Fréttablaðið - 19.11.2001, Side 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
19. nóvemer 2001 MÁNUDACUR
HRAÐSOÐIÐ |'
SIGRÚN GRENDAL
JÓHANNESDÓTTIR
formaður Félags tónlistarkennara
Von meðan
talað er
saman
HVERNIG er andinn meðal tónlist-
arkennara í verkfallinu?
„Hann eflist við hvern dag sem líð-
ur. Þá sannfærist fólk í þeirri trú
sinni að um verðugt málefni sé að
ræða. Hér er nefnilega ekki bara um
okkar launabaráttu að ræða, heldur
snýst málið jafnframt um framtíð
tónlistarkennslu í landinu almennt.
Menn eru mjög fastir fyrir og
ákveðnir í að fylgja þessari baráttu
eftir eins léngi og þarf.
HVERJAR
eru horfurnar í samn-
ingamálum tónlistarkennara?
„Það er mjög erfitt og í raun alveg
ómögulegt að ætla sér að spá fyrir
um þær. Ég treysti mér ekki til þess,
en við ætlum okkur auðvitað að ná
viðunandi árangri. Annað er kannski
ekki hægt að segja.“
CK staða tónlistarkennara sem þrýstihóps
nægilega sterk til að standa í verkfallsbar-
áttu?
„Við höfum náttúrulega ekki bein
neikvæð áhrif strax út í þjóðfélagið,
líkt og kannski sjúkraliðar og fleiri
stéttir. Þannig að við þurfum að við-
hafa ákveðna undirróðursstarfsemi
og reyna að búa til einhverja öldu í
samfélaginu. Við finnum fyrir rosa-
lega miklum samhug og stuðningi
alls staðar, í öllum hópum og út um
allt land. Haft var eftir einum full-
trúa launanefndar sveitarfélaganna
að hans skoðun á okkur sem þrýsti-
hóp væri að ekki væri ástæða til að
semja við .okkur í fíýti vegna þess að
í samanburði við t.d. þroskaþjálfa,
þar sem menn litu mjög illa út ef
þeir létu þroskaheft börn vera um-
önnunarlaus, þá skiptum við minna
máli. Þannig að ef málið snerist ein-
vörðungu um útlit ráðamanna ættum
við kannski að hafa áhyggjur. En við
vonumst til að þetta risti dýpra en
svo, þannig að ég vil nú meina að við
séum ágætis þrýstihópur.“
HEFUR verið leitað stuðnings annarra
stéttarfélaga eða samtaka kennara?
„Það hafa allir aðrir kennarar lýst
yfir fullum stuðningi við okkar kröf-
ur og hvetja viðsemjendur okkar til
að semja á sömu nótum og leiðrétta
laun okkar. Þannig að ekki stendur á
öðrum kennurum. Þá barst okkur í
dag tgærj reyndar peningagjöf frá
Þroskaþjálfafélagi íslands og svo
erum við með baráttufund á sunnu-
daginn klukkan 2 í Háskólabíói þar
sem okkar stuðningsmenn ætla að
fjölmenna og veit ég að kennarar
verða í þeim hópi.“
Sigrún Grendal Jóhannesdóttir er formaður Fé-
lags tónlistarkennara og jafnframt formaður
samninganefndar félagsins.
Skattsvikarar á Spáni reyna að koma illa fengnu fé
sínu í lóg:
I kapphlaupi við evruna
madrip. ap Skattsvikarar og aðrir
sem stundað hafa óheiðarleg við-
skipti á Spáni keppast nú við að
koma illa fengnu fé sínu í lóg áður
en evran tekur við af pesetunum
um næstu áramót. Reyndar verð-
ur hægt að nota gömlu myntina í
tvo mánuði, en að því búnu verða
pesetarnir gjörsamlega verðlaus-
ir og þá er ekki gott að sitja uppi
með mikið af þeim undir dýnunni
eða í peningaskáp heima hjá sér.
Um árabil hefur til dæmis
tíðkast við fasteignakaup á Spáni
að hluti verðsins sé aldrei gefinn
upp á pappírum til þess að losna
við skatta. Þeir sem stunda pen-
ingaþvætti gefa heldur ekki upp
viðskipti sín, og sömuleiðis láta
sumir eigendur skemmtistaða
ekki allan gróða koma fram til
skatts.
