Fréttablaðið - 13.12.2001, Síða 13
FIMMTUDAGUR 13. desember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
Lokun Barsebáck kjarnorkuversins:
Skilyrdi lokunar uppfyllt 2003
norðurlönd Sænska kjarnorku-
verið í Barseback hefur verið
þyrnir í augum Dana um langt
skeið. Nú hyllir undir lokun þess
ef marka má niðurstöðu sænska
þingsins. í niðurstöðunni er gert
ráð fyrir að forsendur sem
ákveðnar voru um lokun kjarn-
orkuversins verði uppfylltar í árs-
lok 2003. Skilyrðin sem ákveðin
voru 1997 fela í sér að lokunin
megi ekki valda hækkun raforku-
verðs, aðgangi iðnfyrirtækja að
orku né hafa neikvæðar afleiðing-
ar fyrir umhverfið. Sænska þing-
ið telur að þessi skilyrði verði
uppfyllt árið 2003 og þá beri að
slökkva á seinni kjarnakljúf orku-
versins.
Ákvörðuninni hefur verið
fagnað í Danmörku og sagði nýr
innanríkisráðherra Dana, Lars
Lökke Rasmussen að hann fagn-
aði þessari niðurstöðu. „Ég var
reyndar á leiðinni að senda Björn
Rosengren, iðnaðarráðherra Svía,
bréf þar sem ég ítreka að þrátt
fyrir nýja ríkisstjórn sé afstaða
dönsku ríkistjórnarinnar óbreytt í
málefnum Barseback." Rosen-
gren er sáttur við niðurstöðuna,
en segir skýrt að skilyrðin verði
að vera uppfyllt áður en slökkt er
á verinu. ■
UMDEILT KJARNORKUVER
Danir hafa lengi deilt hart á Svía fyrir rekst-
ur Barseback-kjarnorkuversins.
Borgarstjórnarkosningar:
Framboð Frjálslyndra
líkt við leiftursókn
framboðsmál Margrét Sverris-
dóttir framkvæmdastjóri Frjáls-
lynda flokksins segist persónu-
lega vilja draga það eins og kost-
ur er að ákveða framboðslista
flokksins vegna komandi sveit-
arstjórnakosninga. Hugsunin á
bak við þá stjórnlist er m.a. að
framboð flokksins komi eins og
leiftursókn inn í stutta en snarpa
kosningabaráttuna. Hún gerir
ráð fyrir að framboðslisti
flokksins vegna kosninga til
borgarstjórnar muni jafnvel
verða tilbúinn um mánaðamótin
janúar-febrúar n.k. þar sem hún
mun líklega leiða listann. Hins
vegar sé viðbúið að listinn verði
MARGRÉT SVERRISDÓTTIR
Líklegt leiðtogaefni á framboðslista Frjáls-
lynda flokksins í borginni.
eitthvað seinna á ferðinni í ísa-
fjarðarbæ.
Óvíst er hvort flokkurinn bjóði
fram undir eigin nafni í fleiri
sveitarfélögum en það er þó ekki
útilokað eins og t.d. á Sauðárkróki
og Reykjanesbæ. Þá kemur einnig
til greina að flokksmenn og stuðn-
ingsmenn flokksins taki þátt í
framboðum með óháðum í sveit-
arfélögum í öðrum landsf jórðung-
um. Margrét segir að ákveðið hafi
verið að fara leið uppstillingar við
val og röðun á frambjóðendum á
framboðslista flokksins. í Reykja-
vik verður það í verkahring borg-
armálaráðs sem leggur tillögur
sínar fyrir miðstjórn flokksins. ■
Engill astarinnar
og fleiri sögur
Hafliði Magnússon
Er)#U( astannnar
og flciri sögur
■éykti
Fjórtán smásögur eftir alþýðulistamanninn Hafliða Magnús-
son frá Bíldudal með teikningum eftir höfundinn.
Nöfn sagnanna Fjársjóður Franklíns greifa, Hinn fullkomni
glæpur, Ör í gegnum hjartað, Engill ástarinnar, Rósóttu
stígvélin, Fagra Lísa og Tréfótur skipstjórans, svo dæmi
séu nefnd, vitna um fjölbreytt söguefni sem Hafliði tekur
til meðferðar í smásagnasafni sínu.
Litríkar og spennandi vestfirskar smásögur um allt milli
himins og jarðar.
Fæst í bókaversluninni þinni.
Vestfirska forlagið
Hrafnseyri
Sími og fax 456-8181
netfang: jons@snerpa.is
Ödýrari GSM sfmar
og ókeypis sfrntöl
f Kjarnaáskrift til 31. mars
Haltu jól fram f apríl Jólapakki 1
Um hátíðarnar eiga fjölskyldan og vinirnir að
njóta þess að eiga samverustundir og tala saman.
Það er kjarni jólanna.
Með Kjarnaáskrift (slandssíma
framlengir þú þessa hátíðar-
stemmningu fram í apríl því þú
getur talað ókeypis við allt
að fjóra aðra hjá (slandssíma í
5 þúsund mínútur á mánuði til
31. mars* Eftir það kostar mínútan
aðeins 7,50 kr. á daginn og 5,50 kr. á kvöldin.
Frábaert tilboð fyrir þig og þína!
^ 'S> «JP ú
/ g)
<K
«0
NOKIA 3310
Með utborgun aðeíns
1.490,
á mánuði
Samtals 18.211 kr.
Staðgreitt 15.990 kr.
Tilboðið er háð 12 mánaða
samningi og því að símreikningurinn
sé skuldfærður á kreditkort.
*Aðeins 600 kr. mánaðargjald
Jólapakki 2
Tiiboðið erháð 12 mánaða samningi
og þvi að símreikningurinn sé
skuldfærður á debet/tékkareikning
eða kreditkort.
Skráning og upplýsingar á islandssimi.is eða í 800 1111
Tilboðið fæst hjá söluaðilum Íslandssíma
.... - (f LfKiNlf Sf KjUfácrt Heimilistæki Islandssími |
F