Fréttablaðið - 13.12.2001, Page 10
".UR
sUVMVlTimAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ
13. desember 2001 FIMMTUDAGUR
10 UDflf
Í“
13.. desember 700
Alþingi:
Skattalækk-
anir sam-
þykktar
SKATTAR Skattalagabreytingar rík-
isstjórnarinnar voru afgreiddar
sem lög frá Alþingi í gær. 28 þing-
menn stjórnarflokkanna greiddu
atkvæði með frumvarpinu en þing-
menn stjórnarandstöðu sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna.
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra fagnaði því að frumvarpið
skyldi vera orðið að lögum. Um
væri að ræða mestu breytingar á
skattkerfinu en haldið yrði áfram
og ríkisstjórnin væri ekki hætt að
gera endurbætur á skattkerfinu. ■
Jóhanna Sigurðardóttir:
Stjórnvöld auka á verðbólgu
efnahagsmál Fyrirhuguð gjaldtöku-
aukning hins opinbera kemur til
með að auka á verðbólgu á næsta
ári, að sögn Jóhönnu Sigurðardótt-
ur, þingmanns Samfylkingarinnar.
„Eg bað Þjóðhagsstofnun að reikna
verðbólguáhrifin af aukinni gjald-
töku, ásamt þeirri hækkun á áfeng-
isverði sem gert er ráð fyrir í fjár-
lagafrumvarpinu og hækkun á
komugjöldum og gjöldum til sér-
fræðinga. Þegar þetta er tekið með
mælast verðbólguáhrifin 0,35 pró-
sent. Þá er t.d. ekki tekin með
hækkun sem verður á afnotagjöld-
um RÚV. Þetta held ég að sé mjög
slæmt innlegg í þá sátt sem verið er
að reyna að ná á vinnumarkaði.
Þjóðhagsstofnun hefur unnið þessa
mælingu í samráði við Hagstofu, en
í þessu vega mjög þungt hækkanir
á námsmenn. Innritunar- og skrán-
ingargjöld, auk efniskostnaðar
vega 0,14 prósent í þessu. Fjár-
málaráðuneytið hefur verið að mót-
mæla þessu og telur áhrifin eitt-
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
Jóhanna segir að aukin gjaldtaká af
sjúklingum komi skelfilega við lífeyr-
isþega, aldraða og öryrkja ofan á þá
hækkun sem orðið hafi á komu-
gjöldum sl. sumar.
hvað minni, en ég leyfi mér nú frek-
ar að trúa Hagstofunni og Þjóð-
hagsstofnun sem eru með þessar
mælingar." Jóhanna segir að frekar
en að hækka álögur á námsmenn
hefði t.d. verið nær að hækka tó-
baksverð. „Það vegur miklu minna í
vísitölunni. Gjöld á námsmenn gefa
ríkissjóði 100 milljónir. Ef tóbak
væri hækkað um 10 krónur, sem
yrði 17 í útsölu með virðisauka,
myndi það gefa ríkissjóði 200 millj-
ónir og 0,07 prósent verðbólguá-
hrif, þannig að þar fengjust bæði
helmingi meiri tekjur og minni
verðlagsáhrif." ■
Voru innan við mín-
útu að fremja ránið
Hettuklæddir þjófar brutust inn í BT-tölvur. Tóku Qórar fartölvur,
leikjatölvu, myndavélar og fleira.
Gengistap lánþega LÍN í
námi erlendis:
Snúi sér til
ráðherra með
sínmál
menntamál Námsmenn sem hafa
borið hafa skaða af gengisbreyt-
ingum vegna námslána fyrir
skólagjöldum erlendis eiga að
snúa sér til ráðuneyta fjár- og
menntamála með sín mál, að sögn
Gunnars Birgissonar, stjórnar-
formanns LÍN. Hann segir ekki
rétt að stjórn Lánasjóðsins standi
í vegi fyrir að hlutur þeirra náms-
manna sem verst standi vegna
þessa verði réttur. „Stjórn lána-
sjóðsins gerir ekkert nema að
hafa heimildir til þess. Bæði
þyrfti að breyta. reglum og svo
þurfa að vera til aurar, menn
verða að spá í það. Svo er náttúru-
lega spurning hvað gerist, því við
vonum að krónan styrkist. Þá
verður þetta vonandi minna mál
heldur en áður,“ sagði hann og
benti á að lánin hafi í eina tíð ver-
ið í dollurum. „Þeim var svo
breytt yfir í krónur þegar gengið
hækkaði, þá vildu menn fara þá
leið. Núna fór þetta á hinn veginn
og þá er staðan svona, því miður.“
Gunnar sagði að í augnablikinu
stæðu ekki til reglubreytingar
hjá Lánasjóðnum. „En væntan-
lega hafa þau samband við
menntamálaráðherra og fjár-
málaráðherra til að þrýsta á sín
mál.“ ■
innbrot Brotist var inn í fyrir-
tækið BT tölvur við Reykjavík-
urveg um fjögurleytið í fyrr-
inótt. Höfðu þjófarnir á brott
með sér fjórar fartölvur, leikja-
tölvudót og 8-9 stafrænar
myndavélar og er andvirði þýf-
isins rúmlega ein milljón króna.
Að sögn lögreglunnar í Hafnar-
firði gengu þjófarnir skipulega
til verks en þeir voru horfnir á
braut þegar lögreglan kom á
vettvang mínútu eftir öryggis-
kerfi fyrirtækisins fór í gang.
