Fréttablaðið - 03.10.2001, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 03.10.2001, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 3. október 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 15 Formúla 1: Volkswagen í Formúluna WILLIAMS BÍLL Bernd Pischtrieder, verðandi stjórnartormaður Volkswagen, átti þátt í því að BMW kom aftur inní Formúlu 1 keppnina en í samstarfi við Williams. kappakstur Þýski bílaframleiðand- inn Volkswagen gæti verið á leið í Formúlu 1 kappaksturinn. Bernd Pischetsrieder, sem tekur við stjórn fyrirtækisins af núverandi stjórn- arformanni, Ferdinand Piech, í apr- íl 2002, hefur gefið í skyn að fyrir- tækið ætli að taka þátt á kappakstr- inum vinsæla. Piech hefur alltaf viljað eyða þróunarpeningum í götubíla í stað kappakstursbíla, þetta hinsvegar gæti breyst þegar hann lætur af störfum því arftaki hans var sá sem kom BMW aftur í Formúluna, í sam- vinnu við Williams, en fyrirtækin hófu fimm ára samstarf árið 2000. „Það vita allir að ég hef verið að- dáandi Formúlu 1 í gegnum tíðina,“ sagði Pischetrieder en bætti við að Volkswagen tæki í fyrsta lagi þátt í Formúlunni árið 2004. „Jafnvel þótt við ákvæðum að vera með núna kæmum við ekki inní greinina fyrr en eftir þrjú til fjögur ár.“ Hans Gerd-Bode talsmaður Volkswagen sagði að fyrirtækið væri ekki búið að taka ákvörðun í málinu. „Það hefur ekkert verið ákveðið að svo stöddu. Svona vangaveltur koma upp með reglulegu millibili en það hefur ekkert breyst." ■ Mike Tyson: Nielsen í slæmum málum hnefaleikar Hnefaleikakappinn Mike Tyson mætir hinum danska Brian Nielsen í hringnum 13. októ- ber í Parken í Kaupmannahöfn og segist heimsmeistarinn fyrrver- andi vera í feiknaformi. „Ég er í frábæru formi. Nielsen er í slæm- um málurn," hafði sjónvarpsstöðin TV2 eftir honum. Þegar hann var spurður hvað andstæðingurinn þyrfti til að fara með sigur úr být- um svaraði hann að bragði. „Að ég höggvi af mér báða handleggina.“ ■ Rivaldo: Fúll út í Barcelona knattspyrna Rivaldo er aftur kom- inn til Brasilíu þar sem hann mun spila með landsliðinu gegn Chile, í undankeppni HM, þann 7. október. Áður en hann fór frá Spáni lét hann ókvæðisorð falla í garð stjórnar Barcelona og sakaði hana um að leggja óþarfa ferðalag á herðar sínar. Rivaldo hefur undanfarnar vikur dvalið í Brasilíu þar sem hann hefur gengist undir meðferð vegna hnémeiðsla. Hann var beð- inn um að koma til Spánar, til liðs við félaga sína, í leik gegn Real Sociedad sem hann og gerði. Þeg- ar hann kom loks til Spánar ákvað Carles Rexach, þjálfari, að nota hann ekki í leiknum. „Ég er reiður yfir því að hafa komið til Barcelona til að spila en hafa ekki fengið tækifæri til þess,“ sagði Rivaldo.“Þetta var erfitt ferðalag og það hefði átt að vera búið að ganga úr skugga um meiðsli mín þegar ég var í Brasil- íu.“ Rivaldo missir af næstu tveim- ur deildarleikjum með Barcelona, heima gegn Mallorca á miðviku- dag og á laugardag gegn Deporti- vo La Coruna. ■ RIVALDO Brasilíski snillingurinn hefur átt við meiðsli að stríða en er óðum að jafna sig. Hann mun líklega spila með landsliðinu gegn Chile í mikilvægum leik fyrir HM 2002. EM 2000: Youri Djorkaeff, Lilian Thuram skipta um hótel HÆTT KOMNIR Marcel Desailly, leikmenn franska landsliðsins þurftu að EM I fyrra vegna hættu á hryðjuverkum. rranska iandsiióio skotmark hryðju- verkamanna hryðjuverk Hollenska leyniþjón- ustan kom í veg fyrir fyrirhuguð hryðjuverk gegn franska lands- liðinu á meðan Evrópukeppnin í knattspyrnu fór fram í Hollandi og Belgíu í