÉ
I Eistlandi er mikil virðing borin fyrir trjám
og þeim er jafnvel gefið nöfn. Hin fornu
tré I Eistlandi eru margra alda gömul og er
mikil helgi á þeim og ýmsar þjóðsagnir
hafa spunnist um þau.
Hendrik Relve fæddist í Tall-
inn 18. júlí 1948. Hann lauk prófi í
skógrækt og blaðamennsku og
hefur starfað hjá umhverfisráðu-
neyti Eistlands um árabil.
Sýningin verður opin daglega
kl. 9 til 17, nema á sunnudögum
frá kl. 12 til 17. Aðgangur er
ókeypis og stendur sýningin til 23.
september. ■
Sýning í Hafnarborg:
Unnið með
bókina sem þema
ÓHREINN ÞVOTTUR
Á sýningunni Óhreinn þvottur sem nú stendur í Lundúnum eru sýndar þvottaefnisumbúð-
ir frá ýmsum löndum.
sýninc Nú um helgina var opnuð
sýning Margrétar Reykdal á mál-
verkum í Sverrissal Hafnarborg-
ar, Menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar. Sýningin ber titil-
inn EX LIBRIS og er meginhluti
verkanna unninn í olíulit á striga.
Þema sýningarinnar er bók, en
verkin tengjast því á ýmsan hátt.
Letur og skreytingar úr gömlum
bókum og handritum er fléttað
saman í myndmáli nútímans. Ytri
hönnun eldri bóka er einnig að
finna sem hluta af myndefninu.
Annars vegar er um að ræða
áhuga á sögu og bókum, hins veg-
ar um stöðu málverksins (og bók-
arinnar) í heimi nýrrar tækni, því
er á stundum skírskotað til mynd-
máls tölvunnar.
Þetta er þrettánda einkasýning
Margrétar, en hún býr og starfar í
Osló. Hún hefur þó alltaf lagt
EX LIBRIS
Margrét Reykdal sýnir aðallega málverk í
Sverrissal Hafnarborgar.
áherslu á að sýna verk sín hér
heima, en verk hennar eru að
finna í eigu opinberra stofnanna á
íslandi og í Noregi. ■