Fréttablaðið - 19.11.2001, Qupperneq 16
16
FRETTABLAÐIÐ
19. nóvember 2001 MÁNUDACUR
HÁSKÓLABÍÓ
HAGATORGI. SÍMI 530 1919
Þar sem allir salir eru stórir
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.45
[málarinn
kl. 5.45
jTHE OTHERS
kl. 8 og 10.15 j
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Kl/IICMVNDAHÁTÍO
ELLING
BREAD AND TULIP
BREAD AND ROSES
CRADLE WILL ROCK
kl. 6,8 og 10
kl.8
kl. 6
kl. 10
5mfíRR\± Bia
Ihx SÍWli 564 0000 ■ wwvv.smarabm.is
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 JOY RIDE_____________kl. 3.30, 5.45 og 8 j
YAMAKASI kL 3.40, 5.50, 8 og 10.1011PETUR ÖG KÖTTURINN- kTIl
1
COLEMAN
Hafði verið f skemmtanaiðnaðinum síðan
hún var ellefu ára gömul.
Gharlotte Goleman:
Fannst látin
fólk Leikkonan Charlotte Colem-
an lést eftir öflugt asmakast sl.
miðvikudag. Bresk dagblöð grein-
du frá þessu í fyrradag. Coleman
var þekktust fyrir hlutverk sitt í
Fjögur brúðkaup og jarðaför, þar
sem hún lék vinkonu og meðleigj-
anda Hughs Grants. Hún var 33
ára gömul. Coleman fannst látin á
gólfinu í íbúðinni sinni. Að sögn
systur hennar, Lisu Coleman,
fannst Charlotte á efri hæð íbúðar
sinnar en astma tækið hennar
fannst á neðri hæðinni. ■
29) 37)
Alltaf á *
miðvikudögum
Jókertölur
mlðvlkudags
6 6 8 3 2
FRÉTTIR AF FÓLKI ;
Victoria Beckham, eða
Snobbkryddið eins og hún er
stundum kölluð, gladdi marga
karlkyns áhorf-
endur á Ein Live
Krone tónleika-
hátíðinni sem
haldin var í
Þýskalandi fyrir
skömmu. Þar
kom hún fram í
gegnsæjum topp
og ætlaði allt um
koll að keyra þegar hún birtist á
sviðinu. Victoria, sem er gift
knattspyrnumanninum David
Beckham, fór þó tómhent heim
því Sasha var valin besta sveit-
in.
Elton John hefur fengið Justin
Timberlake, kærasta Britney
Spears, til að leika í myndbandi
við nýtt lag. í
myndbandinu á
Timberlake að
leika Elton John
á sínum yngri
árum og þarf því
að klæðast und-
arlega litríkum
fatnaði og bera
sólgleraugu líkt
og goðið gerði forðum daga.
Meðal annarra sem koma fram í
myndbandinu eru Paul Reubens,
sem er betur
þekktur sem
Pee-Wee Her-
mann. Elton John
hefur á síðustu
dögum fengið
hina ýmsu aðila
til að leika í
myndböndum
fyrir sig og fór
Robert Downey Jr. til að mynda
með stórt hlutverk í því síðasta.
Hljómsveitin Starsailors
ætlar að gefa út nýja smá-
skífu fyrir jól. Smáskífan ber
nafnið Lullaby og
er tekið af plöt-
unni Love Is
Here en auk sam-
nefnds lags má
finna tvö'ný lög.
From A Whisper
To A Scream og
tónleikaútgáfu af
Tie Up My
Hands. Smáskífan verðúr einnig
gefin út á DVD.
NABBI
PETTER NÆSS
„Ég vildi gera einfalda mynd sem einblínir fyrst og fremst á persónurnar sem hún fjallar um."
Um drauma og þrár
Andhetjurnar Elling og Kjell Bjarne eru söguhetjur kvikmyndarinnar
Elling sem frumsýnd var í Háskólabíó um helgina. 700.000 Norðmenn
hafa gert sér ferð á myndiria'sem er sú vinsælasta í Noregi frá upphafi.
kvikmyndir „Allir eru eins og
Elling, en Elling er bara aðeins
ýktari en við hin,“ segir Petter
Næss, leikstjóri samnefndrar
myndar. Elling segir frá sam-
nefndum manni sem hefur alla
sína tíð búið með móður sinni í
mikilli einangrun. Þegar hún
fellur frá þá endar Elling inni á
geðdeild, enda fúnkerar hann
ekki sem skyldi í samfélaginu.
Þar kynnist hann Kjell Bjarne,
og verða þeir hinir mestu mátar.
„Þeir eru mjög ólíkir. Elling
er lítill og taugaveiklaður, hann
er haldinn alls kyns fóbíum og
er hræddur við eitt og annað.
Kjell Bjarne er stór og mikill,
með mikinn áhuga á kvenfólki,
þó hann eigi það reyndar sam-
merkt með Elling að hafa ekki
sængað með konu.“
í upphafi myndarinnar er
fylgst með því þegar þeir félag-
ar losna af geðdeildinni og fá út-
hlutað íbúð. Þar eiga þeir að búa
og reyna að komast af á meðal
hins venjulega fólks. Eins og við
er að búast kemur ýmislegt
spaugilegt upp á. „Þessi mynd
hefur bæði kómískar og tragísk-
ar hliðar," segir Petter. „Myndin
fjallar um drauma og þrár, um
óöryggi og óttann við að ná ekki
settum markmiðum. Myndin
höfðar hins vegar til fólks held
ég vegna þess að allir kannast
við þessa þætti í sér, þó að þeir
séu ekki jafn áberandi hjá
„venjulegu fólki“ eins og hjá
Elling og Kjell Bjarne.“
Það er ekki ofsagt að segja að
myndin höfði til fólks, 700.000
Norðmenn hafa séð hana og hún
hefur hlotið áhorfendaverðlaun
á fjölda kvikmyndahátíða. ís-
land er fyrsta landið sem tekur
myndina til almennra sýninga
og segist Petter vera spenntur
að sjá hvernig íslendingar taki
myndinni. „I-Iún verður síðan
tekin til almennra sýninga á
Norðurlöndunum og víða í Evr-
ópu,“ segir Petter sem hefur
verið á ferð og flugi að kynna
myndina.
Elling er önnur mynd hans og
segir hann það hafa verið mikla
áslcorun að koma skáldsögunni,
sem hún byggir á, á hvíta tjald-
ið. „Það hafa verið skrifaðar
fjórar bækur um Elling og þær
hafa notið mikilla vinsælda í
Noregi sem gerði verkið ekki
léttara," segir leikstjórinn sem
hefur alið stærsta hluta starfs-
aldurs síns innan veggja leik-
hússins. „En ég stefni að því að
gera nýja mynd á næsta ári og
er með hugmynd að nokkrum í
viðbót."
sigridur@frettabladid.is