Fréttablaðið - 02.10.2001, Blaðsíða 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
2. október 2001 ÞRIÐJUDAGUR
HVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
Samúel Jón Samúelsson
tónlistarmaður
„Ég mæli með fólk fari til Berlínar og upplifi
höfuðborg framtíðarinnar."
1 METSÖLUBÆKURNAR |
BYGGTÁ BÓKASÖLU í EYMUNDSSON
VIKUNA 24-30. SEPTEMBER
■9 Þórarinn Eldjárn (þýðandi)
MOLDVARPAN SEM VILDI
VITA HVER SKEIT Á HAUSINN
Á HENNI
Kristján B. Jónasson (ritstjóri)
SÖGUATLAS
Cfc Ragna Freyja Karlsdóttir
OFVIRKNIBÓKIN
Í0 Bill Philips
LÍKAMI FYRIR LÍFIÐ
IÖ Háskóli íslands
ALMANAK HÁSKÓLANS
fl Ríkisskattstjóri
SKATTALAGASAFN -TEKJU-
SKATTUR OG EIGNASKATTUR
Wm Marianne Fredriksson
ANNA, HANNA & JÓHANNA
fjl Jón Ormur Halldórsson
ÁTAKASVÆÐI í HEIMINUM
JJ.K. Rowling
HARRY POTTER OG VISKU-
STEINNINN
ítT) Gunnhildur Hrólfsdóttir
W SJÁUMST AFTUR
Metsölulisti Eymyndsson:
Forvitna mold-
varpan efst
bækur Tvær nýjar bækur skutust
upp á topp vinsældarlistans í Ey-
mundsson eftir bókasölu síðustu
viku. Barnabókin um forvitnu mold-
vörpuna í þýðingu Þórarins Eldjárn
hoppaði í fyrsta sæti úr því fjórða.
Ekkert lát virðist vera á vinsældum
hennar en bókin kom út í fyrra.
Söguatlas Máls og menningar hefur
líka hitt í mark. Hann fór beint í
annað sæti. Ríkisskattstjóri átti
hins vegar bara eina viku á toppn-
um og fellur nú niður í sjötta sæti. g
ITG kynnir starfsemi
sína í október:
Boðið upp á
þjálfun í ræðu-
mennsku
námskeis -ao ITC (International
Trainíng in Communication) - Þjálf-
un í samskiptum, hafa hafið starf-
semi sína í 10 deildum víðs vegar
um landið. Samtökin eru alþjóðleg
þjálfunarsamtök sem hafa það að
markmiði að hvetja til aukins per-
sónulegs þroska einstaklingsins.
Boðið er upp á sjálfsnám og sjálf-
styrkingu, t.d. þjálfun í ræðu-
mennsku, fundarsköpum, nefndar-
störfuin, mannlegum samskiptum
og fl., en stefna samtakanna er að
efla frjálsar og opinskáar umræður
sem skulu vera hlutlausar í öllum
stjórnmálum, félagsmálum, fjár-
málum, kynþáttamálum og trúmál-
um. í október verða ITC með sér-
stakt kynningarátak og verða kynn-
ingarfundir haldnir í flestum deild-
um á landinu. Nánari upplýsingar
um ITC og fundartíma deilda er að
finna á heimasíðu samtakakanna
wvvw.simnet.is/itc. ■
Spennusögur jólanna:
Arnaldur, Stella og
Arni á sínum stað
bækur Aðdáendur íslenskra spennu-
sagna verða ekki sviknir fyrir jólin
því væntanlegar eru bækur eftir
Arnald Indriðason, Árna Þórarins-
son og dularfulla höfundinn Stellu
Blómkvist. Þar eru alls staðar gam-
alkunnar söguhetjur á ferð. Vaka-
Helgafell gefur út fjórðu bók Arn-
aldar þar sem Erlendur og félagar
í lögreglunni koma við sögu. Nú
takast þeir á við sérkennilegt mál,
mannabein finnast í hinu nýja
hverfi, Grafarholti og spurningin
er hver á beinin, hvernig safnaðist
ÞRIÐJUDAGURINN
2. OKTÓBER
FERÐIR___________________________
19.30 Ferðafélag l'siands efnír til kvöld-
göngu á fullu tungli. Ferðinni er
heitið í Raufarhólshelli og rétt að
taka með sér Ijós og hafa húfu
eða jafnvel hjálm á höfði. Brottför
er frá BSÍ en komið við í Mörkinni
6. Reiknað er með 2-3 klst.
göngu og áætluð heimkoma er
23:30 - 24:00. Fararstjóri er Vigfús
Pálsson og þátttökugjald 1200
fyrir félagsmenn en 1500 fyrir
aðra.
