Fréttablaðið - 09.11.2001, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 09.11.2001, Blaðsíða 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 9. nóvember 2001 FÖSTUDAGUR Afganskur leiðtogi biður um aðstoð: Enga hryðju- verkamenn STRÍÐ GEGN HRYÐJUVERKUM Hamid Karzai, afganskur leiðtogi sem er andvígur talibanastjórninni, hef- ur óskað eftir erlendri aðstoð til að losa landið við „erlenda hryðju- verkamenn" sem barist hafa við hlið talibana. Segist hann geta sigrað talibana án erlendrar að- stoðar en þurfi hins vegar aðstoð til að hjálpa landinu að „öðlast sjálfstæði að nýju“ frá aröbum og öðrum útlendingum. f samtali við BBC sagðist hann hafa komið til suðurhluta Afganistans fyrir þónokkrum vikum síðan og sé á örugggum stað. ■ Ríkisstyrkt menning: Aðskilja ríki og menningu menning Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Leikfélags íslands, sagði á fundi Heimdallar um ríkis- rekna menningu að enginn ætti heimtingu á styrkjum frá hinu op- inbera til að standa undir menning- arstarfsemi. Ef ríki og sveitarfé- lög ætluðu að styðja við menningu ætti að skilja á milli hins opinbera sem rekstraraðila og greiðenda. Þannig verji hið opinbera ákveðn- um upphæðum í sérstök menning- arverkefni á hverju ári en einkaað- ilar gerðu það sem þeir gera best, standa fyrir menningunni. Haukur Þór Hauksson, við- skiptafræðingur, tók undir orð Magnúsar urn að enginn ætti heimtingu á styrkjum frá hinu op- inbera og við það ætti að sitja. Með ríkisstyrktri menningu væri verið að neyslustýra menningarefni af mönnum sem þættust vita hvað væri menning og hvað ekki. Ef rík- ið styrkti ekki menningu yrðu hún fjölbreyttari, kraftmeiri og frum- legri. Sigfús Ólafsson, formaður ungra Vinstri grænna, vildi digra styrki til menningarmála og að MAGNÚS GEIR ÞÓRÐARSON Fylgjandi einkarekstri á flestum sviðum. listafólk, í öllum listgreinum, fengi að sinna list sinni óháð lögmálum markaðarins. Það tryggði fjöl- breytni og frelsi í listsköpun. ■ Fj ármál aráðuney tið: Varast sér- tækar að- gerðir efnahagslíf Vefrit fjármálaráðu- neytisins sagði í gær að það væri tímaskekkja að horfa til ríkis- valdsins sem allsherjar bjarg- vættar til að koma hjólum at- vinnulífsins af stað aftur. Þetta hafi verið vinsæl hugmynd á fyrri part síðustu aldar sem hefði runnið sitt skeið. Þá var vinsælt að auka ríkisútgjöld og vera með sértæk- ar aðgerðir, sem áttu að teljast hvetjandi fyrir efnahagslífið. Vefritið segir mikilvægt að stjórnvöld haldi ró sinni og forðist aðgerðir sem feli í sér sértækar aðgerðir og hafi nei- kvæð áhrif á framvindu efnahags- mála til lengri tíma litið. „Hér skiptir sköpum að öll um- gjörð efnahagslífsins hefur gjör- breyst á undanförnum árum, ekki aðeins hér á landi heldur víðast hvar erlendis. í stað miðstýrðs hagkerfis, hafta og forsjárhyggju er komið frjálst markaðshagkerfi. Jafnframt hefur aukin alþjóða- væðing grafið undan tollamúrum og hringamyndunum í alþjóðavið- skiptum," segir fjármálaráðu- neytið. ■ GEIR H. HAARDE fjármálaráðherra Milljóna- ferð til Grænlands Ferð Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, ásamt föruneyti til Grænlands í sumarlok kostaði eina milljón króna. Flogið var með flugmálastjórnarvélinni og kostaði það eitt og sér 626 þúsund krónur. Aðstoðarmaður Val- gerðar segir að þannig hafi fjórir dagar og verulegt fé sparast. stjórnsýsla Iðnaðarráðuneytið greiddi tæpar 626 þúsund krónur fyrir afnot af flugvél Flug- málastjórnar í fjögurra daga ferð Valgerðar Sverr- isdóttir ráðherra til Græn- lands í lok ágúst. Að við- bættum dagpeningum má gera ráð fyrir að ferða- kostnaður einn og sér hafi þannig alls kostaö ráðuneyt- ið yfir eina milljón króna. Tilefni ferðar Valgerðar var þríþætt samkvæmt upplýsingum frá aðstoðarmanni hennar, Páli Magnússyni. í fyrsta lagi var um að ræða fund orkuráð- ---0--- Með Valgerði í för voru eigin- maður henn- ar, ráðuneytis- stjóri, skrif- stofustjóri og deildarstjóri iðnaðarráðu- neytis. —«— herra Norðurlanda, þá ráð- stefnu norrænu ráðherra- nefndarinnar; „Is, Klima, vatten" og loks norrænan embættismannafund í Illu- lisat. Með Valgerði í för voru eiginmaður hennar, Arvid Kro, Þorgeir Örlygsson ráðuneytisstjóri, Helgi Bjarnason skrifstofustjóri og Kristmundur Halldórs- son deildarstjóri. Páll segir að með því að nota flugmálastjórnarvélin hafi bæði sparast tími og peningar. Annar mögulegur ferðamáti hafi verið að fljúga til Kaupmannahafnar, gista þar eina nótt en fljúga síðan með SAS til Syðri Straumfjarðar og þaðan með minni vél til Illulisat. Síðan hefði þyrft að fara sömu leið til baka og gista í Kaupmanna- höfn. Fargjald hefði orðið veru- lega hærra og með því móti hefði ferðin tekið átta daga í stað fjög- urra og dvalarkostnaður þeim mun hærri. Að sögn Páls nam kostnaðurinn vegna flugmálastjórnarvélarinnar tæpum 626 þúsund krónum, eins og áður segir, eða rúmum 125 þús- VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Tilefni ferðar hennar í ágústlok var þríþætt. Hún sat fund orkuráðherra Norðurlanda, ráðstefnu norrænu ráðherranefndarinnar og norrænan embættismannafund. und krónum á hvern farþega. Að auki var greiddur venjulegur dvalarkostnaður samkvæmt regl- um ferðakostnaðarnefndar í fjóra daga. Miðað við nefndar reglur ferða- kostnaðarnefndar hafa dagpen- ingagreiðslur vegna Grænlands- ferðar iðnaðarráðherra og föru- neytis numið rúmum 400 þúsund krónum og ferðin því í heild kost- að að minnsta kosti eina milljón króna. gar@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.