Fréttablaðið - 13.12.2001, Síða 22
22
FRETTABLAÐIÐ
13. desember 2001 FIMMTUDAGUR
HEIMASÍÐA VIKUNNAR
Jóhannes Páll páfi II ræsti í gær nýja
heimasíðu kirkju jómfrúarinnar af Gu-
adalupe sem staðsett er í Mexíkó. Páfi gaf
sér tima frá hefðbundnu messuhaldi í
Vatíkaninu til að ýta á nokkra hnappa á fis-
tölvu sem komið var fyrir í kjöltu hans.
Fjöldi manns var samankominn til að fylgj-
ast með þessari nýju tilraun Vatíkansins til
að breiða út Guðs orð.
FRÉT1.|R AF F5LKII
Iþessum dálki hefur oftar en
einu sinni verið rætt um komu
Stefáns Jóns Hafstein í forystu-
sveit Samfylkingarinnar. í því
samhengi hefur verið látið að því
liggja að stofnað
hefði verið til
framboðs hans til
að koma í veg fyr-
ir að Ása Ric-
hardsdóttir settist
í sæti formanns..
Mikil óánægja er
innan Samfylking-
arinnar með þessa söguskýringu,
enda almenn ánægja með störf
Ásu. Eftir því var gengið að hún
byði sig fram til formennsku í
framkvæmdastjórn, en hún var
því mjög fráhverf. Segja menn að
stefnt hefði harðan slag ef Ása
hefði einnig sóst eftir embættinu.
Schwarzenegger lendir í mótorhjólaslysi:
Ætlar samt á skíði
SLYS Hasarmyndahetjan og vöðva-
tröllið Arnold Schwarzenegger var
útskrifaður af St. Johns spítalan-
um í Santa Monica í gær. Kappinn
lenti í mótorhjólaslysi sl. sunnudag
og brákaði rifbein sín í kjölfarið.
Hinn 54 ára gamli Arnold er í góð-
um gír þrátt fyrir slysið sagði tals-
maður hans í gær. Engar nánari
upplýsingar voru gefnar upp um
slysið en ljóst er að það mun ekki
hindra Arnold í því að fara á skíði
með fjölskyldunni í jólafríinu.
„Engar áhyggjur, þetta mun ekki
hafa áhrif á skíðaferðalag mitt
með fjölskyldunni til Sólardalsins
[Sun Valley í Idahoe] þessi jólin,“
segir í yfirlýsingu hans.
Slysið mun heldur ekki hafa
áhrif á undirbúning stórmyndar-
innar T3, framhald Terminator
myndanna sem gerðu Schwarzen-
egger að þeirri stjörnu sem hann
er. Schwarzenegger skrifaði í síð-
ustu vikur undir samning um þátt
sinn í myndinni og segir sagan að
hann fái 30 milljónir dollara fyrir
hlut sinn í myndinni. Talsmaður
hans vildi ekki staðfesta upphæð-
ina í gær en vísaði henni ekki á
bug.
Undirtitill myndarinnar er, The
Rise of the Machines, og stefnir í
að hún verði ein dýrasta kvikmynd
sögunnar.
ARNOLD SCHWARZENEGCER
Alltaf sami töffarinn.
Einhverjum var mikið í mun að
hafa áhrif á niðurstöður kosn-
ingar á visi.is um spurningu
dagsins sem birt er á bls. 2 í
Fréttablaðinu. Á þriðjudag var
spurt hvort kjósendur teldu að ol-
íufélögin hefðu samráð sín á milli
um verðlagningu á bensíni og
olíu. Eftir kvöldmat í fyrrakvöld
tóku menn eftir að í gang fór gíf-
urleg þátttaka í kosningunni. I
ljós kom að í Danmörku voru ein-
hverjir áhugasamir um málið.
Þeir höfðu haft fyrir því að for-
rita tölvu til þess að taka þátt í
atkvæðagreiðslunni og sendi hún
á skömmum tíma inn hátt í tvö
þúsund atkvæði þar sem spurn-
ingunni var svarað neitandi.