Líkur bendi til að sömu aðilar
hafi verið að verki og í sumar. Þá
hafi verið farið inn í sama fyrir-
tækið og samkvæmt öryggis-
myndavélum hafi þjófarnir ver-
ið farnir á bak og burt 20-30 sek-
úndum eftir að öryggiskerfið fór
í gang. Það mál sé enn óupplýst.
Sömu aðferðum hafi verið beitt
til að komast inn í fyrirtækið í
báðum tilfellum með því að
spenna upp aðaldyr fyrirtækis-
ins.
Mennirnir sem brutust inn
voru allir hettuklæddir en í
versluninni eru myndbandsupp-
tökuvélar. Vinnur lögreglan nú
að því að fara yfir myndböndin ■
VERSLUNIN BT
Talið er að sömu aðila hafi verið að verki
við innbrotið I fyrrinótt og brutust inn í
sumar. Það mát er enn óupplýst.
Á MORÐSTAÐ
Réttarlæknisstarfsmenn rannsaka aðstæð-
ur á morðstaðnum í gær þar sem William
Stobie var skotinn til bana. Hann var fyrr-
verandi lögreglumaður og fyrrverandi
meðlimur I Ulster-samtökunum á Norður-
írlandi.
Herskár mótmælandi á
N-írlandi:
Skotinn til
bana utan við
heimili sitt
BELFAST.N-ÍRLAND.AP William Stobie,
herskár mótmælandi sem hafði
verið bendlaður við mörg af
grimmilegustu morðum sem
framin hafa verið í N-írlandi und-
anfarin ár, var skotinn til bana
fyrir utan heimili sitt i Belfast í
gær. Stobie, sem var 51 árs, hafði
fengið viðvaranir um að fyrrver-
andi félagar hans í Ulster-samtök;
unum ætluðu að myrða hann. í
síðasta mánuöi féllu saksóknarar
frá tveimur morðákærum á hend-
ur honurn eftir að lykilvitni þeirra
neitaði að bera vitni. ■
Smekkleysa kynnir:
Ljóð og jazz
Ljóð og jazz byggir á
samspili djasstónlistar
og Ijóðaflutnings. Hér
lesa Ijóðskáldin Nína
Björk Árnadóttir,
Matthías Johannes-
sen, Jón Óskar, Jó-
hann Hjálmarsson,
Þorri Jóhannsson og
Ari Gísli við tónlist eft-
ir Carl Möller í flutn-
ingi Carls Möllers (píanó), Guðmundar Steingríms-
sonar (trommur) og Birgirs Bragasonar (Kontra-
bassi). Carl segist nálgast Ijóðin með litlum stefjum,
en lætur skáldunum eftir flug og spuna.
Framsókn í Kópavogi:
Sigurður vill bæta
metið um fjögur 4r
framboðsmál Fyrirfram er ekki
búist'við miklum breytingum á
skipan efstu manna á framboðs-
lista Framsóknarflokksins í Kópa-
vogi við komandi kosningar til
sveitarstjórna. Sigurður Geirdal
bæjarstjóri og oddviti flokksins
hefur gengt stöðu bæjarstjóra í
meirihlutasamstarfi með sjálf-
stæðismönnum í tæp 12 ár og
stefnir að því að bæta fjórum
árum við það met innan bæjar-
stjórnarinnar eftir kosningarnar í
vor
Á aðalfundi fulltrúaráðs fram-
sóknarfélaganna fyrir skömmu
var samþykkt að fela uppstilling-
arnefnd að gera tillögu að fram-
boðslista fyrir komandi kosningar.
í þeim efnum er lögð áhersla á að
listinn verði skipaður konum og
körlum með sem jöfnustum hætti.
Jafnframt á að gæta að fjölbreytni
í aldri, menntun og störfum fram-
bjóðenda. í starfi sínu á nefndin að
óska eftir framboðum og tilnefn-
ingum meðal flokksmanna og leita
einnig eftir almennum athuga-
semdum og ábendingum meðal
þeirra. Flokksmenn hafa frest til
15. janúar n.k. til að koma sjónar-
miðum sínum á framfæri við
nefndina. Þá er stefnt að því að
uppstillingarnefnd leggi fram til-
SIGURÐUR
GEIRDAL
Hann hefur setið
manna lengst í stól
bæjarstjóra í Kópa-
vogi, eða samfellt I
bráðum 12 ár.
lögu um röðun á
lista á almennum
fundi fulltrúa-
ráðsins eigi síðar
en 1. mars n.k.
Framsóknar-
flokkurinn fékk
tvo fulltrúa kjör-
na í bæjarstjórn
Kópavogsbæjar
árið 1998, þau
Sigurð Geirdal
og Hansínu
Björgvinsdóttur.
í þeim kosning-
um var flokkurinn nálægt því að fá
þriðja bæjarfulltrúann kjörinn. ■
Ránfuglar
jÓHANN Ón HlLMARSSON
SKRIFAR U o NFUGLA
Á ÍSLANDI. GLÆSILEGAR
LJÓSMYNDIR OG FRÓÐLEG GREIN
VIÐTÖL • VEROLAUNAKROSSGÁTA • FONDUR • UPPSKRIFTIR • CÓD RÁO • SPURT OG SVARAÐ
... hlýtt blab allt árlb
' ~ I
°lab/að
Fæst á næsta blaðsölustað
/
Askriftarsími 586 8005
Útgefandj: Rit 81 Rækt ehf, Háholti 14,270 Mosfeilsbæ, www.rit.is, rit(0rit.is