Fréttablaðið - 15.08.2001, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 15.08.2001, Blaðsíða 22
22 FRÉTTABLAÐIÐ 15. ágúst 2001 MIÐVIKUPAGUR HRAÐSOÐIÐ HÖRÐUR H. HELGASON, lögfræðingur Aukinn vitund um einkalífsrétt HVERSU algengt er að mál eins og nú er komið upp hjá Símanum-lnterneti komi upp? Ég get ekki tjáð mig beint um þetta mál, því það er í vinnslu hjá okkur. En ég get ekki sagt að slík mál komi oft upp en þau koma upp við og við. Við tökum þau þá til rannsóknar, annað hvort að eigin frumkvæði eða vegna þess að kvörtun berst utanfrá. Ef úrskurðir eru þess eðlis að talið er að lög hafi verið brotin þá send- um við málið til saksóknara. HVERNIG er öryggismálum í tengslum við tölvupóst háttað hér á landi? Menn hafa misjafnar skoðanir á hversu vel persónuupplýsinga, sem eru í rafrænum skjalakerfum eða á þjónum sem vista t.d. tölvupóst eða aðrar slíkar persónuupplýsingar, er gætt. í sumum tilfellum höfum við komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið farið nægilega skynsam- lega að. Kröfur um öryggi í tölvu- póstsamskiptum hafa líka breyst mikið undanfarin ár með breytingu í notkun á tölvupósti. Hann var í lítilli útbreiðslu fyrst og ekki ætlað að geyma viðkvæmar upplýsingar. Nú hefur notkunin breyst mikið sem og kröfur um öryggi. Það má benda á að tölvupóstur fer alltaf í gegnum einhver kerfi en tilgangur í aðgangi kerfistjóra að póstinum á alltaf að vera skýr. Almennt má segja að það sé erfitt að sjá í hvaða tilgangi unnið sé með tölvupóst einstaklinga án samþykki viðkomandi. HVER ber ábyrgð á að öryggi þessara upplýsinga sé tryggt? Einstöku Internet-aðgangsveitendur bera ábyrgð. Þeir lúta lögum um persónuvernd, en einnig f jarskipta- lögum. Ef þeir standa sig ekki vel og fara ekki að reglum, þá kann það að leiða til þess að þeir verði refsiá- byrgir, eða fébótaskyldir. ER MIKIÐ leitað til ykkar hjá Per- sónuvernd? Almenningur leitar til okkar í stór- um stíl og fyrirspurnum fjölgar sí- fellt. Fyrir tveimur árum síðan, árið 1999 fékk Tölvunefnd, forveri okkar, 519 mál til meðferðar. í ár höfum við þegar fjallað um 683 mál og stefnir í að þau verði ríflega þúsund. Aukninginu má fyrst og fremst skýra með aukinni vitund lands- manna um einkalífsrétt. Borgarinn orðinn meðvitaðri og hefur af því áhyggjur hvernig er farið með per- sónuupplýsingar. Fólk vill vita meira um hvernig er farið með þær upp- lýsingar sem til eru um það. HVAÐ telst til persónuupplýsinga? Allar upplýsingar sem má rekja beint eða óbeint til einhvers tiltekins einstaklings. Þetta getur verið hvað sem er. Viðkvæmar persónuupplýs- ingar eru nánar skilgreindar en meðal þeirra eru upplýsingar um uppruna, kynþátt, trúarskoðanir, kynlif og kynhneigðir, heilsuhagi og fleira. Hörður H. Helgason er lögfræðingur hjá Peisónu- vemd. Hann hefur starfað þar slðan I október 2000. Peisónuvemd tók formlega til starfa I. janúar siðast- liðin og tók þá við af Tölvunefnd. Heimasiða stofn- unarinnar er www.personuvemdjs Palestínumenn munda úðabrúsana: Veggjakrot á Vesturbakka GAZfl. ap Veggjakrot setur svip sinn á bæi Vesturbakkans og Gazasvæðisins. Með úðabrúsann í hönd nota Palestínumenn veggi verslana, leiksvæða, bænastaða og útimarkaða til að tjá það til- finningarót sem fylgir meira en tíu mánaða bardögum við ísrael. Myndirnar lýsa á