Enginn veit nákvæmlega hve
mikið magn af illa fengnu fé hef-
ur safnast saman á Spáni. Spánar-
banki giskaði fyrir nokkrum árum
á töluna 3.600 milljarðar peseta.
En svo mikið er víst að undan-
farið hefur verið óvenju mikið líf
í viðskiptum með fasteignir, bif-
reiðar og skartgripi, svo nokkuð
sé nefnt. Svipaða sögu mun reynd-
ar vera að segja frá fleiri Evrópu-
sambandsríkjum. ■
BÖRN AÐ LEIK Á SPÁNI
„Svarta myntin" svonefnda er jafn hverful og snjórinn sem féll á Spáni í síðustu viku.
Meðan börnin bjuggu til snjókarl voru sumir hinna eldri að gera verðmæti úr falda fénu.
| FRÉTTIR AF FÓLKI
Nýlega var ráðið í fjórar
stjórnunarstöður í Þjóðleik-
húsinu og fyrir valinu urðu fjór-
ar konur. Hér er um að ræða
Ásdísi Þórhallsdóttur, sem tek-
ur við stöðu umsjónarmanns
Smíðaverkstæðisins, Birnu
Björgvinsdóttur, deildarstjóra í
leikmunadeild, Ingibjörgu
Bjarnadóttur sýningarstjóra á
Stóra sviðinu og Björgu Björns-
dóttur, sem ráðin hefur verið
kynningarstjóri Þjóðleikhússins.
Asdís Þórhallsdóttir lauk
stúdentsprófi frá MH 1988.
Hún stundaði leikstjórnarnám í
Moskvu í leiklist-
arskóla Anatolís
Vasilíev 1991-93.
Hún hefur starf-
að sem leikstjóri
í sýningum hjá
Þjóðleikhúsinu,
þar sem hún leik-
stýrði Litla-
Kláusi og Stóra-Kláusi, hjá Leik-
félagi Reykjavíkur, ýmsum
áhugaleikfélögum og Ríkisút-
varpinu. Hún hefur verið að-
stoðarmaður leikstjóra í á annan
tug verkefna í Þjóðleikhúsinu.
Meðal verkefna hennar á því
sviði eru Þrek og tár, Allir synir
mínir, Sannar sögur af sálarlífi
systra, Poppkorn og Solveig.
Hún var aðstoðarmaður leik-
stjóra og túlkur í öllum upp-
færslum Rimasar lúminasar í
Þjóðleikhúsinu.
Birna Björgvinsdóttir starf-
aði á annan áratug í Svíþjóð,
m.a. við ýmis leikhús og leik-
flokka, aðallega í
Stokkhólmi. Hún
lauk þar námi í
verkefnastjórnun
1998, skipulagði
leikferðalög og
var verkefna-
stjóri og tækni-
legur stjórnandi
ýmissa leiksýninga, m.a. á veg-
um sænska ríkisins og Stokk-
hólms, menningarborgar 1998.
Ingibjörg Bjarnadóttir starfaði
sem sýningarstjóri hjá Leikfé-
lagi Akureyrar á níunda áratugn-
um en hélt svo til
Bretlands þar
sem hún lærði
sýningarstjórn
(stage mana-
gement) í Guild-
ford School of
Acting and Dance.
Hún lauk prófi
1990. Hún starfaði sem sýningar-
stjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur
í Borgarleikhúsinu í 9 ár en starf-
aði síðustu þrjú ár sem markaðs-
fulltrúi hjá Miðlun ehf.
Björg Björnsdóttir lauk
mastersnámi í blaða-
mennsku frá Centre Uni-
versitaire d'Enseignement du
Journalism í Strassborg í Frakk-
landi 1994. Áður hafði hún lokið
námi í hagnýtri fjölmiðlun frá
Félagsvísindadeild Háskóla ís-
lands og BA prófi í frönsku og
fjölmiðlafræði. Hún starfaði við
Tvöfalt líf bóka
Slóð Olafs Jóhanns Olafssonar rithöfundar og viðskiptafrömuðs ligg-
ur víða og enn skilur hann eftir brauðmola á göngu sinni. Nú er kom-
in í búðir ný skáldsaga eftir hann, Höll minninganna, en þó eru Fiðr-
ildin enn á flugi og ná jafnvel hærra en nokkurn hefði grunað því þau
stefna nú alla leið í átt til Hollywoodstjarnanna.
