Fréttablaðið - 19.11.2001, Page 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
19. nóvemer 2001 MÁNUDAGUR
SVONA ERUM VID
VERKEFNI HJÁLPARSTARFS KIRKJ-
UNNAR
Heildartekjur Hjálparstarfs kirkjunnar á síð-
asta ári voru tæpar 65 milljónir, sem er
34% lækkun frá árinu áður. Tæpum 39
milljónum var varið til eftirfarandi verk-
efna.
Mósambfk 9%
Súdan 1%
Fræðslustarf 10%
Eþfópía 10%
Annað 6%
24%
Palestfna 2%
HÆSTIRÉTTUR
Ekki talið að mistök tannlæknis hafi valdið
höfuðverkjum.
Höfudverkjaköst í kjölfar
rótfyllingar:
Sýknaður af
kröfum
vegna mis-
taka
hæstirÉttur Hæstiréttur hefur
sýknað tannlækni af skaðabóta-
kröfu konu sem taldi að rekja
mætti höfuðverki sem hafa hrjáð
hana um margra ára skeið til þess
að tannlæknirinn hafi gert mistök
þegar hann annaðist rótfyllingar-
aðgerð sem konan gekkst undir.
Þegar konan gekkst undir rót-
fyllingaraðgerðina vorið 1991
þrýstist hluti rótfyllingarefnisins
úr rótarenda á rótargang. Um
haustið fór konan að finna fyrir
höfuðverkjarköstum sem hrjáðu
hana þar til rótfyllingarefni sem
lekið hafði út fyrir rótarenda var
fjarlægt auk sýkts vefs. Eftir það
hefur konan ekki fengið höfuð-
verkjarköst. Um þetta var ekki
deilt en deilt var um hvort mistök
tannlæknisins hefðu leitt til höf-
uðverkjakastanna. Dómkvaddir
matsmenn mátu málið svo að
tannlækninum hefði ekki orðið á
mistök og sögðu ekki staðfest að
yfirfylling við rótfyllingu hefði
valdið höfuðverkjarköstunum
þrátt fyrir að vísbendingar væru
um slíkt. ■
Nýr margmiðlunardisk-
ur:
Alfræði ís-
lenskrar
tungu
málrækt Námsgagnastofnun hef-
ur gefið út margmiðlunardisk um
íslenska tungu. Diskurinn skiptist
í tvo aðalhluta og hefur sá fyrri að
geyma margvíslegan fróðleik um
mál og málnotkun. Farið er yfir
þróun tungumálsins og hvernig
það hefur breyst frá landnámsöld.
I seinni hlutanum er efnið þrí-
þætt. Fyrri hlutinn er þar einfald-
aður og styttur til stuónings. Á
tímaás er að finna stiklur úr ís-
lénskri málsögu og þriðji þáttur-
inn hefw-aé-geyi
mynda. ■
Siúkraliðár og samninganefnd ríkisins funduðu alla
nelgina:
Fundað stíft í Karphúsinu
kjaradeilur Sjúkraliðar funduðu
með samninganefnd ríkisins alla
helgina og stóð fundur fram á
kvöld í gær en engar fregnir voru
af gangi viðræðna í gærkvöldi. Á
miðvikudag munu sjúkraliðar
funda með launanefnd sveitarfé-
laga og flugumferðarstjórar
funda með samninganefnd rikis-
ins á fimmtudag. Ekki hefur verið
boðaður fundur í kjaradeilu tón-
listarkennara og launanefnd
sveitarfélaga.
Sjúkraliðafélagið á einnig í við-
ræðum við Landspítalann há-
skólasjúkrahús um breytingar á
störfum sjúkraliða í þá veru að
starfsvettvangur þeirra verði
breiðari en verið hefur. „Þetta er
gert vegna þess að það eru ákveð-
in störf sem sjúkraliðar hafa unn-
ið sem ekki þarf fagmenntun til,“
segir Anna Stefánsdóttir hjúkrun-
arforstjóri. Þessi umræða var tek-
in upp við Sjúkraliðafélagið áður
en til uppsagna kom. „Tilgangur-
inn er meðal annars að gera starf
sjúkraliða áhugavert fyrir ungt
fólk til að læra.“ Anna segir að
þessi endurskilgreining á störfum
sjúkraliða komi ekki beint inn í
stofnanasamning þeirra við Land-
spítalann en verði til hliðar við
hann. Ekki er farið að ráða
KRISTfN Á. GUÐMUNDSDÓTTIR
Sjúkraliðar funduðu alla helgina með
samninganefnd ríkisins.
