Fréttablaðið - 15.08.2001, Qupperneq 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
15. ágúst 2001 MIÐVIKUDAGUR
Umtóraom um olh laml
liht l hclUu unvnttuvíi'ilumim
.A
I S-'mi ð0ðð
- \ «jnu>?Htvwoífa »>
ísland - Pólland:
Eiður Smári er meiddur
KNATTSPYRNfl Eiður Smári
Guðjohnsen meiddist lítillega á
æfingu og verður því ekki með ís-
lenska landsliðinu gegn Pólverj-
um. Andri Sigþórsson, sem leikur
með Salzburg í Austurríki tekur
sæti Eiðs Smára í byrjunarliðinu
og Tryggvi Guðmundsson fær
tækifæri til að sýna getu sína á
vinstri kantinum.
Atli Eðvaldsson sagði að Eiður
Smári hefði fundið fyrir verkjum
í nára og að ákveðið hefði verið að
taka ekki neina áhættu með hann
og því yrði hann látinn hvíla í
leiknum, sem hefst klukkan 18 í
dag á Laugardalsvelli. Atli sagði
að öllum yrði gefið tækifæri í
leiknum á morgun.
„Það er eitt á hreinu og það er
að Birkir Kristinsson kemur inn á
46. mínútu því að hann á afmæli,"
sagði Atli og brosti.
Að sögn Atla eru Pólverjarnir
nánast með sitt sterkasta lið, það
vantaði aðeins einn eða tvo leik-
menn, sem hefðu verið fasta-
menn.
„Miðað við forföllin hjá okkur,
en okkur vantar Rúnar (Kristins-
son), Brynjar (Gunnarsson, Helga
(Sigurðsson) og Eið Smára, þá
held ég að þeir geti vel við unað.
Þetta eru allt topp fótboltamenn í
pólska liðinu. Þeir eru búnir að
slátra Norðmönnum, Úkraínu-
mönnum og Hvít-Rússum og eru
langefstir í sínum riðli. Margir
þeirra eru að spila í bestu deildum
Evrópu en flestir þeirra eru í
Þýskalandi."
Næsti leikur íslands í und-
ankeppni HM er gegn Tékkum
þann 1. september og sagði Atli að
leikurinn gegn Pólverjum ætti að
verða góður undirbúningur fyrir
hann. ■
ATLI EÐVALDSSON
Landsliðsþjálfarinn sagði að Pólverjar væru
með sterkt lið og hefðu m.a. sigrað Norð-
menn, Úkraínu og Hvít-Rússa nýlega.
Kreppa framundan í
ensku knattspyrnunni?
Aðeins 15 lið í ensku knattspyrnunni skiluðu hagnaði tímabilið 1999 til 2000. Man. Utd. skilaði 4
milljarða króna hagnaði, en Blackburn tapaði 2,2 milljörðum. Hjá 16 liðum var launakostnaður
hærri en heildartekjurnar.
STUTTUR TÍMI TIL STEFNU
Toyota kynnti kappakstursbíla sína fyrst í mars. Liðið er nú í óðaönn að undirbúa sig fyrir
næsta tímabil í Formúlunni.
Yíirmaður Toyota óánægður:
Hrósið okkur frekar
formúla i Ove Andersson, yfirmað-
ur liðs Toyota í Formúla 1, sem tek-
ur þátt í keppninni á næsta tíma-
bili, er ekki ánægður með gagnrýni
sem baunað er að því úr öllum átt-
um. Liðið hefur sætt gagnrýni fyr-
ir ýmsar ákvarðanir á árinu en
Andersson segir að menn eigi frek-
ar að hrósa Toyota fyrir það að
ákveða að taka þátt í Formúlunni
með sitt eigið lið.
Fyrst heyrðist kliður þegar
Toyota réði Gustav Brunner frá
Minardi, sem reiddi yfirmann
Minardi, Paul Stoddard. Nú nýlega
urðu margir yfirmenn liðanna fúlir
þegar tilkynnt var að Toyota ætlaði
að halda æfingum áfram í vetur
þegar æfingabann er í gildi. Liðið
telur sig hinsvegar ekki þurfa að
fara að reglum FIA þar til í byrjun
næsta árs.
