Fréttablaðið - 09.11.2001, Side 18

Fréttablaðið - 09.11.2001, Side 18
A HVAÐA PLÖTU ERTU AD HLUSTA? Tóndaufir flutningar „Ég er ekki að hlusta mikið á tónlist þessa dagannla, þar sem ég stend i flutningum. En síðast hlustaði ég nú á „Umhverfis jörð- ina á 40 mínútum" með Halla og Ladda. Mæli með henni." Þórhallur Sigurðsson leikari FJAWDMAflUR FÓLKSINS e. Henrik Ibsen I leikgerð Arthurs Miller Frumsýning Fös. 9. nóv. kl. 20 UPPSELT Lau. 17. nóv. kl. 20LAUSSÆTI BLlÐFINNUR e. Þorvald Þoisteinsson_________ Lau.10. nóv.kl. 14:00 ÖRFÁSÆTI Sun. 11. nóv.kl. 14:00 ÖRFÁSÆTI Uu. 17. nóv. kl. 14:00 N0KKUR SÆTI Sun. 18. nóv. kl. 14:00 N0KKUR SÆTI KRISTNIHALD UHDIR JÖKLI e. Halldór Laxness Lau 10. nóv. kl. 20 - UPPSELT Sun. 18. nóv. kl. 20 - N0KKUR SÆTI Lau. 24. nóv. kl. 20-LAUSSÆTI MEÐ VlFlfl ILÚKUWUM e. Rav Cooney Sun. 11. nóv. kl. 20 - N0KKUR SÆTI Fim. 15. nóv. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Fös. 16. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI Fös. 23. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI___________ Miðasalan er opin kl. 13 -18 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga. Simi miðasölu opnar kl. 10 virka dag. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is www.borgarleikhus.is ISLEWSKI DANSFLOKKURIWW__________________________ Haust 2001, þrjú ný verk. ,Da", ettir Láw Stetánsdóttor. „Milli heirna', ettir Katrinu Hall. „Ptan B", eftir Úlöfu Ingólfsdótlur Fös. 9. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI Sun. 11. nóv.kl. 20.00- LAUSSÆTI BEÐIÐ EFTIR G0D0T e. Samuel Becketl______________ Lau 10. nóv. kl. 20 LAUS SÆTI Sun. 18. nóv. kl. 20 LAUS SÆTI ÞRIÐJA HÆÐIN PlKUSÖGUR e. Eva Ensler Lau. 10. nóv. kl. 20 UPPSELT Sun. 11. nóv. kl. 20 UPPSELT Fim. 15. nóv. kl. 20 UPPSELT Fös.16. nóv. kl. 20 ÖRFÁSÆTI Fös. 23.n6v.kl.20 ÖRFÁSÆTI IITLA SVIÐIÐ DAUÐADANSINN eftir Auqust Strindberg_ isamvinnu við Strindberghópinn I kvöld kl. 20 N0KKUR SÆTI Lau. 10. nóv. kl 20 LAUS SÆTI MIÐASALA 568 8000 15. sýn. fös 9. nóv. kl. 20.00-LAUS SÆTI 16. sýn. sun 11. nóv. kl. 17.00-ÖRFÁ SÆTI 17. sýn. fös 16. nóv. kl. 20.00- LAUS SÆTI 18. sýn. lau 17. nóv. kl. 19.00-LAUSSÆTI SÍÐUSTU SÝNINGAR Ath. breytilegan sýningartíma Miðasala opin kl. 15-19 alla daga nema sunnudaga og fram aö sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-19 virka daga. Sími miðasölu: 5114200 9. nóvember 2001 FÖSTUDAGUR Dr. Hannes Jónsson: Sendiherra á sagnabekk nýjar bækur Út er komin bókin Sendiherra á sagnabekk, heims- reisa við hagsmunagaeslu, eftir dr. Hannes Jónsson. í þessu síð- ara bindi endurminninga af 35 ára starfi í utanríkisþjónustunni skýrir höfundur frá kynnum sín- um af innlendum og erlendum áhrifa- og valdamönnum, þegar hann var sendiherra hjá átján ríkjum og fjórum fjölþjóða- og alþjóðastofnunum. Reifuð er at- burðarás mikilvægra alþjóða- mála, sem efst voru á baugi á tímabilinu. Útgefandi er Muninn bókaútgáfa. ■ BORGARLEIKHÚSIÐ NYJA SVIÐIÐ STORA SVIDIÐ Ævisaga Bjargar G. Þor- láksson: Brautryðj- andi á meðal íslenskra kvenna nýjar bækur Bókin Björg - ævisaga Bjargar C. Þorláksson eftir Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur er komin út hjá JPV útgáfu. Björg C. Þorláksson fæddist árið 1874 í Vesturhópshólum í Húna- þingi. Hún braust til mennta af ótrú- legum dugnaði og varð fyrsta ís- lenska konan til að Ijúka doktors- prófi. Sögu þessa brautryðjanda meðal íslenskra kvenna og framlag hennar á sviðum vísinda og fræða hafa fáir þekkt fram til þessa. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir hefur rannsakað ævi og verk Bjarg- ar um árabil og sviptir hér hulunni af óvenjulegri konu sem fór sínar eigin leiðir og trúði á mátt manna til að skapa sig sjálfir. Sagan segir frá sveitastúlku sem komst á kvenna- skóla og þaðan til Kaupmannahafn- ar þar sem hún tók stúdentspróf og fór í háskóla. Hún segir frá hjóna- bandi hennar og Sigfúsar Blöndal og þætti hennar í hinu mikla stór- virki, íslensk-danskri orðabók. Þá er greint frá þátttöku hennar í kvennabaráttunni. Þetta er saga konu sem skóp sig sjálf í trássi við viðteknar hug- myndir um hlutverk kvenna, hetju- og harmsaga brautryðjanda. ■ RITÞING Stdnunnar Sigurðardóttur Laugardaginn 10. nóvember 2001 kl. 13.30 Stjórnandi: Kristján B. Jónasson Spyrlar: Sjón og Vigdís Finnbogadóttir AÐGANGUR ÓKEYPIS 6 ittl Msnningarmiðstöðin Oerðuberg Má, monn| www.gerduberg.is FÖSTUDAGURINN 9. NÖVEMBER UPPÁKOMUR__________________________ 20.30 Bókaútgáfan Forlagið heldur ár- legt festíval sitt í Iðnó. Forlagshöf- undar lesa úr væntanlegum og útkomnum jólabókum og al- mennt stuð verður ríkjandi. Þáttakendur eru: Jón Atli Jónas- son - Brotinn taktur, Stefán Máni - Hótel Kalifornía, Magnús Guð- mundsson - Sigurvegarinn, Guð- bergur Bergsson - Anna. Einnig mun sá einstaki viðburður verða að Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni, mun rekja íslenska rokk- sögu á aðeins kortéri - með tón- dæmum! Tónkokkar verða Gull- foss og Geysir. Sérstakur gestur er Oddný Sturludóttir auk leynig- esta en kynnir er Kristján B. Jón- asson. Húsið opnar klukkan 19.30. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. FYRIRLESTRAR_______________________ 12.30 Eggert Gunnarsson, dýralæknir að Keldum, flytur erindið Miltis- bruni á bókasafni Keldna. Allir velkomnir. TÓNLIST____________________________ 20.00 í Bæjarbíói í Hafnarfirði verða haldnir tónleikar fyrir unga fólkið. Þar munu m.a. hafnfirskar ung- lingahljómsveitir stiga sín fyrstu spor. Einnig koma Myrk, Changer og Sólstafir fram. 24.00 Doddi litli verður í búrinu á Club 22 i nótt og segist hann ætla að vera í eitruðum gír til morguns. Frítt er inn til klukkan 1 og fá handhafar stúdentaskírteina frítt inn alla nóttina. SÝNINGAR___________________________ í dag milli kl. 13 og 17 er opið hús í Al- þýðuhúsinu. Þar er myndlistarsýning ungra listamanna. Þrjár fyrrum skólasystur minnast skóla- daga sinna í Myndlista- og handíða- skóla íslands 1964-1966 með sýningu, "Those where the Days", í Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5, Reykjavík. Sýnd eru grafíkverk, glerlíst og skart Sýningin stendur til 21. nóv og er opin á verslunartíma. MYNDLIST___________________________ Megas í Nýlistasafninu. Til sýnis er sjaldséð myndlist Megasar í ýmsum miðlum og frá ýmsum tímum. Sýningin