sjónrænan hátt gremju, reiði, morðum, kvíða og draumum um sjálfstæði. Sumir skrifa eingöngu nokkur orð úr Kóraninum, hinni heilögu bók fs- lam. Aðrir mála stórar veggmynd- ir af atburðum stríðsins. ■ I FRÉTTIR AF FÓLKI Frændur vorir Norðmenn hafa afráðið að veita Ólafi G. Einars- syni, fyrrum forseta Alþingis og núverandi for- mann bankaráðs Seðlabanka ís- lands, orðu. í fréttatilkynningu frá norska sendi- ráðinu kemur fram að hans hátign, Haraldur konung- ur V., hafi útnefnt Ólaf til stórriddara með stjörnu hinnar konunglegu norsku heiðurs- orðu, „Den kongelige norske fortj- eningsorden.“„01afur G. Einarsson hlýtur heiðursmerkið fyrir hið framúrskarandi framlag sitt um langa tíð að bæta og þróa hið ágæta og nána samstarf milli íslands og Noregs, einkum á menningarsvið- inu.“ Það er sendiherra Noregs á íslandi, Kiell H. Halvorssen, sem afhendir Ölafi orðuna. Viðstaddir athöfnina, sem fara mun fram í dag í bústað sendiherrans, Fjólu- götu 15, verða m.a. Halldór Blön- dal, forseti Alþingis og Hákon Randal, fyrrum varaforseti Norska Stórþingsins og fylkismaður. Hinn margreyndi blaðamaður Sigurdór Sigurdórsson, hefur störf á Bændablaðinu innan tíðar. Sigurdór á að baki langan feril í blaðamennsku. Hann hefur unnið á Þjóðviljanum, DV og nú síðast á Degi áður en hann var lagður niður. Bændablaðinu er án efa fengur að starfskröftum Sigurdórs. Ekki er vitað hversu vel Sigur- dór er að sér í landbúnaði, en þess má geta að fyrir nokkrum árum samdi hann og söng texta um hinn ágæta Dagfinn dýralækni. Þó Sigurdór verði ekki jafn kyngimag- naður og Dagfinnur er trúlegt að hann eigi eftir að auðga Bændablaðið með reynslu sinni. Sigurdór hefur sótt feng til sveita, hann er giftur heimasætu af Suðurlandi, Sigrúnu Gissurardóttur. Kvikmyndaverið Sony Pictures : Hætta að nota falsaða gagnrýni STRÍÐINU LÝST Á MYNDRÆNAN HÁTT Veggjakrot sem sýnir palestínska byssu- menn stinga ísraelskan hermann á hol í flóttamannabúðum á Gazasvæðinu PORTLAND. OREGON. AP. í fyrsta samkomulagi sinnar tegundar i Bandaríkjunum hefur Sony- kvikmyndaverið gefið yfirvöld- um í Oregon-fylki loforð sitt um að það muni aldrei aftur nota falsaða kvikmyndagagnrýni í auglýsingaskyni fyrir nýjustu kvikmyndir sínar. Oregon var eitt margra ríkja sem fór nýverið að kanna starfs- emi fyrirtækisins eftir að tveir markaðsstjórar innan þess ját- uðu að hafa notað falsaða kvik- myndagagnrýni undir nafni gagnrýnandans David Manning, sem einnig var tilbúningur einn. Hefur markaðsstjórunum verið vísað úr starfi tímabundið. Á meðal þeirra mynda sem um var að ræða var „A Knight’s Tale,“ og „The Animal.“ Brjóti kvikmyndaverið sam- komulagið á það yfir höfði sér 25 þúsund dala sekt fyrir hvert brot sem það fremur. ■ Kann að teygja tíkallinn 125 ár hefur Hörður Torfason tónlistarmaður haldið hausttónleika um land allt. Tónleikarnir eru gríðarlega vinsælir og hann spilar vanalega fyrir fullu húsi. Það er af sem áður var þegar fólk mætti ekki vegna þess að hann hafði sagt alþjóð frá því að hann er hommi. TROÐFYLLIR HÚSIN „Hef aldrei hlaupið á eftir jólaplötuflóðinu," segir Hörður Torfa sem heldur fast í hefð- ina að halda tónleika á haustin. tónlist „Þetta eru orðin 25 ár síð- an ég hóf að fara tónleikaferð um landið," segir Hörður Torfa- son, tónlistamaður. „Hún hefst í ár þann 4. september í Reykja- vík. Þar held ég tvenna tónleika og svo legg ég af stað.