Fréttablaðið - 15.08.2001, Qupperneq 15
FRÉTTABLAÐIÐ
MIÐVIKUPACUR 15. ágúst 2001S
Jonathan Edwards ver Olgu Yegorovu:
„Auðvelt skotmark“
bIfrjálsar íþróttir Breski þrístökkvar-
■Tinn Jonathan Edwards sagði í gær
að honum þætt sú meðferð sem
f rússneska hlaupakonan Olga
, Yegorova, hefði fengið eftir sigur
sinn í 5.000 m hlaupi á Heimsmeist-
| aramótinu í Edmonton ósanngjörn.
| Yegorova féll á lyfjaprófi skömmu
fyrir mótið, en vegna formgalla var
prófið dæmt ógilt. Þrátt fyrir harða
gagnrýni andstæðinga sinna m.a.
rúmensku hlaupakonunnar
Gabrielu Szabo fékk hún að taka
þátt á Heimsmeistaramótinu.
Yegorova sigraði í hlaupinu og baul-
uðu áhorfendur á hana þegar hún
kom í mark.
„Ég vorkenni henni,“ sagði Ed-
wards. „Mér finnst búið að fara illa
með hana og gagnrýnin á hana hafa
verið ósanngjörn. Hún var auðvelt
skotmark."
Edwards sagði að Yegorova hefði
ekki fengið tækifæri til að verja
sjálfa sig og að almenningur hefði
strax dæmt hana seka þrátt fyrir að
sekt hennar hefði aldrei verið sönn-
uð. Rússneskur uppruni hennar
hefði einnig haft sitt að segja því
fólk tengdi hana þar með við fyrrum
Sovétríkin sem á kerfisbundinn hátt
hefðu reynt að auka getu íþrótta-
manna með lyfjagjöf. Edwards spyr
hvort viðbrögð almennings hefðu
verið þau sömu ef Yegorova væri
kanadísk eða bresk. ■
GLEÐI OG SORG
Olga Yegorova fékk óblíðar móttökur frá
áhorfendum eftir sigur í 5.000 m hlaupi á
Heimsmeistaramótinu I Edmonton.
Undankeppni HM:
Taugaspenna hjá Brasilíu
SIGURLEIKUR
Brasilía sigraði Panama 5-0 í æfingaleik á fimmtudaginn. Edilson
(t.h.) fagnar hér marki ásamt Marcelo Paraiba.
^KNATTSPYRNA Brasilíska
landsliðið leikur í dag einn
sinn mikilvægasta leik í
langan tíma, þegar það tek-
ur á móti Paragvæ í und-
ankeppni Heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu.
Fjögur efstu liðin í Suður-
Ameríkuriðlinum komast í
lokakeppni HM í Japan og
Kóreu árið 2002, en liðið í 5.
sæti leikur tvo leiki gegn
fsigurvegaranum í und-
ankeppni Eyjaálfu. Sem
stendur er Brasilía, sem
alltaf hefur tekið þátt í
lokakeppni HM, í 4. sæti S-
Ameríkuriðilsins, en
Paragvæ í í 2. sæti.
Brasilíska liðið hefur verið í
mikilli lægð undanfarna mánuði og
engan veginn náð sér á strik, eins
og staða þess í HM-riðlinum gefur
til kynna. Þá gekk liðinu hörmu-
lega í Álfukeppninni, sem leikinn
var í vor og eftir þá keppni var
þjálfarinn, Emerson Leao, rekinn
og Luiz Felipe Scolari ráðinn. Ekki
hefur liðinu gengið betur undir
stjórn Scolari og frammistaða þess
í Ameríkukeppninni í síð-
asta mánuði var mikið
áfall, þar sem liðið tapaði í
fjórðungsúrslitum fyrir
Hondúras.
Mikil taugaspenna er nú
í herbúðum Brasilíska
knattspyrnusambandsins,
ekki síst þar sem áhan-
gendur liðsins virðast vera
búnir að fá nóg af lélegri
frammistöðu þess og gagn-
rýna það óspart. Hingað til
hefur Brasilía leikið alla
heimaleiki sína á
Maracana-leikvanginum í
Rio de Janeiro og í Sao
Paulo, en þar sem knatt-
spyrnusambandið óttast lítinn
stuðning við liðið á þessum stöðum
hefur það fengið leyfi til að færa
leikinn gegn Paragvæ til heima-
héraðs Scolari, Porto Alegre í
sunnanverðri Brasilíu. ■
Stjörnutorgi Smáratorgi
Kringlunni Kópavogi
lTrtWrt¥0níðVéf!fkólaSSWtíýWtiss|RÓ1ðfiWð2ieðl2f0Ö2eerí>ftáWnOög
Týkór222.-ifiC(úíitniý;k. fTJfiWÍðTékúðtVíér'Srvrttoötjihéf^GkennsIa
33.ss«jS«»*l»€r-. K|e«WUeerffáá1f7WO -22lð0Q,tm8ftéé&§a,
í^rtðjödá^a^WíðVlkodfigai'FÍfiWÍdAMþtiUÍ ínpókkraóblútaí’en
f’méðál kfcém’nfcíugréíria tiér MWrtéWn Hö'tVBrt’ótkon, Qsráíílík
trt’ört'rtú'n o«sg nmynclVirt'rtfela, VVétföriWfn, Oájg
SStáTráénhfvlfó'ðVWrtSta. hMéðálljSé'iH'ai Toririta^semkkVðóteeraá
eéttu OatesttMéHVér i-IiRlra’dev, Pfirtórófeb’rtp,
FFr#feBá>i^d, tFirewörks, ss-öenVi EBéHto®g Fþiakih. í í‘Aköi»rttímeer
nmilcíi afirtérbia áá ppfers'ó’rtífleg ‘‘ssmkkiþti íwmeipda o«g
kkértrtára-'tígnmál'kmlðAkÁt&'nseeriáð'irttrmértPtir’ððHiEfaró'Peg
■>fe}íílf5fáéðitÍlil-iííðt«áRa!itáávi4aort»fcertáðfiífiil|vvékfcé*ÁiáásKV)ði
uvéTmíðltírtfir. iFrékarftipiaíýeísgarJímf!ikó1airtr»öfirtá(rtððen'áð
fTWrtaááYVéTslðusiífeÓlSfts, eéðá í-SÍMa