fyrra. Samkvæmt innanríkisráð- herra Hollands, Klaas de Vries, ætluðu alsírskir öfgamenn að fremja hryðjuverk á meðan keppninni stóð. Tíu manns voru handteknir í Frakklandi, Belgíu og í Hollandi eftir ábendingar frá hollensku leyniþjónustunni (BVD). Ráð- herrann sagði frá þessu á þinginu þar sem hann fjallaði um nauðsyn þess að búa yfir sterkri leyni- þjónustu í kjölfar hryðjuverk- anna í Bandaríkjunum. „Um tíu manns voru viðriðnir málið. Þau voru öll meðlimir í hóp sem klofnaði úr öfgahópnum Hinn vopnaði her íslams (GIA),“ sagði talsmaður leyniþjónustunn- ar. Hópurinn ætlaði að ráðast á franska landsliðið í fiskiþorpinu Ijmuiden. Þegar leyniþjónustan komst á snoðir um málið herti hún öryggisgæslu í kringum leik- rnenn og þurfti liðið m.a. að færa sig á annað hótel. En þrátt fyrir hættuna kom liðið sá og sigraði. Einn þriggja mannanna sem handtekinn var í Frakklandi gengst undir frekari rannsókn en þeir sem handteknir voru í Hollandi var sleppt stuttu síðar vegna ónægra sannnana. ■ Úrslitaleikur NFL: Super Bowl í New York? GIANT STADIUM Leikvangurinn I New York þar sem Giants og Jets spila heimaleiki sína verður kannski notaður undir Super Bowl leikinn. Leikvangurinn tekur um 77.000 áhorfendur í sæti. AMERÍSKUR FÓTBOLTI SvO gæti farið að úrslitaleikurinn í Ameríska fótboltanum, eða Super Bowl leikurinn eins og hann er gjarnan kallaður, verði haldinn í New York. Giants völlurinn í New York er meðal fjögurra leikvanga sem koma til greina ef leik- urinn verður fluttur af New Orleans vellinum, þar sem hann átti upphaflega að fara fram. „Það væri algjörlega hræðilegt," sagði Rudolph Giuliani, borgarstjóri New York. „Það á að setja lög sem sjá til þess að Giants og Jets (sem bæði eru lið frá New York) keppi alltaf til úrslita. Þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur af hin- um liðunum.“ Super Bowl leikurinn, sem er stærsti íþróttaviðburður Banda- ríkjanna, átti upphaflega að fara fram þann 27. janúar í New Or- leans. NFL samtökin hafa átt í erfiðleikum með að halda sig við þann dag þar sem fresta þurfti leikjum í kjöl- far hryðjuverkanna þann 11. september. Samtökin eru að reyna að fresta leiknum til 3. febrúar en sú dagsetning gæti valdið vandræðum þar sem hún skarast á við Al- þjóða bílasölu ráðstefnu sem áætluð var sama dag. Paul Tagliabue, framkvæmdar- stjóri NFL, segist bæði sjá kosti og galla við að halda keppnina í New York. „Það gæti hjálpað til við að endurvekja borgina verði leikurinn haldinn þar,“ sagði Tagli- abue. „Það eru samt mörg vanda- mál sem fylgja sem snúa meðal annars að öryggismálum.“ ■ Leicester Gity: Rætt við Redknapp knattspyrna Harry Red- erfitt verk fyrir hönd- knapp, fyrrverandi fram- um,“ sagði Redknapp. kvæmdastjóri West Ham Sm '*j?SI|l* „Liðið er í neðsta sæti og og núverandi stjóri HriittfcáBH veðmangarar spá því Portsmouth, mun ræða H falli. Þá held ég að fjár- við forráðamenn Leicest- jBH hagsstaðan sé ekki sterk. er í vikunni um að taka við Það yrði erfitt fyrir mig framkvæmdastjórastöð- I að ^aia ^ra P°rtsmouth unni, en Peter Taylor var þyí mér líkar vel hérna og rekinn í fyrradag. Einnig harry ®g hef fulla trú á því að er talið að Leicester muni redknapp liðið hafi góða möguleika ræða við George Graham. á að komast í Urvals- „Sá sem tekur við af Taylor á deildina." ■ Öll almenn innrömmunar þjónusta. Speglar. Gjafavara. Vönduð vinna. Persónuleg þjónusta. vill fá coniaks litaðan grunn Hermann Beck. Lóuhólum 2-6 Sími 567-5300

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.