SKEMMTANIR_______________________
20.00 Hið íslenzka bókmenntafélag,
Borgarleikhúsið, Hugvísinda-
stofnun og Siðfræðistofnun Há-
skóla íslands efna til uppákomu
á Litla sviði Borgarleikhússins í
tilefni af útgáfu Lærdómsritsins
Yfirlýsingar. Evrópska framúr-
stefnan. Leikarar Borgarleikhúss-
ins munu flytja Ijóð og yfirlýsingar
eftir ýmsa rithöfunda.
FYRIRLESTUR______________________
17.00 Bandaríski arkitektinn'og skipu-
lagsfræðingurinn dr. Anton C.
Nelessen verður með fyrirlestur
um skipulagsmál í boði sendiráðs
Bandaríkjanna í Átthagasal Hót-
els Sögu. Nelessen mun fjalla um
þéttingu byggðar og lausnir í
samgöngumálum. Allir velkomnir
á meðan húsrúm leyfir.
SÝNINGAR________________________
Handritasýning í Stofnun Árna Magnús-
sonar, Árnagarði við Suðurgötu. Sýningin
er opin kl. 14 til 16 þriðjudaga til föstu-
daga til 15. maí.
I Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og götulíf
vikinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð á
götu í víkingaþorpi og hins vegar sýn-
ingu þar sem má sjá beinagrind og
hauskúpur víkinga sem féllu í bardög-
um. Sýningarnar eru opnar alla daga frá
13 til 17 og standa til 1. október.
Á ferð um landið með Toyota er yfir-
skrift sýningar Fókuss, Ijósmyndaklúbbur
áhugamanna. Sýningin er í salarkynnum
nýrra bíla Toyota við Nýbýlaveg í Kópa-
vogi. Ljósmyndir á sýningunni voru tekn-
ar á ferð klúbbsins um Suðurlandshá-
lendið, í Þjórsárdal, Veiðivötnum, Dóma-
dal, Landmannalaugum, Fjallabaksleið
og víðar. Sýningin er opin á opnunar-
tíma söludeildar Toyota.
MYNDLIST_________________________
17.00 Opnun afmælissýningar á verk-
um i eigu Listasafns Háskóla ís-
lands á 2. og 3. hæð í Odda. Teflt
verður saman abstrakt verkum
eftir eldri og yngri listamenn.
Finnskættaða myndlistarkonan Sari
Maarit Cedergren, opnaði myndlistar-
sýningu sína "Veðrabrigði" í Gryfju
Ný kennslubók í gítarleik:
Lært að spila
eftir eyranu
gítarnám Út er komin ný kennslubók
í gítarleik sem ber nafnið „Gítartón-
ar“. Höfundur bókarinnar er Símon
H. ívarsson gítarleikari.
Gítarbókin er ætluð byrjendum
á öllum aldri, allt frá 7 ára. í bókinni
eru kennd grunnatriði gítarleiksins.
Þá lærir nemandinn að semja eigin
lög og spila eftir eyranu. Lagaval
bókarinnar samanstendur aðallega
af þjóðlögum frá ýmsum heimsálf-
um með áherslu á íslensk þjóðlög.
Bókin er prýdd myndum eftir Ingi-
mar Ólafsson Waage en Ijósmyndir
tók Gunnar Páll ívarsson. ■
viðkomandi til feðra sinna og hver
ber ábyrgð á því?
Tvær sögur sem flokkast til
glæpasagna koma út hiá Máli og
menningu fyrir jólin. Árni Þórar-
insson kemur með þriðju bókina
um drykkfellda blaðamanninn Ein-
ar. Hún heitir Blátt tungl og eins og
fyrri bækurnar er nafnið komið frá
bandarísku lagi.
