Fréttablaðið - 19.11.2001, Qupperneq 2
J
KJÖRKASSINN
SÁTTIR VIÐ EVRÓPU
Nærri tveir af hverjum
þremur þátttakendum í
atkvæðagreiðslunni
telja það rétt hjá Sam-
fylkingunni að leggja
áherslu á Evrópumálin.
Er rétt hjá Samfylkingunni að
setja Evrópumál á oddinn?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Réttir Samfylkingin úr kútnum?
Farðu inn á visi.is og segðu
þína skoðun
_ :
m
BJÖRCUNARSVEITAMENN AÐ
ÆFINGU Á JÖKLI
Banaslys:
Lést eftir
fall í djúpa
sprungu
banaslys Lárus Hjalti Ásmunds-
son lést eftir að hann féll í um 40
metra djúpa sprungu á Eyjafjalla-
jökli um klukkan fimm á laugar-
dag. Lárus heitinn var ásamt fé-
lögum sínum i björgunarsveit í
Garðabæ á æfingu á Gígjökli, sem
er hluti Eyjafjallajökuls. Slysið
varð eftir að æfingu lauk og þegar
fólkið hélt niður af jöklinum.
Myrkur var að skella á og gerði
það allt starf erfiðara. Eftir að
Lárus féll í sprunguna var sigið
niður til hans. Talið er að Lárus-
hafi látist samstundis eða mjög
snemma eftir fallið. Óskað var
eftir aðstoð björgunarsveita. Val-
geir Elíasson, hjá Slysvarnafélag-
inu Landsbjörgu, segir að slysið
hafi haft djúp áhrif á félaga
Lárusar og fengu allir áfallahjálp.
Gígjökull er erfiður yfirferðar,
en þar eru margar sprungur. Eftir
að kall um aðstoð barst fóru um 70
björgunarsveitamenn víðs vegar
að til aðstoðar. ■
IlögreglufréttirI
Lögreglan í Reykjavík gaf öku-
manni stöðvunarmerki á Suð-
urlandsvegi aðfaranótt sunnu-
dagsins. Sinnti ökumaður því
engu og reyndi flótta. Hann ók í
átt að Elliðavatni, en missti
stjórn á bifreiðinni með þeim af-
leiðingum að hún fór út af vegin-
um og á hvolf. Ökumaðurinn
slapp betur en á horfðist og var
handtekinn, grunaður um ölvun-
arakstur.
Brotist var inn í skála í Skála-
felli og þaðan stolið sjón-
varpstæki og einhverju öðru
smálegu. Þá kom vegfarandi að
manni sem var að fara inn um op-
inn glugga á veitingastað í Lækj-
argötu. Sá var handtekinn og
fékk að gista fangageymslur.
Einnig var brotist inn í bíl í Selja-
hverfi og tókst ekki að hafa upp á
þeim þrjóti.
FRETTABLAÐIÐ
19. nóvemer 2001 MANUDAGUA
Landsfundur Samfylkingarinnar:
Eigum að fara varlega í Evrópumálum
LANDSFUNDUR SAMFYLKINGARINNAR
„Stefna flokksins hefur mjög
breiða skírskotun og höfðar til
meirihluta þjóðarinnar og ljóst
er að stefna flokksins liggur vin-
stra megin við miðju í íslenskum
stjórnmálum, miðað við stefnu-
mið og áherslur sem samþykktar
voru á landsfundinum," segir Jó-
hanna Sigurðardóttir,Jjingmaður
Samfylkingarinnar. „Eg er mjög
ánægð með þennan fund, þar
ríkti mjög mikil eindregni og
samstaða. Það sem ég kann helst
að meta af þessum fundi eru lýð-
ræðismálin, velferðarmálin og
þær áherslur sem við leggjum í
skattamálum." Varðandi umsókn
um aðild að Evrópusambandinu
segir Jóhanna að hún sé ekki
sammála þeim rökum sem sett
hafi verið fram í Evrópuskýrsl-
unni og ekki sannfærð um það að
kostirnir séu fleiri en gallarnir,
eins og formaður Samfylkingar-
innar hafi haldið fram. „Vægi
smáríkja í ákvarðanatöku Evr-
ópusambandsins á eftir að breyt-
ast auk þess sem að styrkjakerf-
ið gæti breyst með innkomu
fleiri þjóða. Auk þess er verið að
breyta sjávarútvegsstefnunni.
