Fréttablaðið - 09.11.2001, Side 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
9. nóvember 2001 FÖSTUDAGUR
Játadi loks að
vera þunguð
Elizabeth Hurley játaði I gær að hún ætti
von á barni I aprll, með kærastanum sln-
um Stephen Bing, en blaðamenn hafa
setið um fyrirsætuna undanfarið þar sem
hún þótti venju fremur framstæð.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hvenær rýfur Guðmundur
Árni Stefánsson þögnina?
spyrja áhuga-
menn um stjórn-
mál sjálfa sig
þessa dagana og
vísa þá til þess að
nú hljóti að líða
að því að eðal-
kratinn úr Hafn-
arfirði fylgi eftir
hálfkveðnum vís-
um í fjölmiðlum um það að aldrei
skyldi segja aldrei um möguleik-
ana á því að hann bjóði sig fram
gegn Össuri Skarphéðinssyni til
formennsku í Samfylkingu á
flokksþinginu um næstu helgi.
Þótt aðeins sé vika til stefnu hef-
ur lítið farið því
I að menn ræöi op-
| inberlega um að
Guðmundur Árni
L t sé einmitt sá
& • | Móses sem Sam-
X J fylkingin þarf til
m að vísa veginn út
úr hinni pólitísku
eyðimörk. Það er
reyndar athyglisvert að Hafnar-
fjarðarkratar séu að gera sig lík-
lega til formennsku í flokknum
enn á ný. Menn muna jú að þegar
össur tók við formennsku á sín-
um tíma var það eftir að hafa
gjörsigðað hafnfirska eðal-
kratann Tryggva Harðarson.
Játaði bankarán á sviði og uppskar 87 ára fangelsi:
Ahorfendur í salnum hlógu sig máttlausa
játning Rúmlega fertugur Banda-
ríkjamaður, Glenn S. Matthews,
tróð upp í janúar síðastliðnum á
skemmtistað í bæ sem heitir Macon
og er skammt suður af Atlanta í Ge-
orgíu.
Á sviðinu sagði hann áheyrend-
um í salnum frá því, að það væri
hann sem hefði framið nokkur
bankarán, sem þá höfðu vakið at-
hygli. Þetta þótti salnum gífurlega
fyndið og hlátrasköllunum ætlaði
aldrei að linna.
Eigandi skemmtistaðarins, sem
heitir Comedy Club, er hins vegar
fyrrverandi lögreglumaður. Hon-
um þóttu yfirlýsingar skemmti-
kraftsins nógu athyglisverðar til
þess að láta lögregluna vita.
Matthews var handtekinn og í
ágúst siðastliðnum komst kviðdóm-
ur að þeirri niðurstöðu að hann
væri sekur um þrjú bankarán með
riffil að vopni á tímabilinu frá des-
ember 1999 þangað til í janúar
2001.
Nú á miðvikudaginn var Matt-
hews svo dæmdur í rúmlega 87 ára
fangelsi, eða nánar tiltekið ná-
kvæmlega 1047 mánuði. Auk þess
verður hann að endurgreiða 32.000
dollara. ■
BANDARfSKT FANGELSI
Bankaræningl I Bandaríkjunum uppskar I
tyrstu mikinn hlátur, en síðan langa fanga-
vist eftir að hafa játað á sig glæpi slna.
Gestaboð í einangruðu húsi
Á morgun mætir Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur til Ritþings í Gerðubergi. Hún gæti
varla verið spenntari, enda ærin ástæða til. Spyrlarnir Vígdís Finnbogadóttir og Sjón hafa
nefnilega kafað djúpt ofan í hugardjúp hennar síðustu daga og eflaust afar forvitin að fá nán-
ari útskýringu á þeim hlutum sem þar er að finna.
ÞINGMENN
Vigdls Finnbogadóttir, Sjón, Steinunn og Kristján B. Jónasson stjórnandi undirbúa
vinalega þingmennsku á morgun.
