Fréttablaðið - 15.08.2001, Side 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
15. ágúst 2001 MIÐVIKUPAGUR
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson
Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavfk
Aðalslmi: 515 75 00
Slmbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Slmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Dreifing: Póstflutningar ehf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgaisvaaðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og (gagnabönkum
án endurgjalds.
MILOSEVIC
Hann heldur enn um stjórnartaumana i
flokknum.
Háttsettir embættismenn
heimsækja Milosevic:
Milosevic
í sambandi
við flokkinn
amsterdam. ap Fimm háttsettir
embættismenn úr sósíalistaflokki
Slobodan Milosevic heimsóttu
forsetann fyrrverandi í gær.
Milosevic leiðir enn flokkinn
þrátt fyrir að hafa setið í varð-
haldi nálægt Haag í Hollandi í sex
vikur og hefur verið í símasam-
bandi við embættismenn flokks-
ins. Milosevic bíður réttarhalda
vegna stríðsglæpa sem framdir
voru í Kosovo. Milosevic, sem
staðhæfir að hann muni sjá um
sína eigin vörn í réttarhöldunum,
er gert að koma í annað sinn fyrir
réttinn 30. ágúst. ■
DÝFIR SÉR
Fröken Svlnka undirbýr enn eitt stökkið.
Sýningaratriði í Ástralíu:
Dýfmgar-
svín stelur
senunni
BRISBANE, ÁSTRALÍU. AP. FrÖken
Svínka býr sig undir að dýfa sér
fram af palli ofan í vatn á hinni ár-
legu Royal Brisbane sýningu sem
haldin er þessa dagana í Ástralíu.
Svínka er aðalnúmerið á sýning-
unni sem bæði ungir sem aldnir
virðast vera ólmir í að sjá, en oft-
ast eru öll sæti yfirfull klukku-
stund áður en sýningin hefst. Hef-
ur velgengni sýningarinnar vakið
mikla undrun þjálfara Svínku,
Tom Valderleur en að hans sögn
standa allir upp af hrifningu þegar
hún dýfir sér fram af pallinum. ■
ísraelsher ræðst inn í borgina Jenin:
Litið á árásina sem
stríðsyfirlýsingu
JENIN. VESTURBAKKANUM. AP. Heima-
stjórn Palestínumanna hefur lýst
því yfir að lita megi á þriggja
klukkustunda árás ísraela á
borgina Jenin í gærnótt sem
stríðsyfirlýsingu af hálfu ísra-
ela. Um 10 skriðdrekar réðust
inn í borgina og var aðallögreglu-
stöð hennar m.a. jöfnuð við jörðu
auk þess sem skotið var að
Palestínumönnum. Talið er að
fjórir Palestínumenn hafi særst í
skothríðinni. Að sögn sjónarvotta
sveimuðu þyrlur ísraela yfir
borginni meðan á árásinni stóð.
Árásin er sú fyrsta sem gerð hef-
ur verið á borg með palstínskt
yfirráðasvæði síðan heimastjórn
Palestínu var komið á árið 1994. í
kjölfar atburðarins hefur heima-
stjórnin nú biðlað til Sameinuðu
þjóðanna um að fá alþjóðlega
vernd fyrir her ísraelsmanna.
Að sögn ísraelshers var árás-
in gerð í hefndarskyni vegna
sjálfsmorðsárása Palestínu-
manna sem nýlega áttu sér stað í uós Á himni
ísrael. Palestínska skæruliða- Skot frá skriðdrekum (sraela lýstu upp
hreyfingin Hamas segist ætla að himminn fyrir ofan Jenin i fyrrinótt.
hefna árásarinnar á næstu dög-
um. ■
Félagsþjónustan sópar
hingad alls konar fólki
Bruni í íjölbýlishúsi við Vatnsstíg. íbúi hússins finnur fyrir miklu óöryggi að búa í húsinu.
Flestir íbúanna búnir að fá nóg af ástandinu sem þar ríkir.
löcreclumál „Maður á örugglega
eftir að drepast hérna í húsinu því
þetta er í annað sinn sem eldur
kemur upp í sömu íbúð fyrir utan
önnur atvik tengd bruna,“ sagði
íbúi á Vatnsstíg 11 sem ekki vildi
láta nafn síns getið, en kalla varð
til aðstoðar slökkviliðsins á höfuð-
borgarsvæðinu þegar eldur kom
upp í íbúð í húsinu um þrjúleytið í
fyrrinótt. Þrennt var í íbúðinni og
voru tveir fluttir á sjúkrahús
vegna gruns um reykeitrun. Eldur-
inn hafði komið upp í sófa og tók
slökkvistarfið skamma stund.