Andersson segir það ósann-
gjarnt að menn séu að gagnrýna
liðið þegar það er að gera sitt besta
til að vera reiðubúið fyrir slaginn,
sem hefst í Melbourne eftir ára-
mót. Hann býst ekki við góðum ár-
angri, hugsar næsta tímabil frekar
sem byrjunarreit til að þjappa lið-
inu saman. „Ef litið er tilbaka að
ári og fólki finnst við hafa staðið
okkur vel höfum við náð takmark-
inu.“ ■
Enski boltinn:
Kanu til Fulham?
KNATTSPYRNA Langflest knatt-
spyrnulið í Englandi eru rekin
með bullandi tapi og er þar helst
um að kenna mikilli verðbólgu á
leikmannamarkaðnum, þar sem
kaupverð og laun hafa hækkað
gífurlega siðustu ár. Samkvæmt
árlegri könnun fyrirtæksins
Deloitte and Touch voru aðeins 10
úrvalsdeildarlið og 5 neðri deild-
arlið rekin með hagnaði tímabilið
1999 til 2000. Þróunin heldur
áfram í þessa átt þrátt fyrir að
knattspyrnuliðin fái í heild um
140 milljarða króna í tekjur vegna
sjónvarpsútsendinga.
Man. Utd. skilaði mestum
hagnaði á tímabilinu 1999 til 2000
eða ríflega 4 milljörðum króna.
Arsenal kom þar næst á eftir með
um 1,3 milljarða. Blackburn skil-
aði mestu tapi eða um 2,2 milljörð-
um króna. Fulham tapaði um 1,4
milljarði og Liverpool um 1,1
milljarði króna.
Þeir svartsýnustu spá því að
innan skamms verði kreppa í
enska knattspyrnuheiminum og
byggir spáin ekki síst á því hvað
launakostnaðurinn hefur aukist
mikið. Hjá sjö af hverjum tíu lið-
um fara um 70% af tekjunum
beint í launagreiðslur og hjá 16
liðum er launakostnaður meiri en
heildartekjur þeirra.
knattspyrna Enska dagblaðið
London Evening Standard greindi
frá því í gær að Fulham væri að
undirbúa tilboð í Nwankwo Kanu,
en Arsenal metur hann á 10 millj-
ónir punda. Talið er að Jean Tig-
ana, framkvæmdastjóri Fulham,
sé hins vegar ekki reiðubúinn til
að greiða svo háa fjárhæð fyrir
leikmanninn.
Enska blaðið telur að Arsene
Wenger, framkvæmdastjóri
Arsenal, sé jafnvel tilbúinn til að
gefa eitthvað eftir til þess að
jafna reikninginn eftir sumarið,
en hann hefur eytt um 27 milljón-
um punda í þrjá nýja leikmenn, þá
Francis Jeffers, Giovanni Van
Bronckhorst og Junichi Inamoto.
Þá Arsenal hafi ekki þurft að
greiða fyrir Sol Campbell má
samt búast við því að samningur-
inn við hann hafi kostað sitt.
Með komu Jeffers til Arsenal
jókst enn samkeppnin um fram-
herjastöðu í liðinu, en auk Kanu
og Jeffers, eru þeir Dennis Berg-
kamp, Thierry Henry og Sylvain
Wiltord að berjast um tvær stöð-
ur.
Fulham skortir hins vegar
Bilið á milli Úrvalsdeildarlið-
anna og neðri deildarliðanna held-
ur áfram að breikka og námu tekj-
ur Úrvalsdeildarliðanna vegna
sjónvarpsútendinga um 108 millj-
örðum króna á síðasta ári en tekj-
ur hinna 72 liðanna sem eru í
neðri deildunum námu um 42
milljörðum. Heildartekjur Úr-
valsdeildarliðanna námu að með-
altali um 5 milljörðum á lið, en lið
í ensku 1. deildinni höfðu að með-
atali um 1,1 milljarð króna í tekj-
ur. Deloitte and Touch spáir því að
bilið muni halda áfram að breikka
og því muni sæti í Úrvalsdeildinni
skipta æ meira máli fyrir fjárhag
enskra knattspyrnuliða. Því er
spáð að árið 2002 til 2003 muni Úr-
valsdeildarliðin fá 140 milljarða
króna meira í tekjur en önnur
knattspyrnulið í Englandi.
trausti@frettabladid.is
BILIÐ BREIKKAR
Neðri deildarlið í Englandi eins og Wolves og Portsmouth höfðu að meðaltali um 1,1
milljarð króna i tekjur á meðan meðaltekjur Úrvalsdeildarliða var um 5 milljarðar.