Ég tel því að við eigum að fara
varlega í sakirnar og skoða nið-
urstöður þessara mála áður en
ákvörðun verði tekin. ■
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
Ekki sammála þeim rökum sem sett hafi verið fram í Evrópuskýrslunni um umsókn um
aðild að Evrópubandalaginu, og ekki sannfærð um það að kostirnir séu fleiri en gallarnir,
eins og formaður Samfylkingarinnar hafi haldið fram
Enn þrengist um
Osama bin Laden
Ráðamenn bjartsýnir á að hann verði handtekinn fljótlega.
„Við munum ná honum,“ segir Powell.
WASHINGTON, BANGI, PESHAWAR, AP
Breskir og bandarískir embættis-
menn eru bjartsýnir á að Osama
bin Laden verði handtekinn innan
fárra daga. Bæði bandarísk
stjórnvöld og liðsmenn Norður-
bandalagsins segja hann um-
kringdan skammt frá Kandahar.
Sendiherra talibana í Pakistan
sagði í síðustu viku að bin Laden
væri farinn frá Afganistan, en
sagðist síðar aðeins hafa meint að
hann væri utan yfirráðasvæðis
talibana, sem óðum hefur minnk-
að undanfarna daga.
Talið er að loftárásirnar hafi
neytt bin Laden til þess að yfir-
gefa fylgsni sitt í nágrenni
Kandahar, og nú sé hann á stöðu-
gri ferð um svæðið ásamt fá-
mennum hópi manna. Hann eigi
hins vegar í fá hús að venda.
„Hann er á flótta, alveg eins og
forsetinn sagði að hann myndi
verða. Og við munum ná honum,“
sagði Colin Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna í gær.
Talibanar og A1 Kaída verjast
enn víða í suðurhluta Afganistans
og í borginni Kunduz í norðurhlut-
anum, þrátt fyrir harða sókn að
þeim. Talibanar buðust í gær til
þess að gefast upp í Kunduz, að
því tilskyldu að liðsmenn al Kaída
fengju að komast þaðan óhultir.
Burhanuddin Rabbani, einn
helsti leiðtogi NorðurbandalagSr
ins, sagðist í gær vilja að viðræð-
ur um framtíðarstjórn landsins
færu fram í Kabúl, en Sameinuðu
þjóðirnar leggja mikla áherslu á
að þær fari fram í hlutlausu landi,
a.m.k. fyrsti fundur helstu leið-
toga og ættarhöfðingja Afganist-
ans.
TINDÁTINN BIN LADEN
Þessi mynd var tekin á leikfangasýningu í Kuala Lumpur, höfuðborg Malasiu, í síðustu
viku. Þarlendur drengur virðir fyrir sér tindáta sem lítur út eins og Osama bin Laden.
Svo virtist sem talibanar hefðu
enn góð tök á borginni Kandahar í
gær, þrátt fyrir fréttir um að múl-
lah Mohammad Omar, leiðtogi
talibana, hefði samið um að fara
með liðsmenn sína frá borginni
fyrir helgi.
