Fréttablaðið - 15.08.2001, Blaðsíða 24
FRETTABLAÐIÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍV.ÍS Fyrstur með fréttirnar
’Z&otib í
Grensásvegur 10
Sími 553 88 33
OPU> VIRKA DAGA KL.8 -18 • LAUGARDAGA KL 10-16
Skeifunni 17, 108 Reykjavík I S/m/ 550 4100
Furuvöllum 5, 600 Akureyri I S/m/ 461 5000
1 Skókttktgarl
Sigmundur Ernir
_ 8 búitaönum
HUNDA- EÐA KATTAF
SVARAO
Fá*J*í si
-.-’i
ÐUR OG FAÐU
MIÐA FYRIR TVO* Á MYNDINA CATS & DOGS
‘Meóon birgóir endost,
Opnunartími: 10-18 virka daga
REYKJAViK • KEFLAVIK * AKUREYRI
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Allir á hjólum
Mér skilst að snældur og rokk-
hjól og skopparakringlur hafi
eiginlega verið einu hjólin sem sner-
ust hér á landi fyrstu 1000 ár ís-
landsbyggðar eða svo. Einstaka
snillingur kom sér upp hjólbörum.
En að öðru leyti báru eða drógu
menn eða hestar þá hluti sem færa
þurfti úr stað. Og það þurfti engar
umferðarreglur. Nú er öldin önnur.
Hér snúrra milljónir hjóla í gang-
verki nútímans og allir eru stöðugt á
hjólum.
STÓR HLUTI ÞJÓÐARINNAR
er á hjólum allan liðlangan daginn,
keyrir í vinnuna og sparkar sér síð-
an fram og aftur um kóntórinn á
skrifborðsstólum af þvílíkri færni
að ekki skvettist úr kaffibollanum.
Börn fá þríhjól áður en þau læra að
ganga, sparkhjól, hjólaskauta, línu-
skauta, hjólabretti, reiðhjól, mótor-
hjól og loks bíl. Bílprófið er mann-
dómspróf nútímans.
ÞAÐ ER ENGIN smáræðiskúnst
að ná tökum á öllum þessum hjólum
sem snúast undir manni og umhverf-
is mann allan liðlangan daginn. Ég
gleymi aldrei fyrsta hjólinu mínu og
þeirri frelsistilfinningu sem ég fyllt-
ist við að auka hraðann og svífa um
fyrir ofan jörðina. Ég gleymi því
heldur ekki þegar hraðavíman náði
tökum á mér og ég misreiknaði
bremsuvegalengd og lenti á steypt-
um kanti og beyglaði gaffalinn á
hjólinu auk þess sem ég fór í koll-
hnís og þaðan í rúmið í nokkra daga.
ÉG VILDI ÓSKA að þetta litla slys
hefði dugað mér til að læra að bera
óttablandna og hæfilega virðingu
fyrir hraðanum. En það var nú ekki
svo vel. Það eru til dæmis ekki nema
nokkur ár síðan ég tók meðvitaða
ákvörðun um að reyna að fara í einu
og öllu eftir umferðarreglunum.
Fram að því hafði ég átt það til að
meta hæfilegan aksturhraða eftir
því hvernig mér sýndust „aðstæður"
vera. Og „aðstæður" voru summan
af hugarástandi mínu, vindhraða,
skyggni, umferðarþunga, ástandi
vegar og líkum á því að lögreglu-
menn með radar biðu á bakvið
næsta leiti. Þessi hugarfarsbreyting
hefur gefist mér vel. Ég hef lsg.
ekki keyrt á neinn. (Hins vegar hef-
ur reyndar verið keyrt á mig.) En ég
kemst þótt hægt fari og spara mér
bæði bensín og bremsuklossa og
stress. ■
Útgefandi: Rit & Rækt ehf, Háholti 14,270 Mosfelisbæ, www.rit.is, rit(S>rit.is
Ljúffengar
kjúklinga-
UPPSKRIFTIR
A GRILLIÐ
TVEIR EFNILEGIR KOKKANEMAR
GRILLA KJÚKllNGA FYRIR SUMARHÚSIS
Á GLÆSILEGU KENT GASGRILLI SEM ER í
VERÐLAUN í ÁSKRIFTARLEIK SUMARHÚSSINS
Fæst á næsta blaðsölustað
r
Askriftarsími 586 8005
... hlýtt blaö allt árlb
m?.
m