Stella Blómkvist er einnig á
kreiki fyrir þessi jól. Þetta er ein-
nig þriðja bók hennar og sem fyrr
er hún sjálf í aðalhlutverki. ■
Listasafns ASÍ á laugardag. Sari sýnir
lágmyndir úr gifsi sem endurspegla
samspil íslensks landslags og ýmissa
veðrabrigða. Sýningin er opin frá 14 - 18
alla daga nema mánudaga og stendur
til 14. október.
Harpa Árnadóttir opnaði síðastliðinn
laugardag sýningu i Ásmundarsal Lista-
safns ASI á málverkum sem unnin eru
sem teikningar. Sýningin er opin frá 14 -
18 alla daga nema mánudaga og stend-
ur til 14. október.
ÁRNI ÞÓRARINSSON
Örugglega margir sem bíða spenntir eftir
framhaldinu á sögunni um drykkfellda
blaðamanninn Einar. Rennur endanlega
upp fyrir honum Ijós? Skyldi hann fara í
meðferð?
Sýningin Mynd og málstaður stendur
yfir i Tjarnarsal Ráðhússins. Sýningin
stiklar á stóru i sögu herstöðvaand-
stöðu frá stríðslokum með áherslu á
pólitískar teikningar. Sýningin er opin
alla daga og stendur til 7. október. Að-
gangur er ókeypis.
Jón Valgard Jörgensen opnaði á laugar-
dag sína fimmtu myndlistarsýningu í Fé-
lagsstarfi Gerðubergs. Sýningin stendur
til 9. nóvember. Opnunartímar sýningar-
innar: mán. - fös. kl. 10-17 og um helgar
kl. 13-16.
Óperublaðið:
Töfraflautcin í
aðalhlutverki
ti'marit Nýverið kom út 2. tölublað
14. árgangs Óperublaðsins, sem gef-
ið er út af Vinafélagi íslensku óper-
unnar. Meginþema Óperublaðsins
er Töfraflautan, sem frumsýnd var
í íslensku óperunni 22. september. í
blaðinu er meðal annars að finna
viðtöl við helstu söngvara og list-
ræna stjórnendur, fréttir af starfi
íslensku óperunnar og Vinafélags-
ins, umfjöllun um óperulistina í for-
tíð og nútíð og einnig skrifa þrír val-
inkunnir söngvarar um drauma-
gengi sitt í Töfraflautunni.
Ritstjóri blaðsins er Margrét
Sveinbjörnsdóttir, kynningarstjóri
íslensku óperunnar. ■
Linda Oddsdóttir opnaði í gær sína
fyrstu einkasýníngu á Cafe Presto Hlíða-
smára 15. Á sýningunni eru eingöngu
olíumálverk sem eru unnin á þessu ári.
Myndefnið er aðallega sótt i náttúru
landsins. Opnunartímar virka daga frá
10 til 23 og um helgar frá 12 til 18. Sýn-
ingin stendur til 19 október.
Kristjáns Davíðsson hefur opnað sýn-
ingu áverkum sínum i gatlerí i8. Sýning-
in stendur til 27. október. Opið þriðju-
daga til laugardaga frá kl. 13-17.
Fjórða sýningin í röðinni Fellingar i Þjóðarbókhlöðu:
Kristín Reynisdóttir
sýnir verk sín
MYNDLisT Kristín Reynisdóttir opnar
sýningu á verkum sínum í Þjóðar-
bókhlöðunni miðvikudaginn 3. októ-
ber. Kristín lauk námi frá mynd-
mótunardeild Myndlista- og hand-
íðaskóla fslands árið 1987. 1988 og
'89 stundaði hún nám við Die Bild-
ende Kunstakademiet í Dusseldorf
í Þýskaiandi. Kristín hefur starfað
að myndlist ásamt kennslu. Sýning-
in er sú fjórða í sýningaröðinni
Fellingar sem er samstarfsverk-
efni Kvennasögusafnsins, Lands-
bókasafns íslands - Háskólabóka-
safns og 13 starfandi myndlistar-
kvenna, Hver sýning stendur í einn
mánuð og er tvískipt. Annars vegar
eru verkin sýnd á Kvennasögusafn-
inu sem er til húsa á fjórðu hæð í
Þjóðarbókhlöðunni og hins vegar í
anddyri Þjóðarbókhlöðunnai’. Auk
þess eru þar upplýsingar um þá
iistakonu sem sýnir hverju sinni,
upplýsingar um Kvennasögusafnið
og einnig tölulegar staðreyndir.