“ Hörður kemur yfirleitt einn fram á þess- um tónleikum, segir það langvin- sælast meðal aðdáenda hans. „Ég hef stundum verið með hljóm- sveit með mér, sem er ágæt til- breyting. Ég hef hins vegar alltaf fengið þau ummæli í kjöl- farið frá fólki að það vilji að ég sé einn. Það sé miklu betra.“ Hörður segir mikla hefð hafa skapast í kringum tónleikaferð- irnar hjá honum. „Ég spila yfir- leitt í samkomuhúsi staðarins og troðfylli húsin. Ég hef-komið á staðina ár eftir ár og fólk kann að meta það. Það getur treyst því að ég mæti á staðinn." Auk tónleikanna hefur Hörð- ur sett upp leikrit um land allt og því auðvitað kynnst fjölda fólks. „Þú gefur rétt ímyndað þér hver- su mörgum ég hef kynnst. Ég hef oft dvalið í margar vikur á sama staðnum, spilað í skólum og á sjúkrahúsum og kynnst mjög mörgum." Þegar Hörður var að byrja mætti hann miklum fordómum víða vegna þess að hann hafði sagt frá því opinberlega að hann væri hommi. „Menn fussuðu og sveiuðu yfir þessu og mjög fáir mættu. En ég hélt áfram að mæta og með því að vera kurteis og standa á mínu þá breyttist þetta smám saman.“ Hörður stendur sjálfur straum af kostnaði við tónleika- ferðirnar og segist nú orðið bara fara á stærstu staðina, enda upp- átækið mjög dýrt. Með haustinu kemur líka út ný plata með Herði þannig að aðdáendur hans hafa ýmislegt að hlakka til. „Það er hljómsveit og kór sem spila og syngja með mér á plötunni," seg- ir Hörður sem hefur gaman af því að breyta til frá trúbador hlutverkinu. Þegar tónleikaferðalaginu lýkur fer Hörður utan en hann býr stundum erlendis. „Ég kann að teygja tíkallinn þannig að mér tekst að lifa á því að vera tón- listarmaður. Ég hvorki reyki né drekk þannig að ekki fer pening- urinn í það.“ sigridur@frettabladid.is i Nýju tóbaksvarnarlögin hafa verið nokkuð umdeild. Vef- Þjóðviljinn, bendir á það í nýlegum pistli að flutningur á ljóðinu Pípan, eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson, stangist á við tóbaksvarnarlögin, sem Vef-Þjóðviljinn er ekki par hrifinn af eins og gefur að skilja. Vísukornið er tilgreint og á það bent að að það athæfi útvarps Sögu að spila lagið sé ólöglegt, „enda er ljóðið hvorki samið né flutt gagn- gert í því skyni að vara við „skað- semi tóbaks““. Síðasta erindi vís- unnar um pípuna hljóðar svo: Húnfylgir mér enn þá svo trygg og trú svo tággrönn og hnakkakert. Aldrei hefur hún öðrum þjónað né annarra varir snert. Hvenœr sem grípur mig hugarangur hún huggar mig raunum í: Þá treð ég í hana tóbaksmoði og tendra svoeld í því. Fréttir af Eldborgarhátíð Einars Bárðarsonar og félaga berast víða. Á forsíðu fréttavefs þýska vikuritsins Der Spiegel í gær mátti lesa frétt um hátíðina undir fyrirsögninni: „Tugum stúlkna nauðgað á rokkhá- tíð.“ Blaðamenn fréttavefs Bæjar- ins besta á ísafirði voru fljótir að snara fréttinni og hljóðar inngangur hennar svo í þýðingu beirra. „Skelfing ríkir á Islandi: Á Eldborgarhátíðinni í Reykjavík er ljóst að fjölda ungra stúlkna hefur verið nauðgað eða þær áreittar kynferðislega. Kraf- an um strangari lög verður hávær- ari.“ í fréttinni segir svo að ríkis- stjórnin hyggist setja sérstakar reglur um rokkhátíðir í kjölfar Eldborgarhátíðarinnar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.