stendur til 30. nóvember. Á morgun verður haldinn viðburðurinn Orð handa Megasi. Þeir sem leggja til orð eru: Birna Þórðardóttir, Gunnar Hersveinn, Jón Proppé, Kristín Ómarsdóttir, Óttar Guðmundsson, Skafti Þ. Halldórsson, Vigdís Grímsdóttir og Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir. Fjallað verður m.a. um tengsl Megasar við aðra höfunda, mynd- list Megasar, og viðtökur hans og verka hans á Islandi, o.fl. Nánari upplýsingar og uppfærða dagskrá er hægt að nálg- ast á kistan.is. Fundurinn er öllum op- inn og aðgangur ókeypis. Sara Björnsdóttir myndlistarmaður er með sýningu í Gallerí Skugga. Sýningin ber heitið Fljúgandi diskar og önnur undursamleg verk. Til sýnis eru skúlpt- úrar, lágmyndir, myndbands- og hljóð- verk, og eru síðastnefndu verkin unnin sérstaklega út frá rými gallerísins. Sýn- ingin stendur til 25.nóvember. Galleríið er opið frá 13 til 17. Myndlistarsýning á vegum Alþjóða Heil- brigðisstofnuninnar lýkur eftir helgi í Hafnarborg. 20 framsæknir listamenn hvetja fólk til að hætta reykingum. Sýning á verkum Guðmundar Björg- vinssonar stendur yfir í Gallerí Reykja- vík, Skólavörðustíg 16. Guðmundur sýn- ir 17 akrílmálverk sem eru öll máluð í expressíonískum stíl á þessu ári. Myndefnið er maðurinn. Sýningin er opin mánudaga til föstudaga kl 13 til 18 og laugardaga 13 til 16 og henni lýkur 21. nóvember. Vantar fleiri eins og Stokkmann lækni I kvöld frumsýnir Borgarleikhúsið Fjandmann fólksins eftir Henrik Ibsen í nýrri þýðingu Sigurðar Pálssonar. Leikstjóri er María Kristjánsdóttir en auk frumsýningar í kvöld er hún tilnefnd til Eddu- verðlauna á sunnudag fyrir myndina „Þá verður líklegast farin af mér feimnin“. MARÍA KRISTJÁNSDÓTTIR LEIKSTJÓRI Hefur aldrei séð uppsetningu á verkinu. Sá einu sinni kvikmyndaaðlögun með Steve McQueen í aðalhlutverki. „Það var amerísk sýn á Norðmenn, allir með skotthúfur." leikhús Fjandmaöur fólksins, eða En folkefiende, segir frá Tómasi Stokkmann, sem er læknir heilsubaða í smábæ í Noregi. Böðin, Blásteinalindir, eru hin nýja líftaug bæjarins og eiga að koma honum á kortið. Læknirinn uppgötvar að verksmiðjuúr- gangur spillir þeim og krefst úr- bóta. Hann er maður sannleikans en er úthrópaður og verður fjandmaður fólksins. Verkið átti upprunalega að frumsýna í febrúar en var frestað þegar Ingvar Sigurðs- son, sem leikur Stokkmann lækni, fékk hlutverk í myndinni K-19: The Widowmaker með Harrison Ford. „Við vorum nán- ast tilbúin og frystum allt. Núna erum við búin að æfa í fimm vik- ur og gengur vel,“ segir María Kristjánsdóttir leikstjóri. Hún segir það ekki hafa verið áfall þegar Ingvar fór. „Það var að sjálfsögðu leiðinlegt en ekki áfall því öll samglöddumst við Ingyari." í sýningunni er farin óhefð- bundin leið að verkinu. Það er mikið af beinum tilvísunum í okkar tíma í því og María segir að því miður höfum við ekki enn leyst mörg þeirra vandamála, sem Ibsen glímir þar við. „Það ættu margir að hafa áhuga á þessu verki. í því eru aðkallandi siðfræðispurningar. Ég held að það væri betur komið fyrir okk- ur ef það væru fleiri eins og Stokkmann læknir. Á öllum tímum hefur það verið erfitt að vera hugrakkur og það er það enn.