Fréttablaðið - 10.12.2001, Page 4
FRÉTTABLAÐIÐ
10. desember 2001 MÁNUDACUR
SVONA ERUM VIÐ
Fyrrum framkvæmdastjóri Handsals:
Abyrgð ekki
felld úr gildi
KYNJAHLUTFÖLL I
KENNARAHÁSKÓLA fSLANDS
Það er almennt viðurkennt að auka þurfi
hlut karlkennara í skólum landsins. Þróun-
in hefur verið óhagstæð þessu markmiði
mörg undanfarin ár og ekkert lát virðist á
fækkun karla. Af 1443 nemendum við KHÍ
í fyrrahaust voru 85% konur. Flestir stunda
nám við grunnskólaskor skólans, eða 567.
f'ÍI Konur 1225
j Karlar 218
Þj óðhagsstofnun:
Ekki lögð
niðurfyrir f
burnham Hæstiréttur féllst sl.
fimmtudag ekki á kröfu Hjálmars
Kjartanssonar, fyrrum fram-
kvæmdastjóra Handsals, um að
hann yrði leystur undan sjálfs-
skuldarábyrgð sem hann gekkst í
fyrir skuldabréfum að upphæð 80
milljónum króna í eigu Guðmund-
ar Franklín Jónssonar. Fyrsti
gjalddagi skuldabréfanna er árið
2005 og telur Hæstiréttur þann
tíma ekki enn kominn þar sem
reynt geti á ábyrgð Hjálmars.
Saga málsins er í megiriatrið-
um að kauptilboð Guðmundar
Franklín og Burnham Securities
Inc. í Handsal hf. árið 1999 byggð-
ist að hluta til á því að Guðmund-
ur keypti kröfur Lífeyrissjóðs
Austurlands í félaginu með
skuldabréfum sem Hjálmar gerð-
ist ábyrgðarmaður að. Skömmu
síðar var heiti félagsins breytt í
Burnham International á íslandi
og Hjálmari sagt upp störfum.
Hann höfðaði þá mál gegn Guð-
GUÐMUNDUR FRANKLÍN JÓNSSON
Sagði fyrrum framkvæmdastjóra upp
störfum skömmu eftir að hann gekkst í
ríflega ábyrgð.
mundi og lífeyrissjóðnum þar
sem hann krafðist þess, aðallega,
að fá ábyrgð sína ógiíta, en til
vara að skaðleysi hans yrði tryg-
gt. Á þetta féllst rétturinn ekki. ■
Go gaf tóninn,
áramót
stjórnsýsla Þjóðhagsstofnun
verður ekki lögð niður fyrir ára-
mót eins og forsætisráðuneytið
hafði tilkynnt starfsmönnum um
síðasta vor. Síðasta sumar var
skipuð nefnd sem átti að undirbúa
að verkefni Þjóðhagsstofnunar
yrðu flutt til annarra stofnana og
stofnunin sjálf lögð niður. Hlé
hefur orðið á störfum hennar frá
því í september og ljóst að frum-
varp um að leggja Þjóðhagsstofn-
un niður verður ekki lagt fyrir Al-
þingi fyrr en eftir áramót.
„Aðalatriðið í þessu er að ein-
falda verkaskiptingu hjá hinu op-
inbera með því að flytja verkefni
sem hafa verið unnin hjá Þjóð-
hagsstofnun til annarra stofn-
ana“, segir Ólafur Davíðsson,
ráðuneytisstjóri í forsætisráðu-
neytinu. „Til þess að Þjóðhags-
stofnun verði lögð niður þarf að
leggja fram lagafrumvarp og af-
nema lög um Þjóðhagsstofnun. Sú
vinna hefur verið í undirbúningi
en er ekki lokið.“ Hann segir að
væntanlega verði frumvarp þessa
efnis ekki lagt fram fyrr en eftir
áramót en í fjárlögum sé gert ráð
fyrir að Þjóðhagsstofnun starfi
áfram á næsta ári og ekki hafi
verið gerðar neinar breytingar í
þeim efnum ■
—♦..-
Kæra á Skífuna:
Ekki samráð
LEiÐRÉmNG Að gefnu tilefni vill
stjórn Félags íslenskra hljómlist-
armanna að það komi fram að ekk-
ert samráð var milli félagsins og
Japís um kæru til Samkeppnisráðs
á hendur Skífunni vegna misnotk-
unar fyrirtækisins á markaðsráð-
andi aðstöðu þess. Erindi félagsins
til Samkeppnisráðs hafi ekki verið
í samráði við Japís eins og lesa
mátti í Fréttablaðinu á föstudag. ■
en er ekki með
Undirbúningur stofnunar lággjaldaflugfélags er á lokastigi. Lokaá-
kvörðunar gæti verið að vænta fyrir jól. Flogið verður til London, París-
ar og Barcelona. Sjötíu prósenta aukning hjá flugfarþegum, þegar Go
hóf flug hingað, ástæða þess að hópurinn fór af stað. Ekki útilokað að
viðræður eigi sér stað við íslenskt flugfélag.