KANU
Arsene Wenger, framkvæmdastjóri Arsenal,
metur Kanu á 10 milljónir punda.
markaskorara og það er kannski
táknrænt að Tigana hefur ekki
enn útdeild treyju númer 9. Hann
reyndi að kaupa Jan Koller frá
Anderlect og Frederic Kanoute
frá West Ham, en þeir vildu ekki
koma. ■
LIÐ SEM SKILUÐU HACNAÐI (milljarðar króna):
1. MAN UTD 4
2. ARSENAL 1.3
3. CHELSEA 1
4. TOTTENHAM 1
5. LEEDS UTD 1
6. ASTON VILLA 0.76
7. BRADFORD CITY 0.74
8. WATFORD 0.7
9. SUNDERLAND 0.14
10. MAN CITY 0.11
LIÐ SEM SKILUÐU TAPI
(milljarðar króna):
1. BLACKBURN 2.2
2. FULHAM 1.4
3. LIVERPOOL 1.1
4. N'HAM FOREST 0.8
5. QPR 0.66
6. CHARLTON ATH 0.66
7. BOLTON 0.59
8. HUDDERSFIELD 0.59
9. NORWICH 0.5
10. READINC 0.5
Andri í byrj-
unarliðinu
BYRJUNARLIÐ LIÐ
Árni Gautur Arason Rosenborg
Auðun Helgason Lokeren
Arnar Þór Viðarsson Lokeren
Arnar Grétarsson Lokeren
Pétur Marteinsson Stabæk
Helgi Kolviðsson Karten
Hermann Hreiðarsson Ipswich Town
Eyjólfur Sverrisson (F) Hertha Berlin
Tryggvi Guðmundsson Stabæk
Heiðar Helguson Watford
Andri Sigþórsson SV Salzburg
VARAMENN LIÐ
Birkir Kristinsson fBV
Jóhann Guðmundsson Lyn
Jóhannes K. Guðjónsson RKC Waalwijk
Marel Baldvinsson Stabæk
Ólafur Stígsson Fylkir
EFTIRSÓTTUR
Clenn Roeder, framkvæmdastjóri West
Ham, vill ólmur fá Don Hutchison aftur til
liðsins.
Enski boltinn:
West Ham
vill Hutchi-
son
knattspyrna Búist er við að Sunder-
land bjóði Don Hutchison nýjan
samning á næstu dögum til þess að
tryggja það að leikmaðurinn verði
áfram hjá liðinu, en freistist ekki til
að fara aftur til West Ham.
Glenn Roeder, framkvæmdastjóri
West Ham, hefur mikinn áhuga á að
kaupa Hutchison, en Roeder leitar nú
logandi Ijós að leikmanni til að fylla
það skarð sem Frank Lampard skyldi
eftir sig þegar hann var seldur til
Chelsea fyrir skömmu. Hutchison átti
frábært tímabil með Sunderland á
síðustu leiktíð og var m.a. valinn besti
leikmaður liðsins, og það er því engin
furða að Roeder hafi áhuga á leik-
manninum.
Peter Reid, framkvæmdastjóri
Sunderland, keypti Hutchison á 2,5 m
punda frá Everton fyrir ári síðan, þar
áður lék hann með Sheff. Utd., West
Ham og Liverpool. Hutchison kann
vel við sig í Norður-Englandi en talið
er að konan hans vilji helst fara aftur
til London. ■
í sambandi
við veiði...
Minnsta stöðin á
markaðnum. 500mW
sendistyrkur,
drægi 5-8 km. Fjöidi
aukahluta,
svo sem
hljóðnemi
og
höfuðtól.
Ekkert
leyfisgjald,
þrír
litir
og
þyngd
aðeins
124 gr.