ófaglært starfsfólk enn í störf
sem sjúkraliðar hafa áður gegnt
að sögn Önnu. ■
Borgin borgaði
mest fyrir Davíð
Reykjavíkurborg hefur þurft að borga umtalsverðar jQárhæðir vegna
ferðalaga borgarfulltrúa. Af borgarstjórum síðustu ár var mest greitt
fyrir Davíð Oddsson. Ingibjörg Sólrún fylgir honum fast eftir. Athygli
vekur að ferðalög varaborgarfulltrúa kosta mest núna.
DAVÍÐ ODDS-
SON
Davíð ferðaðist
fyrír að meðaltali
rúmar 2 milljónir
á ári, árin 1989
og 1990.
borgarmál Lítill munur er á
ferðakostnaði borgarstjóra á
tímabilinu 1989 til 2000. Allir,
nema Árni Sig-
fússon, fara ein-
hvern tímann
yfir tvær millj-
ónir en Davíð
Oddsson er
vissulega sá eini
sem nálgast
þrjár milljónir,
en það var árið
1989. Þá var
ferðakostnaður
vegna hans tæp-
lega 2,8 milljónir
króna.
Áhöld eru um
hvað samanburð-
ur ferðakostnað-
artalna sýni í
raun. Hvort það
sé hagkvæmni
borgarfulltrúa
eða umfang trún-
aðarstarfa sem
hann fer með
hverju sinni. Af
aðalmönnum í
borgarstjórn eru
einungis tveir
sem engan ferða-
kostnað bera á
yf ir standandi
kjörtímabili. Það
eru Júlíus Vífill
Ingvarsson og
Ólafur F. Magn-
ússon, borgar-
fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks. Þá
vekur athygli að
Ólafur F. hefur
einnig vinninginn
að þessu leyti tvö
síðustu kjörtíma-
bil, 1990 til 1994
og 1994 til 1998.
Fram til febrúar
á þessu ári féll
enginn ferða-
MEÐALFERÐAKOSTNAÐUR* BORGARSTJÓRA Á VEGUM BORGAR-
SJÓÐS REYKJAVÍKUR Á „HEILUM" ÁRUM FRÁ 1989 TIL 2000.
Davíð Oddsson -
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir - LltM»:{TH
Markús Örn Antonsson - ■****!*«
‘Upphæðirnar eru á verðlagi ársins 2000. Sá tími sem Árni Sigfússon sat í borgar-
stjórastóli er tekinn með í ferðakostnað Markúsar Arnar Antonssonar.
FERÐAKOSTNAÐUR BORGARFULLTRÚA FRÁ JANÚAR TIL OG
MEÐ SEPTEMBER Á PESSU ÁRI*:
INGIBJÖRG
SÓLRÚN GÍSLA-
DÓTTIR
Ingibjörg ferðað-
ist fyrir tæplega
1,8 milljónir
króna að meðal-
tali á ári 1995 til
og með árinu
2000.
Alfreð Þorsteinsson (R)
Anna Geirsdóttir (R)
Guðlaugur Þór Þórðarson (D)
Helgi Hjörvar (R)
Helgi Pétursson (R)
Hrannar Björn Arnarsson (R)
Inga Jóna Þórðardóttir (D)
Ingibjörg S. Gísladóttir (R)
Jóna Gróa Sigurðardóttir (D)
Júiíus Vífill Ingvarsson (D)
Kjartan Magnússon (D)
Ólafur F. Magnússon (D)
Sigrún Magnúsdóttir (R) -
Steinunn V. Óskarsdóttir (R)
Vílhjálmur Þ. Vílhjálmsson (D)
501 þúsund
0 þúsund
0 þúsund
536 þúsund
408 þúsund
572 þúsund
482 þúsund
552 þúsund
369 þúsund
0 þúsund
192 þúsund
0 þúsund
154 þúsund
183 þúsund
330 þúsund
*í tölunum er allur kostnaður sem til fellur vegna ferða á vegum borgarinnar, fyr-
irtækjakostnaður meðtalinn.
MARKÚS ÖRN
ANTONSSON
Ferðalög Markús-
ar Arnar voru að
ársmeðaltali tæp-
lega 1,4 milljónir
árin 1991 til
1993.
kostnaður til vegna Ólafs F. og
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, en
mestur kostnaður er 572 þúsund,
vegna Hrannars B. Arnarsonar,
fulltrúa R-lista. „Dýrasti" full-
trúi Sjálfstæðisflokksins er hins
vegar Inga Jóna Þórðardóttir
með 482 þúsund. Athygli vekur
hins vegar að Árni Þór Sigurðs-
son, varaborgarfulltrúi R-lista,
er með lang mestan ferðakostn-
að á þessu ári, rúm 960 þúsund,
en hann er formaður skipulags-
og bygginganefndar auk þess að
vera formaður hafnarstjórnar
borgarinnar. ■
Alþýðusamband Austurlands:
Spilin stokkuð upp
verkalýðsmál Á aukaþingi Alþýðu-
sambands Austfjarða sem haldið
verður í dag, mánudaginn 19. nóv-
ember verður m.a. rætt um skipu-
lagsmál sambandsins í ljósi þeirra
sameininga sem orðið hafa meðal
aðildarfélaga i fjórðungnum. Sem
kunnugt er þá sameinuðust félögin
á sunnanverðum fjörðunum í Vökul
og norðanmegin í Afl á sínum tíma.
