Fréttablaðið - 15.08.2001, Qupperneq 7
MIPVIKUPAGUR 15. ágúst 2001
FRETTABLAÐIÐ
7
Mótmæla vexti ríkisútgjalda:
Forkastanleg
hækkun
RÍKiSFJÁRMÁL Samband ungra
sjálfstæðismanna lýsir yfir von-
brigðum sínum með að útgjöld
hins opinbera hækkuðu á fyrri
helming þessa árs um 19,5 millj-
arða í samanburði við sama tíma-
bil í fyrra. Ungir sjálfstæðis-
menn sætta sig ekki lengur við
þessa þróun í stjórn ríkisfjár-
mála og segja að íslensk stjórn-
völd eigi að ganga á undan með
góðu fordæmi eftir að hafa lagt
hart að fyrirtækjum og einstak-
lingum að sýna ráðdeild og
sparnað til að slá á þenslu í þjóð-
félaginu.
„I ljósi þess telja ungir sjálf-
stæðismenn útgjaldahækkun
hins opinbera, ár eftir ár, forkast-
anlega og skora á Geir H. Haarde
fjármálaráðherra og ríkisstjórn
íslands að tryggja ábyrga fjár-
málastjórn og draga mjög veru-
lega úr útgjöldum svo lækka
megi skatta á íslandi," segir svo í
ályktuninni. ■
SKORAÐ Á GEIR HAARDE
Fjármálaráðherra á að tryggja ábyrga fjármálastjórn og draga verulega úr útgjöldum
Fangelsisflótti á Filipps-
eyjum:
Notuðu gítar-
strengi og járnsög
ILAGAN. FILIPPSEYJUM. AP. Að
minnsta kosti 20 dæmdir morð-
ingjar, nauðgarar og ræningjar
brutust í gær út úr fangelsi á
norðurhluta Filippseyja eftir að
hafa sagað járnrimla í sundur
með gítarstrengjum og járnsög.
Á meðan fangarnir bjuggu til
kaðal úr laki og klifruðu út í
frelsið horfðu fangaverðirnir á
sjónvarpið grunlausir með öllu.
Að sögn talsmanns lögreglunnar
er umfangsmikil leit hafin að
föngunum, en spjót hennar bein-
ast nú einnig að því hvers vegna
fangaverðirnir heyrðu engan há-
vaða. ■
Olís í Mosfellsbæ:
Rangt verð á
bensíndælum
ökutæki Á bensíndælu Olís við
Langatanga í Mosfellsbæ segir á
dælu að lítrinn af 95 oktana bens-
íni kosti 95 krónur þegar um er að
ræða sjálfsafgreiðslu. Þegar öku-
maður borgar síðan fyrir bensínið
segir kassakvittun hins vegar að
lítrinn kosti 96 krónur. Mismunur
á milli þess sem stendur á dælu og
það sem borgað er á kassa er því 1
króna.
Jóhannes Davíðsson, yfirmað-
ur bensínstöðva Olís, kennir
þarna gömlum dælum um. Ekki er
hægt að hafa aukastaf á skjá dæl-
unnar og því sé þessi leið farin.
Dælan er hins vegar ekki tengd
við afgreiðslukassann og þegar
kostnaður er reiknaður á við-
skiptavininn er í raun gert ráð
fyrir 95 krónur á lítrann, en mis-
munur á milli dælu og kassa komi
út sem misræmi á dældu magni
og keyptu.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdarstjóri FÍB, segir verð-
merkingum ábótavant við bensín-
stöðvar. Þó hafa ekki margar
kvartanir borist FÍB varðandi
misræmi á milli verðmerkinga á
dælum og verð við kassa. ■
MISRÆMI A VERÐI
MILLI PÆLU OG KASSA
Á myndinni sést að verð á dælu við
bensínstöð Olis segir að lítrinn kosti
95 krónur. Á kassakvittun sést hins
vegar að verðið á lítranum er 96 krón-
ur. Olís segist ekki vera að snuða við-
skiptavíni heldur sé dælan gömul og
misræmið leiðréttist í dældu magni.