Opnunartími Kvennasögusafnsins
er milli 9 og 17 alla virka daga. All-
ir velkomnir. ■
Hugmyndir sem lifa
I byrjun 20. aldar tóku framúrstefnulistamenn upp á því að gefa út yf-
irlýsingar um list sína. Yfirlýsingaformið varð að listformi í sjálfu sér
segir Benedikt Hjartarson sem skrifar inngang Lærdómsritsins Yfir-
lýsingar.
uppákoma „Það er ekki spurning
að yfirlýsingarnar eru drífandi
skemmtileg mælskulist sem og
þær lifa að því leyti enn í dag,“
segir Benedikt Hjartarson.
„Þessir hópar voru líka það sér-
stakir í menningar- og sögulegu
samhengi að aðrir eins hafa ekki
komið fram hvorki fyrr né síð-
ar.“
Hóparnir sem Benedikt á við
eru framúrstefnuhreyfingar
sem fram komu í Evrópu á
fyrstu áratugum 20. aldarinnar.
Hér má nefna ítalska fútúris-
mann, rússnesku framúrstefn-
una, ekspressjónismann, dadais-
mann og súrrealismann. Bene-
dikt bendir á að hugmyndir þess-
ara hreyfinga hafi lifað áfram.
„Það er ennþá verið að taka upp
hugmyndir frá þessum hópum
og nota í nýju samhengi. Til að
mynda uppákomur alls kyns sem
segja má að séu fyrstu gjörning-
arnir.“
Á uppákomunni í kvöld munu
leikarar Borgarleikhússins, þau
Gísli Örn Garðarson, Jóhanna
Vigdís Arnardóttir og Sóley Elí-
asdóttir, flytja ljóð og yfirlýsing-
ar sem tengjast framúrstefnu-
hreyfingunum.
„Yfirlýsingarnar voru nýtt
form á þessum tíma og það varð
í raun listform í sjálfu sér,“ seg-
ir Benedikt. Uppákoman er hald-
in í tilefni af útgáfu Lærdóms-
ritsins Yfirlýsingar. Evrópska
framúrstefnan sem er ný komin
út. Bókinni er ritstýrt af Vil-
hjálmi Árnasyni en Benedikt rit-
BENEDIKT HJARTARSON
„1. Við viljum lofsyngja ástina á háskanum, vanabundna orkuna og glannaskapinn. 2.
Hugrekkið, áræðnin og uppreisnin verða kjarni skáldskapar okkar. 3. Hingað til hafa
bókmenntirnar vegsamað íhugula kyrrstöðuna, algleymið og svefninn, en við viljum
upphefja hina vígdjörfu hreyfingu, brennandi svefnleysið, kappgönguna, heljarstökkið,
löðrunginn og hnefahöggi ..." segir m.a. í stefnuyfirlýsingu fútúrismans frá 1909.
ar innganga og þýðir yfirlýsing-
ar úr frönsku og þýsku. Áki
Guðni Karlsson þýðir úr ítölsku
og Árni Bergman úr rússnesku.
Auk ljóða og yfirlýsinga munu
gestir uppákomunnar fá tæki-
færi til að hlýða á tónlist frá sam-
tíma framúrstefnunnar auk þess
sem drykkir eftir uppskriftum
Marinettis, forsprakka ítölsku
fútúristanna, verða á boðstólum.
„Marinetti gaf úr bókina hið fút-
úríska eldhús árið 1932. Þeir létu
sér raunar fátt óviðkomandi
þessir listamenn og gáfu út
stefnuyfirlýsingar um hvað eina,
dans, tísku og matargerð."
sigridur@frettabiadid.is