flug „Undirbúningur lággjalda-
flugfélagsins er á lokastigi og mun
það hefja áætlunarflug á vormán-
uðum,“ segir Jóhannes Georgsson,
sem er í forsvari fyrir þann hóp
sem stendur að stofnun flugfélags-
ins, en hann er fyrrum fram-
kvæmdastjóri SAS á íslandi. Ein-
ungis á eftir að hnýta lausa enda
og vonumst við til að því verði lok-
ið á allra næstu vikum.“
Að sögn Jóhann-
esar hefur nafn á
Ekki hefur enn flugfélagið enn
verið tekin ekki verið ákveðið,
ákvörðun um en áfangastaðir
það hvaða þess verði London,
þjónustustig París og
við munum Barcelona. Ráð-
hafa um borð gert sé að fljúga til
í vélunum. London fjórtán
^ sinnum í viku, sjö
sinnum til Parísar
og sex sinnum í viku til Barcelona.
„Ástæða þess að við ákváðum
að stofna lággjaldaflugfélag er
meðal annars sú, að þegar að flug-
félagið Go hóf flug hingað til
landsins, varð um sjötíu prósenta
aukning á fjölda farþega frá Bret-
landi. Að auki ætla Flugleiðir að
fækka um eina vél, sem er um ell-
efu prósent af sætaframboði þeir-
ra,“ segir Jóhannes, sem álítur að
þarna gefist gott markaðstæki-
færi.
Hann segir að ekki sé búið að
ganga frá samningum við það flug-
félag sem taka muni að sér að flyt-
ja farþegana, en ekki sé endilega
JÓHANNES GEORGSSON
Ástæða þess að við ákváðum að stofna lággjaldaflugfélag er meðal annars sú, að þegar
að flugfélagið Go hóf flug hingað til landsins, varð um sjötíu prósenta aukning á fjölda
farþega frá Bretlandi.
um að ræða bresk flugfélög. Jó-
hannes vildi ekki tjá sig um það,
hvort viðræður stæðu yfir við ís-
lenskt flugfélag.
Nýja flugfélagið, muni hafa það
markmið að bjóða farþegum veru-
lega lág fargjöld, líkt og Go flugfé-
lagið, sem að sögn Jóhannesar er á
engan hátt viðriðið hið nýja félag.
„Við munum hagræða verulega í
rekstrinum og mun það skila sér
beint í lægri fargjöldum farþeg-
anna,“ segir Jóhannes. Flugfélagið
verði sölu og markaðsfyrirtæki
sem myndi regnhlíf yfir utanað-
komandi aðila, sem sinna muni
verkefnum sem ekki snerta far-
þegana beint. „Ekki hefur enn ver-
ið tekin ákvörðun um það hvaða
þjónustustig við munum hafa um
borð í vélunum. Við munum þó
vera með eigin söluskrifstofur í
þeim borgum sem við fljúgum til,
en einnig munum við selja farseðla
í gegnum ferðaskrifstofur og á
Netinu,“ segir Jóhannes. „Ég get
ekki sagt hvenær lokaafgreiðsla
málsins muni liggja fyrir, en ef til
vill verður hún jólagjöfin í ár.“
arndis@frettabladid.is
Krislín IÍc*ijía cTimnúnutmir
Sumar a hippasióduni
Kriittn Heigs Gunnarsdóttír
Litrikfrásögn tini
ævinlyralcgt sumar
tóliára þribura hjá
skrautlegri frænku
í Kaupmannahöfn.
Spennandi saga fvrir börn
á ölltun aldri eftir höfund
Wóu hrckkjtisvlns og
bókanna tim Bintw.
Mal og menning
Enn vex þrýstingurinn á Arafat:
Innbyrðis átök
Palestínumanna
gaza, ap Til átaka kom milli hund-
ruða af stuðningsmönnum Ham-
as-samtakanna og óeirðasveita
palestínsku lögreglunnar fyrir
helgi í Gazaborg. Grjóti var kas-
tað, skotið var af byssum upp í
loftið og lögreglujeppi var
brenndur. Þetta eru fyrstu merkin
um að herskáir Palestínumenn
sýni mótspyrnu gegn hertum að-
gerðum Jassers Arafats gegn
þeim.