ö I is L anaatanaa
Kt. 500269-3249 VSK: 11765
Síibí; 566-7201
DAGS: 12-08-2001
KASSI; 0204
STARFSM: Kristján
VÖRULYSING
By
KL: 23:12
fNR: 20413785
VER6
Electron
NÚMER: 4567160327061387
GiIdist íroi: 02 / 03
2.602,00 A
90,00 A
2,692,00
2,692,00
IVSK A 24,50)1 2.692,00 = 529,75
Þdkkuíi viöskiptm
Átök halda áfram í
Makedóníu:
NATO vill
afvopna upp-
reisnarmenn
SKOPJE. makedónÍu, AP. Fimmtán
sérfræðingar á vegum NATO
flugu í gær til
Skopje, höfuðborg-
ar Makedóníu, en
þeir eiga að meta
það hvort hægt sé
að hefja afvopnun
albanskra upp-
reisnarmanna.
Ekki verður þó
ráðist til slíkra að-
gerða fyrr en
vopnahléið hefur
verið virt af öllum
aðilum. Átök héldu
áfram í landinu í
gær þrátt fyrir
vopnahléið þegar albanskir upp-
reisnarmenn kveiktu í fjórum
makedónskum húsum í þorpinu
Lesok nærri Tetovo auk þess sem
skothríð átti sér stað nærri bæn-
um Kumanovo, skammt frá
júgóslavnesku landamærunum. ■
TALAR VIÐ
FRÉTTAMENN
Barry Johnson,
ofursti innan
NATO, talar við
fréttamenn um
ástandið í
Makedóniu.
HANDTEKNIR f KÓLUMBÍU
I \
' AtT f 1
j
T **
Þrír írskir sprengjusérfræðingar, sem taldir eru meðlimir í IRA og eru sakaðír um að hafa aðstoðað uppreisnarmenn í Kólumbíu.
Syrtir í álinn á Norður-Irlandi:
IRA hættir við afvopnun
dublin. ap írski lýðveldisherinn
(IRA) dró í gær til baka samþykki
sitt á afvopnunaráætlun, sem
kynnt var í síðustu viku en sam-
bandssinnar höfðu ekki talið full-
nægjandi af hálfu IRA. í yfirlýs-
ingu frá IRA segjast samtökin eng-
an veginn getað sætt sig við við-
brögð sambandssinna á Norður-ír-
landi, sem krefjast þess að sjá
raunverulega afvopnun hefjast
áður en þeir geti fallist á þátttöku í
heimastjórn með lýðveldissinnum.
Þessi síðasta yfirlýsing frá
IRA þykir draga mjög úr vonum
manna um að hægt verði að hrin-
da friðarsamningunum, sem
gerðir voru árið 1998, í fram-
kvæmd að nýju með þátttöku hel-
stu flokka lýðveldissinna og sam-
bandssinna í heimastjórn Norður-
írlands.
„Að draga sig til baka frá sam-
komulagi sem tók tvö ár að ná,
einungis fimm dögum eftir að
lýðveldissinnar sögðu það vera
sögulegt, getur ekki annað en
bætt stöðu þeirra efasemdar-
manna sem alltaf hafa efast um
ásetning þeirra,“ sagði John Reid,
Norður-Irlandsmálaráðherra
bresku stjórnarinnar.
Ekki bætti úr skák að þrír
menn, sem taldir eru vera hátt-
settir í IRA, voru handteknir í
Kólumbíu á mánudag, grunaðir
um að hafa þjálfað uppreisnar-
menn þar í landi í hryðjuverkum
og sprengjugerð. ■
A
viðhald
FASTEÍGNA ehf.
Tökum að okkur alla almenna húsamálun,
sandspörtlun, húsaviðgerðir og
háþrýstiþvott.
-Bjóðum upp á föst verðtilboð
eða tímavinnu.
-Leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð
og snyrtilega umgengni
-Fáðu fagmenn í verkið og hafðu samband
símar: 8982786 & 8622628
Utsala!
Glæsilegar yfírhafnir
Opið laugardaga frá kl. 10 - 16
ÁoÁHlýlSID
Mörkinni 6, sími 588 5518
Bílastæði við búðarvegginn.