Jón Ingi Kristjánsson formaður
ASA segir að m.a. ætlunin sé að
draga saman seglin í mannahaldi á
hann verði t.d. aðeins í 25% starfi aukaþingið. |
hjá sambandinu. Það þýðir þó ekki
að verið sé að leggja sambandið nið-
ur því það muni áfram sjá um ýmis
samningamál eins og áður.
Hann býst einnig við að ályktað
verði eitthvað um kjaramálin og þá
þróun sem verið hefur á kaupmætti
launafólks samfara sífelldum
hækkunum sem orðið hafa bæði á
matvöru og margvíslegri þjónustu.
Hann segir að fólk verði áþreifan-
lega vart við það í buddum sínum
hvað það fær alltaf minna fyrir
-Um-50—60-mtmns-3Ítja
JÓN INGI KRISTJÁNSSON
hækkandi verðlagi
Skólastúlka send heim:
Rekin fyrir
blátt hár
skólastarf Maria Alexander, tólf
ára skólastúlka í Detroit í Banda-
ríkjunum, snéri aftur í skólann eft-
ir að hafa verið vikið heim í tvær
vikur fyrir að vera með blátt hár.
„Hvar er réttur foreldra? Eig-
um við að hringja í skólann og
spyrja hvað börnin okkar mega
koma með í nesti eða hvernig við
eigum að greiða þeim?“ spyr Amy
Alexander, móðir stúlkunnar.
Stjórnendur skólans verja
ákvörðun sína og segja stefnu
skólans að vinna gegn furðulegri
tísku sem geti leitt af sér einelti
eða stríðni. ■
Átök um micorsoft.is:
Risinn í mál
við eigandann
peilur Microsoft samsteypan hef-
ur falið íslenskri lögfræðistofu að
kæra skráningu lénsins
microsoft.is á íslandi. Eigandi
lénsins, Benedikt Sveinsson, er
gert að skila því aftur þar sem fyr-
irtækið er skráður eigandi vöru-
merkisins Microsoft á Islandi.
Úrskurðarnefnd léna, sem úr-
skurðar í deilu sem þessari, hefur
rétt til að svipta eiganda léni ef sá
sem skráði Iénið sótti um það í
þeim tilgangi að selja leigja eða
veita öðrum aðgang að því gegn
greiðslu, sem er sannanlega hærri
en kostnaður við skráningu þess.
Benedikt segist hafa sent
greinagerð til úrskurðarnefndar-
innar og svarað þeim alvarlegu
ásökunum _sem fram komu í
kærunni. „Úrskurðarnefndin hef-
ur ekki úrskurðað neitt um þetta
ennþá.“ Hann veit ekki hve langan
tíma nefndin ætlar að taka sér.
Benedikt segir að Microsoft sé
tilbúið að láta þetta mál hafa for-
dæmisgildi og muni sækja málið
alla leið. Hann hafi í augnablikinu
ekki tíma, getu eða fjárráð til að
fara í dómsmál. Nú bíði hann þess
einungis að fá fellt niður kærugjald-
ið sem nemi sjötíu þúsund krónum.
Ásdís Magnúsdóttir, lögmaður
Microsoft á Islandi, vildi ekki tjá
sig um málið. ■
STURLA BÖÐVARSSON
Kynnti tlmarammann á ríkisstjórnarfundi á
föstudag.
Jarðgöng fyrir austan og
vestan:
Tímarammi
útboðs
kynntur
samgöngur Sturla Böðvarsson,
samgönguráðherra, hefur kynnt
tímaramma útboðs vegna jarð-
ganga sem bora á milli Reyðar-
fjarðar og Fáskrúðsfjarðar annars
vegar og Siglufjarðar og Ólafs-
fjarðar hins vegar. Gert er ráð fyr-
ir að útboðsferillinn geti hafist um
miðjan desember með forkynningu
á EES-svæðinu og taki hálft ár.
Gert er ráð fyrir að samningar
verði undirritaðir i ágúst í síðasta
lagi en hægt er að flýta því.
Skipulagsstofnun samþykkti
jarðgöngin fyrir sitt leyti en kæru-
þessari viku. ■