Arafat er undir sívaxandi
þrýstingi frá ísraelskum stjórn-
völdum, og sömuleiðis frá Banda-
ríkjamönnum og fleiri ríkjum á
Vesturlöndum, um að koma hönd-
um yfir meðlimi samtakanna
Hamas og Jihad, sem staðið hafa
fyrir sjálfsmorðsárásum gegn
ísrael. Israel hefur gefið honum
stuttan frest til þess að handtaka
marga liðsmanna Hamas, og
gerðu hlé á loftárásum á Palest-
ínumenn á meðan.
Arafat hafði þá þegar látið
handtaka fjölmarga Hamasliða,
en ísraelsmenn segja að það séu
ekki þeir sem skipulögðu sjálfs-
morðsárásirnar um síðustu helgi.
Arafat lét einnig setja Ahmed
Yassin, leiðtoga Hamas-samtak-
anna, í stofufangelsi á heimili
hans í Gazaborg, og fær enginn að
hafa samband við hann þar.
Hins vegar sætir hann ekki síð-
ur þrýstingi frá Hamas-samtök-
unum, og óljóst er hvort staða
Bandarísk rannsókn:
Vímuefna-
notkun eykst
new york.ap Misnotkun áfengis og
eiturlyfja virðist hafa aukist í
mörgum hlutum Bandaríkjanna
frá því hryðjuverkaárásirnar voru
gerðar á landið þann 11. septem-
ber. Sérstaklega á þetta við um
New York borg og Washington,
sem eru einmitt þeir staðir sem
urðu fyrir árásunum. „Þetta fólk
notar vímuefni vegna streitunnar
sem það þjáist af,“ segir Joseph
Califano Jr., frá Columbia háskól-
anum, sem hafði umsjón með rann-
sókninni. „Ég held að við séum að
verða vitni að upphafi vímu-
efnafaraldurs í landinu." ■
T Formaður Prestafélags:
Áhyggjur
af niður-
skurðinum
ríkisfjármál Séra Jón Helgi Þórar-
insson, formaður Prestafélags ís-
lands, segir þjóðkirkjumenn hafa
þungar áhyggjur af áformaðri 100
milljóna króna skerðingu sóknar-
gjalda. Hann segir
þá nú vera að skoða
hvort og hvernig er
hægt að fá niður-
skurðinum hnekkt.
Sóknargjaldið
rennur til trúfélaga
eftir fjölda meðlima
Um 90% lands-
manna eru í Þjóð-
.... , , kirkjunni. Niður-
' n skurðurinn þýðir því
um 90 milljóna
króna tekjutap fyrir söfnuði Þjóð-
kirkjunnar.
„Margir söfnuðir hafa verið að
byggja og eru í allnokkrum skuld-
um. Vextir hafa hækkað en nú á
innkoman að standa í stað og það
raskar áætlunum um afborganir.
Allur kostnaður vegna kirknanna
og laun starfsmanna safnaðanna,
annarra en prestanna, eru greidd af
sóknargjöldunum. Þessir liðir hafa
hækkað og breytingin þýðir því ein-
faldlega samdrátt í þjónustunni,"
segir Jón Helgi. ■
JÓN HELGI
Boðar samdrátt
ANDSTÆÐAR FYLKINGAR
Palestínskir lögreglumenn hrekja stuðn-
ingsmenn Hamas á flótta skammt frá húsi
Ahmeds Yassin, leiðtoga Hamas, f Gaza-
borg, en hann er í stofufangelsi.
hans meðal Palestínumanna sé
nógu sterk til þess að vinna bug á
Hamas eða Jihad.
„Við í Hamas ætlum ekki að
sætta okkur við handtökur Palest-
ínustjórnar, og við tökum því ekki
þegjandi," sagði einn þeirra sem
lentu í átökunum í gærmorgun. ■
I LÖGREGLUFRÉTTIR
Ríkislögreglustjóri hefur lagt
fyrir lögregluna í Keflavík
eins og önnur lögreglulið að aug-
lýsa þjónustunúmer þar sem fólk
getur komið á framfæri þeim fyr-
irspurnum og erindum sem það á
við lögregluna og fellur ekki und-
ir neyðaraðstoð. Þjónustunúmerin
hafa verið auglýst í kjölfar þess
að sameiginleg fjarskiptamiðstöð
ríkislögreglustjórans og lögreglu-
stjóranna í Reykjavík, Kópavogi,
Hafnarfirði, Keflavík, á Keflavík-
urflugvelli og á Selfossi hóf störf í
júlí.