Töluverðar skemmdir urðu á íbúð-
inni og rýma þurfti 23 íbúðir í hús-
inu vegna mikils reyks sem mynd-
aðist.
Konan sagði sögu Vatnsstígs-
hússins bera keim af svipuðum at-
burðum og hafði nóg um litróf íbú-
anna að segja. „Félagsþjónustan
sópar þangað inn alls konar fólki
og mætti bera það sama við að fara
út í sjoppu og panta bland í poka.
Ég er búin að beita miklum þrýst-
ingi um að fá að flytja p
mig til úr þessu húsi en
það virðist ekkert vera
að ganga og enginn til að
hlusta." Konan sagðist
finna fyrir miklu óöryggi
að búa í húsinu. „Ég er
farin að hafa til taks við
rúmstokkinn skó og
sokka því ég ætla mér
ekki að þurfa að hlaupa
út á götu á nærbuxun-
um.“ Hún sagði tuttugu
og fjórar íbúðir vera í
húsinu og flesta íbúana
löngu vera búna að fá nóg
af ástandinu. „Ég á ekki í nein önn-
ur hús að venda vegna aðstæðna
minna því ef svo væri, væri ég
löngu búin að skila inn lyklunum af
íbúðinni. En svo auðvelt er það
ekki í dag.“ Konan taldi sig hafa
VATNSSTÍGUR 11
Tuttugu og fjórar (búðir eru í húsinu og segir
nægða með með ástandið sem þar ríkir.
fullan rétt á því að láta flytja sig til
og sagðist vera komin á fremsta
hlunn með að panta tíma hjá borg-
arstjóra til að ganga í málið.
viðmælandi Fréttablaðsins flesta íbúa óá-
Þess má geta að lögreglan í
Reykjavík er með málið í rann-
sókn.
kolbrun@frettabladid.is
Norðurbakki í Hafnarfirði:
Bryggjuhverfi í stað Listaháskóla
skipulac „Ég er ekkert að kasta
fram svona tilboði af gamni mínu
heldur af því að ég tel að þetta
skipti máli fyrir bæjarfélagið og
þetta sé góð umgjörð og aðsetur
fyrir Listaháskólann. Á einhverj-
um tímapunkti þarf að taka af
skarið og sérstaklega þegar ljóst
er að þeir sem fara þar fyrir mál-
um, eins og stjórn Listaháskóla ís-
lands, vilja ekki fara með skólann
til Hafnarfjarðar. Þá þýðir ekkert
að vera berja höfðinu lengur við
steininn heldur snúa sér að næsta
verkefni. Það er komið að þeim
tímapunkti núna,“ segir Magnús
Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafn-
arfirði. Hann telur að nú eigi bæj-
arstjórnin að einbeita sér að fram-
tíðaruppbyggingu á þessu svæði,
án Listaháskóla íslands.
„EINA RAUNVERULEGA BRYGGJUHVERFIÐ"
„Ég mundi áætla það að uppbygging á þessu svæði verði á næstu tveimur til sex árum,"
segir Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Á þessu svæði á að fjarlægja öll hús
°g hyggja bryggjuhverfi þar sem áður var fyrirhuguð bygging Listaháskóla Islands.
„Stjórnin samþykkti um síð- vegað skólanum stað fyrir ný-
ustu áramót að leita eftir því byggingu. Að öðru leyti hefur
hvort Reykjavíkurborg gæti út- stjórnin ekki tekið neinar fullnað-
arákvarðanir. Engar viðræður
hafa farið fram við bæjaryfirvöld
í Hafnarfirði síðan," segir Hjálm-
ar Ragnarsson, rektor Listahá-
skólans í samali við Fréttablaðið.
Stjórn Listasháskólans hefur ekki
verið kölluð saman sökum þessa
og skilur Hjálmar þessa ákvörðun
bæjarstjórans.
Magnús segir að Hafnarfjarð-
arbær hafi í hartnær tvö ár haldið
opnum möguleika gagnvart Lista-
háskólanum og boðið svæði í hjar-
ta bæjarins. „Nú erum við búin að
taka af skarið og segjum hér
byggjum við bryggjuhverfi sem
verður einstakt því þetta er eina
raunverulega bryggjuhverfið á
Reykjavíkursvæðinu, snýr mót
Suðri með öllum þeim gæðum
sem í því felast.“ ■