Fréttablaðið - 15.08.2001, Qupperneq 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
15. ágúst 2001 IVIIDVIKUPACUR
SVONA ERUM VIÐ
OLÍUNOTKUN ÍSLENDINCA
Olíunotkun (slendinga hefur aukist um
96.000 tonn síðustu sjö árin. Innlend olíu-
notkun hefur verið sveiflukennd en milli-
landanotkun hefur aukist úr 155.000 tonn-
um 1994 í 278.000 tonn á síðasta ári.
Samkvæmt eldsneytisspá Orkustofnunar er
gert ráð fyrir að olíunotkun íslendinga
haldi áfram að aukast, fari yfir 900.000
tonn árið 2006 og yfir milljón tonn
á ári 2015.
Hún segist vilja heiðarlega og drengilega
keppni.
Inga Jóna Þórðardóttir:
Eg vil
prófkjör
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR „Ég tel eðlilegt
að viðhaft sé prófkjör og menn
reyni með sér í heiðarlegri og
drengilegri keppni. Það eru þær
leikreglur sem flokkur setur okk-
ur og við eigum að ganga í gegn-
um það,“ sagði Inga Jóna Þórðar-
dóttir, oddviti sjálfstæðismanna í
borgarstjórn.
„Ég svara engum það,“ sagði
Inga Jóna þegar hún var spurð um
þau sjónarmið að kostnaðarsamt
prófkjör komi til með að þrengja
að fjáröflun flokksins í sjálfum
kosningaslagnum. í fréttaskýr-
ingu hér í blaðinu voru raddir sem
óttuðust að svo kynni að fara. Inga
Jón segir að einhverjir hafi metið
það svo, eftir lestur fréttaskýr-
ingarinnar, að hún vildi ekki próf-
kjör - en það segir hún vera fjarri
sanni. ■
—♦—
Enn tapar OZ:
Minnk-
andi tap
afkoma OZ tapaði 3,8 milljónum
bandarískra dollara á öðrum árs-
fjórðungi samkvæmt reiknings-
skilareglum bandaríska verð-
bréfaeftirlitsins. Séu hins vegar
miðað við bókfærðar heildartekj-
ur án áhrifa dótturfélaga, af-
skrifta og fjármagnskostnaðar
var tapið 0,6 milljónir dollara en
var 2,5 milljónir á sama tíma í
fyrra.
Bókfærðar heildartekjur á öðr-
um ársfjórðungi voru 3,9 milljón-
ir dollara en þar af er tekjufærslu
1,5 milljónar dollara frestað sam-
kvæmt reikningsskilareglum
bandaríska verðbréfaeftirlitsins.
Því eru 2,4 milljónir dollara færð-
ar til tekna í rekstrarreikningi en
á sama tímabili í fyrra var 1,6
milljón talin til tekna á rekstrar-
reikningi.
Heildartap fyrstu sex mánuði
ársins nam 8,7 milljónum dollara
samkvæmt reikningsskilareglum
bandaríska verðbréfaeftirlitsins.
Þrátt fyrir það var eiginfjárstaða
fyrirtækisins jákvæð um 10,6
milljónir dollara. ■
Síldveiði:
Haldið norður
fyrir Noreg
sjávarútvecur Nokkur íslensk skip
eru að norður af Noregi eða á leið
þangað til veiða á síld úr norsk ís-
lenska síldarstofninum áður en
hann heldur inn í norska lögsögu.
Tvö skip Samherja, Vilhelm
Þorsteinsson EA og Þorsteinn EA,
komu á veiðislóðir í fyrrinótt og
voru að svipast um eftir torfum
þegar Fréttablaðið ræddi við
Kristján Vilhelmsson, fram-
kvæmdastjóra útgerðarsviðs
Samherja í gær. Mörg íslensk skip
sækja á þessar slóðir ár hvert og
segir Kristján að þrátt fyrir að
kostnaður við að senda skip svo
langt til veiða sé mikill gangi það
oftast eftir að þeim takist að veiða
meira hráefni en sem nemi kostn-
aði við útihaldið þó ekki sé það al-
gilt.
Kristján segir að ekki standi til
að senda fleiri skip Samherja
norðureftir til veiða en vitað er að
BEITIR NK
Hélt út höfn á Neskaupsstað í gær og setti stefnuna norður í höf.
fleiri útgerðir hyggjast senda kaupsstað en Beitir sem er í eigu
skip á veiðar í norðurhöfum. Með- Síldarvinnslunnar hélt úr höfn á
al þeirra er Síldarvinnslan á Nes- mánudag. ■
Island síðasti viðkomu-
staður í smygli á fólki
Margar tilraunir gerðar til að smygla fólki til Bandaríkjanna gegnum Island. Rúmlega fimmtíu
hefur verið vísað frá landinu frá áramótum með fölsuð skilríki. Hert eftirlit.
legir að fela spor sín. Að sögn
Stefáns er oft hægt að sjá ákveð-
in munstur. Það komi gjarnan
nokurra mánaða tímabil þar sem
óvenju mikið beri á fölsuðum
skilríkjum. Þau virðast öll fram-
leidd af sama aðila og er fólkið
gjarnan á sömu leið. Um þessar
mundir virðist Boston vera
vinæll áfangastaður, en margir
vilja komast þaðan til Toronto.