ÓLAFUR JÓHANN ÓLAFSSON
Nú er unnið að undirbúningi kvikmyndar byggðri á Slóð fiðrildanna.
bókmenntir Nýja bókin var ný-
komin heim og í hendurnar á
Ólafi Jóhanni þegar blaðamaður
bankaði upp á. Honum var boðið
beint inn í eldhús, upp á kaffi en
þáði vatn og svo vísaði Ólafur
honum til sætis við eldhúsborðið
þar sem eintak af bókinni lá ný-
fætt og gljáandi. „Já, og umbúð-
irnar eru góðar,“ svaraði Ólafur
eftir að honum hafði verið óskað
til hamingju með útgáfuna. „Það
er alltaf sérstök tilfinning að fá
bókina í hendurnar. Það er svona
staðfesting að ákveðnu ferli sé
lokið. Að það sem er búið að vera
að gerjast í hausnum á mánni sé
komið á það að stig að fram-
haldslíf þess sé tryggt. Bækur
lifa tvöföldu lífi, fyrst með höf-
undinum og svo með lesendun-
um. Þetta er orðið almennings-
eign því hver les bók með sínum
augum og út frá sinni reynslu."
Sagan er byggð á raunveru-
legum atburðum. „Kveikian að
þessari bók er lífshlaup Islend-
ings sem var uppi á fyrri hluta
síðustu aldar. Við lok fyrra stríðs
hvarf hann. Hann átti hér eigin-
konu, börn og blómlegt fyrir-
tæki. Það vissi enginn hvað hafði
orðið af honum fyrr eiginkona
hans heyrði orðróm um að hann
væri ef til vill í New York. Mér
var sögð þessi saga fyrir
nokkrum árum og hún festist í
hausnum á mér. Þetta er þó
skáldssaga, ég bý til mann sem
hvergi er annarsstaðar til en í
þessari bók, en ég nota þó eitt og
annað úr lífshlaupi þessa
manns.“
Sagan hefst 20 árum eftir að
hann yfirgefur klakann og les-
andinn kynnist ævintýrum hans
í Bandaríkjunum er hann lítur
yfir farinn veg. „Hann lendir í
ýmsu. Eitthvað hefur verið innra
með honum sem fékk hann til
þess að pakka saman og fara.
Þegar sagan mín hefst er hann
einkaþjónn blaðakóngsins Willi-
am Randolph Hearst í höll hans
við Kyrrahafið."
Fyrir nokkrum mánuðum
síðan seldi Ólafur Jóhann kvik-
myndaréttinn af síðustu bók
sinni „Slóð Fiðrildanna" til Pal-
omar Pictures. Framleiðendur
myndarinnar eru Anne-Marie
Mackay og Sigurjón Sighvats-
son. „Við erum í því núna að
velja handritshöfund og tala við
hugsanlega leikstjóra. í kjölfar
þess förum við í það að velja í
hlutverk." Þegar forvitinn
blaðastráklingurinn reyndi svo
að veiða upp úr Ólafi við hvaða
leikstjóra væri verið að ræða
brosti hann vinalega og svaraði;
„Það skýrist svona á næstu vik-
um. Þetta er allt toppfólk, það
verða engir aukvisar í mynd-
inni.“
biggi@frettabladid.is
almannatengsl
hjá GSP og síðar
Mekkanó 1999-
2000 en hafði
áður unnið á dag-
blaðinu Le Figaro
í París 1997-99 og
venö fréttaritari
RÚV í Istanbúl í
Tyrklandi auk þess sem hún var
fréttamaður á fréttastofu Sjón-
varpsins'.
Hin geðþekka klíka sem
kennd hefur verið við Mál
og menningu styrkti stöðu sína
á landsfundi Samfylkingarinnar.
Formaður flokksins er mikill
vinur þessa hóps- og Mörður
Árnason er auðvitað innan-
búðarmaður. Nú er Stefán Jón
Hafstein kominn til áhrifa í
Samfylkingunni og spurning
hverjir banka næst á dyrnar.