BÓKMENNTIR Á Ritþinginu gefst
Steinunni einstakt tækifæri til
þess að greina hvaða áhrif verk
hennar hafa haft á lesendur. Hún
þekkir vel hvernig slík Ritþing
fara fram, enda var hún sjálf í
spyrlahlutverki þegar Þórarinn
Eldjárn var boðaður á sitt. „Mér
finnst það stórkostlegt að sjá hver-
su frábært fólk veröur í því að
spyrja mig, og líka gaman að fá að
sjá Vígdísi í nýju hlutverki," segir
hún og ljómar. Vigdísi kynntist
hún fyrst er húr. sótti heim til
hennar aukakennslu í frönsku,
sextán ára að aldri. Vigdís segist
hafa fylgst gaumgæfilega með
nemanda sínum síðan þá. „Bækur
hafa alltaf verið stór hluti af henn-
ar lífi og það er mikill heiður fyrir
mig að hafa hana.“ Þingið hefst kl.
13:30 og farið verður yfir útgáfu-
feril Steinunnar frá upphafi. Vig-
dís og Sjón munu staldra við á
nokkrum vettvangsstöðum og
svala forvitni sinni um hvað hafi
verið skáldinu hugleikið hverju
sinni. „Ég hallast að því sem Milan
Kundera hefur sagt að góð skáld-
saga sé gáfaðari en höfundurinn.
Ég vona að ég skrifi ekki vondar
skáldsögur, og þess vegna finnst
mér svolítið vera til í þessu. Þau
eiga örugglega eftir að spyrja mig
um fullt af hlutum sem ég hef
aldrei íhugað. Ég er inn í bókinni,
en þau koma utan frá. Það er mjög
gaman, þegar maður býr í svona
lokuðu húsi, þegar einhver sér-
stakur kemur og bankar. Maður
opnar allar dyr, býður fólk vel-
komið og heldur partí. Þetta er
eins og gestaboð í einangruðu
húsi.“ Það er vel við hæfi að ný
bók Steinunnar, Jöklaleikhúsið,
kemur út á morgun. Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir leikkona
mun lesa valinn kafla úr bókinni.
Einnig verður gestum boðið upp á
ljósmyndasýningu sem ef til vill
hefði fyrst átt að líta dagsins ljós
fyrir 14 árum síðan. „Þetta eru
liósmyndir eftir Pál Stefánsson.
Ég, Páll og dóttir mín fórum einu
sinni saman í ferðalag. Ég gaf svo
út ljóðabókina „Kartöfluprinsess-
an“ árið ‘87 og í henni er ljóðabálk-
ur sem heitir „Á suðurleið með
myndasmið og stelpu" sem fjallar
um þessa ferð. Þegar bókin kom út
sagði Páll mér að hann ætti enn all-
ar myndirnar úr ferðalaginu. Ég
hef alltaf munað eftir þessu og
alltaf langað til að sýna þær.“ Hér
skapast því einstakt tækifæri að
líta neistann, sem teygði eldtungur
sínar svo í gegnum ljóð hennar,
augum. biggi@frettabladid.is
Merkið VARNIR GEGN VÁGESTUM er tákn þess að
verslun hafl gert ótak I vörnum gegn ránum og hnupli.
Samtök vtrslunarogþjónustu IÖGREGLAN I REYKJAVÍK
| FRÉTTIR AF FÓLKI |
ess er nú beðið í ofvæni að
Bjarki Gunnlaugsson, knatt-
spyrnumaðurinn knái, ljúki
samningum sín-
um við breskt
tryggingafélag,
sem skuldar hon-
um bætur vegna
þess að erfið
meiðsli i mjöðm
hafa bundið allt
of skjótan endi á
keppnisferilinn
hjá Preston North End. Hverjir
eru að bíða? Jú, KR-ingar, seni
telja ljóst að um leið og niður-
staða er fengin í tryggingamálin
muni Bjarki lýsa yfir félagsskipt-
um í KR. Þar var hann lykilmað-
ur árið 1999 í einu besta knatt-
spyrnuliði sem leikið hefur hér á
landi undanfarin ár. Bjarki var
afskaplega vellátinn félagi af
þeim Vesturbæingum og hugsa
þeir sér gott til glóðarinnar að fá
hann til liðs við sig aftur. Menn
minnast þess að eftir að meiðsli
bundu endi á atvinnumannaferil
Sigurðar Jónssonar hjá Arsenal
og Sheffield Wednesday á sínum
tíma, fékk hann uppgert hjá
tryggingunum, kom heim og
blómstraði með áhugamönnunum
á Akranesi, áður en hann fór aft-
ur utan og lék í Skotlandi. Svip-
aða leið vonast KR-ingar til að
Bjarki eigi fyrir höndum í Vest-
urbænum og þykjast vissir um að
ferill þessa snillings sé hvergi
nærri á enda.