Stjórnvöld í Pakistan handtóku í
gær Maulana Sufi Mohammed,
pakistanskan klerk sem hélt til
Afganistans í síðusta mánuði með
10.000 manna lið til þess að berjast
með talibönum. Meira en helming-
ur liðsmanna hans flúðu aftur til
Pakistans eftir hrun herafla tali-
bana undanfarna viku, en hundruð
þeirra eru innlyksa víða í Afganist-
an, meðal annars í Kunduz í norð-
urhluta landsins. Mohammed var
handtekinn ásamt hópi félaga
sinna eftir að hann flúði yfir landa-
mærin til Pakistan. ■
Verkfall tónlistarkennara:
Lítill munur
á launum og
bótum
kjaradeilur Mikill hugur var í tón-
listarkennurum á baráttufundi í
Háskólabíói í gær og margir urðu
frá að hverfa eftir að húsfyllir var
orðinn á fundinum. „Þetta stað-
festir okkar sannfæringu að við
höfum fólkið í landinu með okk-
ur,“ segir Sigrún Grendal formað-
ur Félags tónlistarkennara.
Tónlistarkennarar eru nú farn-
ir að fá greitt úr verkfallssjóði.
„Það er svo ofboðslega lítill mun-
ur á laununum okkar og því sem
við fáum grcitt úr verkfallssjóði
að við komum til með að halda
þetta út,“ segir Steinunn Birna
Ragnarsdóttir formaður verk-
fallsstjórnar. ■
JNLISTARKENNURUM
Talið er að um 1500 manns hafi sótt baráttufund tónlistarkennara í Háskólabíói í gær. Eng-
inn fundur hefur verið boðaður i kjaradeilu tónlistarkennara og launanefndar sveitafélaga.
SKÓR Á FLEYGIFERÐ
Fyrirtækið X-18 framleiðir og selur skó.
Það hefur nú gert tímamótasamning við
bandarískt stórfyrirtæki um sölu á fram-
leiðslu sinni.
X-18 gera stóran
samning:
Skór sem
fara víða
útflutningur íslenska skófyrir-
tækið X-18 hefur undirritað
samning við Norimco sem er dótt-
urfyrirtæki BATA sem er stærsti
skóframleiðandi í heimi. Samn-
ingurinn felur það í sér að fyrir-
tækið mun dreifa skóm X-18.
Samningar þessa efnis voru und-
irritaðir með viðhöfn að viðstödd-
um viðskiptaráðherra á laugar-
Óskar Axel Óskarsson stofn-
andi X-18 var að vonum ánægður
með samninginn og sagði hann
mikinn áfanga fyrir fyrirtækið.
„Það er mikilvægt fyrir okkur að
vera með samstarfsaðila sem hef-
ur bolmagn til að dreifa og kynna
vöru okkar um allan heim.“ Fyrir-
tækið sagði upp dreifingarsamn-
ingi við annað fyrirtæki fyrr á
þessu ári og sagði Óskar að þá
þegar hefðu nokkrir aðilar sýnt
áhuga á að selja framleiðsluvöru
þeirra. Samningurinn tryggir sölu
á milljónum skópara á næstu
áruni og verulega auknar tekjur.
Auk þess skuldbindur fyrirtækið
sig til að auglýsa X-18 skóna fyrir
verulegar fjárhæðir. ■
INNLENT
/búar sex hreppa í Rangárvalla-
lsýslu samþykktu sameiningu.
Stefnt er að því að nýtt sameinað
sveitarfélag verði til eftir kosn-
ingar í vor og verða íbúar þess
tæplega 1.700. Einnig var kosið
um sameiningu fjögurra sveitar-
félaga í Árnessýslu. íbúar í
Grímsness- og Grafningshreppi
höfnuðu sameiningu en íbúar
hinna sveitarfélaganna þriggja,
Laugardals-, Þingvalla- og Bisk-
upstungnahrepps, samþykktu.
Filippinskur sjómaður slasaðist
við vinnu sína um borð í er-
lendu flutningaskipi á Grundar-
tanga. Tildrög slyssins eru óljós,
en verið var að skipta um stimpil
í vél skipsins þegar vélarhluti
féll á hann Maðurinn sem er vél-
stjóri á skipinu, klemmdist undir
vélarhlutanum og hlaut alvarlega
áverka. Hann var fluttur á Land-
spítala í Fossvogi.
I
__________I