“ Aðspurð um hverjar Blá- steinalindir dagsins í dag eru segir María þær geta verið Kárahnjúkavirkjun. „Þá væri Ólafur F. Magnússon Stokkmann læknir.“ María hefur verið leikstjóri í þrjátíu ár og unnið með öllum atvinnuleikhúsum landsins. Hún segir margt hafa breyst á þess- um tíma. „Leikarar eru sjálf- stæðari í vinnubrögðum. Þetta er að hluta til vegna breytts þjóðfélags. Unga fólkið í dag er opnara og öruggara með sig en við vorum,“ segir María. Hún var leiklistastjóri Ríkis- útvarpsins í tíu ár en hefur að undanförnu sinnt verkefnum í lausamennsku. Fyrir einu ári síðan var sýnd í Sjónvarpinu myndin „Þá verður líklegast far- in af mér feimnin“, sem María skrifaði og leikstýrði. Myndin er tilnefnd til Eddurverðlaunanna á sunnudaginn sem besta sjón- varpsverk og Halldóra Geir- harðsdóttur, sem besta leikkona í aðalhlutverki. Halldóra leikur einnig konu Stokkmanns læknis. „Það kom mér á óvart að vera til- nefnd en ég geri ekki ráð fyrir því að vinna á móti Fóstbræðr- um. Ég vona að Halldóra vinni. Hún á það svo sannarlega skil- ið.“ halldor@frettabladid.is Guðbjörg Hákonardóttir - Gugga, hefur opnað myndlistarsýningu í Listasal Man, Skólauörðustíg 14. Síðasta sýningarhelgi. Sýning á verkum Önnu Eyjólfsdóttur í báðum sölum Listasafns ASÍ. Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 14.00 -18.00. Kristfn Reynisdóttir sýnir verk f Þjóðar- bókhlöðunni. Þetta er fjórða sýningin í sýningaröðinni Fellíngar sem er sam- starfsverkefni Kvennasögusafnsins, Landsbókasafns (slands - Háskólabóka- safns og 13 starfandi myndlistarkvenna. Einkasýningu Kristjáns Guðmunds- sonar í Listasafni Reykjavíkur, Kjar- valsstöðum lýkur á sunnudag. Sýningin er opin milli klukkan 10 og 17. Svipir iands og sagna er yfirskrift sýn- ingar á verkum Ásmundar Sveinssonar í Listasafni Reykjavíkur, Ásmundar- safni. Á sýningunni eru verk sem span- na allan feril listamannsins. Safnið er opið daglega kl. 10 til 16. BÆKUR Ljósburður Gyrðis Þegar best lætur er varla nokkur íslenskur höfundur sem skrifar fallegri og einfald- ari texta en Gyrðir Elíasson. Hann er mesti listmálari ritlist- arinnar nú um stundir. Nýja bókin hans, Næturluktin, er ekki löng, enda engin ástæða til. Svona texta á maður að lesa hægt og njóta. Ég finn stundum bæði bragð og lykt þegar ég les bernskulýsingar hans og heimi þorps og sveitar á sjöunda ára- tugnum. Myndirnar eru dregn- ar skýrum einföldum dráttum sem tala beint til hugarmynda ímyndar og minninga. Næturluktin er sjálfstætt fram- hald Gangandi íkorna, þar sem ■I GYRÐIR ELÍASSON: Næturluktin heiminum er lýst með augum Sigmars, lítils drengs í sveit, seint á sjöunda áratugnum. Veruleikinn er kaldur ytra sem innra og leiðin út er lítill tálgað- ur íkorni. Þegar slegist er í för með íkornanum er haldið á vit draumanna. Eðli þessara drau- ma er ekki stýrð framvinda dagdraumanna, heldur fremur ólíkindadraumar órólegs nætur- svefns. Það er engin sérstök ástæða að leita merkingar í draumnum. Hann bara er og maður á að njóta þess að drey- ma. Svo er maður vakinn á ný. Hafliði Helgason

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.