Tólf farþegum hefur verið
synjað um landgöngu á íslandi
það sem af er þessu ári. For-
sendur landgöngusynjunar eru
helst vöntun á atvinnuleyfi, ónóg
fjárráð og að dvalarleyfi vantar.
Einnig ef Schengen upplýsinga-
kerfið á Leifsstöð gefur til
kynna að þar séu á ferð fólk eða
hlutir sem skráðir eru í gagna-
banka þeirra. Á síðasta ári fengu
44 farþegar landgöngusynjun.
Helsta ástæðan fyrir þessum
mun er hinn óhefti ferðamáti
innan Schengen svæðisins.
arndis@frettabladid.is
IEIFS5TÖÐ „Smygl á fólki er stór
iðnaður úti heimi, og er að verða
álíka stór og fíkniefnasmygl, hér
eru greinilega atvinnumenn að
verki,“ segir Stefán K. Baldurs-
son aðalvarðstjóri lögreglunnar
á Keflavíkurflugvelli. Fimmtíu
og þrír einstaklingar hafa verið
teknir með fölsuð skilríki í
Leifsstöð það sem af er þessu
ári. í þeim tilfellum er nær ein-
göngu um að ræða smygl á fólki.
Flest skilríki sem tekin hafa ver-
ið í Leifsstöð eru af frönskum
uppruna. Þeir sem eru með föl-
suð skilríki hafa lagt leið sína
um París, að sögn Stefáns.
Ómögulegt sé hinsvegar að
segja hvaðan þeir koma upp- Schengen sáttmálans geta menn ríkja sem eiga hlut að sáttmálan-
runalega, því eftir tilkomu ferðast óhindrað innan þeirra um. Vegabréfsskoðun fer ekki
fram fyrr en menn yfirgefa
Schengen svæðið og því eru
þessir einstaklingar stöðvaðir
hér á landi á leið sinni vestur um
haf.
Fyrir tilkomu Schengen sátt-
málans hafi starfsfólk Flugleiða
kannað vegabréf þeirra sem
fóru um borð í vélar á leið til
Bandaríkjanna. í fyrra fengu 43
einstaklingar frávísanir vegna
falsaðra skilríkja. Stefán segir
að falsanir séu misvel gerðar,
allt frá „bílskúrsfölsunum" uppí
mjög fagmannlega unnar falsan-
ir. Hinsvegar eru ferðir fólksins
í höndum atvinnumanna. Lög-
reglan sér gjarnan dæmi um það
að fólk hafi verið vandlega þjálf-
að til þess að komast í gegnum
vegabréfsskoðun með fölsuð
skilríki. Erfitt sé að hafa hendur
í hári þessara smyglara. Þeir
sem teknir eru viti lítil deili á
þeim og augljóst að þeir eru dug-
Frávísanir og landgöngusynjanir
] Frávisanir vegna falsaðra skilrikja
Landgöngusynjanir
Alls
80
60
50
40
Arið 2001 til 31JÚ1L
Ailt árið 2QOO
Ríkisendurskoðun.
Skýrslan um
Arna tilbúin
stjórnsÝsla Ríkisenduskoðun birt-
ir í dag niðurstöður skoðunar
sinnar á umsvifum Árna
Johnsens, fyrrverandi alþingis-
manns og formanns byggingar-
nefndar Þjóðleikhússins.
Rannsókn ríkisendurskoðunar
hófst í júlí eftir að uppskátt varð
um misnotkun Árna Johnsen á
fjármunum almennings í starfi
hans sem formaður byggingar-
nefndar Þjóðleikhússins. Um tug-
ur starfsmanna ríkisendurskoð-
unar hefur unnið að því síðustu
vikurnar að „kortleggja" Árna og
umsvif hans fyrir opinbera aðila
eins og Sigurður Þórðarsson ríkis-
endurskoðanda sagði í samtali við
Fréttablaðið 18. júlí sl. þegar at-
hugun embættis hans á þing-
manninum þáverandi var að hefj-
ast. „Eins og kom greinilega fram
hjá forsætisráðherra vill hann
láta skoða allt þar sem Árni hefur
komið við sögu,“ sagði Sigurður
þá en í gær náðist ekki í hann.
Jón H. Snorrason hjá Ríkislög-
reglustjóra sagðist í gær ekkert
geta sagt um rannsókn efnahags-
brotadeildar embættisins sem
hófst 27. júlí sl. ■
ARNI johnsen
Rlkisendurskoðun skilar niðurstöðu um opinber umsvif Árna Johnsen í dag en ríkislög-
reglustjóri verst frétta um sína rannsókn á Árna.