Fréttablaðs- og Vísismenn sáu við
svindlaranum, gátu ógilt atkvæð-
in og birt réttu niðurstöðurnar
sem voru þær að 96% kjósenda
telja að samráð sé haft en 4%
ætla að svo sé ekki.
I^blaðinu í gær voru viðraðar
spekúlasjónir Kremlverja um
að Stöð 2 hefði sýnt mikið við-
skiptavit með því að hafa viðtal
Hans Kristjáns Árnasonar við
Jón Baldvin Hannibalsson svo
seint á dagskránni að venjulegt
fólk var farið að sofa. Stöðin ætli
svo að græða fúlgur f jár á að
selja viðtalið á myndbandi. Nú
höfum við fregað að þarna hafi
Kremlverjar ofmetið snillingana
á Lynghálsi. Þeir borguðu víst
ekki krónu fyrir viðtalið því Hans
Kristján, stofnandi stöðvarinnar,
gaf það endurgjaldslaust til birt-
ingar. Hans Kristján stendur svo
einn og óstuddur að útgáfu mynd-
bandsins, án nokkurra afskipta
þeirra á Lynghálsinum.
Packard Bell
800 MHz dúndurvél
með 10 Gb diski og
DVD drifi
179.900
XL1000
Komdu og hlustaðu % ,Q
S' ~ i '
Stílhreint útlit og skarpur hljómur einkennir þessa glæsistæðu frá SHARP ÉBf 29.900
BGKO
28" sjónvarp
ístofuna og
14" í barnaherbergið
1»
Verð frá 21.900
DVD-spilarar
sem spila öll svæði
Úrval DVD-spilara %
á verði frá 29.900
R212
P
Þinn eigin
skyndibita-
staður
Hann gerirlífið léttara,
hefur útlitið með sér og
poppar vel.
14.900
AEG
Brauðrist AT250 fyrir
daglegt brauð
5.290
LEIKUR íHENDI 32m
lófatölvan með
stóra skjínum
fg
13.990
ioottar
og pönnur
gera matargerðina ^
að skemmtun. 2.990
Árvirkmn, Seifossi •Hmlionau:: Akureyrí • Straimwr isatirði * Belsll, Vestmannaeyjum
• Svelnn Buðmundsson, Egilsstöðum • Lfósboglnn, Ketlavlk • Hljómsýn, Akranesi •
Versl. HúslO, Grínóavlk • Öryygi, Húsavík •Eiectro, Oalvík • Verslunin Vík, Neskaupsstað
• Brlmnes. Vestmannaeyjum * Rás, Þortákshöfn • KF Borgtlrölnga, Borgarnesi KF
Vopntiröinga, Vopnafirði-KF V-Húnvetninga, Hvammstanga • KF Húnvetnlnga, Blönduósi
• Skagllrölngabúö, Sauöarkróki • Ralbær, Siglufirði • KF Sleingrímsljarðar. Hólmavik
• Versl. Einars Stetánssonar, Búðardal •Guöni E. Hallgrimsson, Grundarfirði • Sparkaup,
Fáskrúðsfirði • Kask, Höfn • Blómslurvelllr, Hellissandl *Mostell, Hellu • Klakkúr, Vfk
• Versl. Urö, Raufarhöfn • Versl. Bakki, Kópasskeri • Hjalll Slgurösson, Eskifirði
JÓLAGJAFIR
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
VINNINGSHAFINN
Kristjana Harðardóttir vann Yaris bil i símahappdrætti á dögunum. Fyrir viku vann hún
300 kall í sama happdrætti. Með henni á mynd er Valgerður dóttir hennar
Stærsta jóla-
^ r r
gjofin í ar
Að vinna í happdrætti er gaman. Að minnsta
kosti eru Kristjana og Björn úr Hafnarfirði á
þeirri skoðun. Þau unnu á dögunum nýjan
Yaris bíl í símahappdrætti DAS.
happdrættisvinningur „Þetta er
meiriháttar. Við höfum í rauninni
aldrei kynnst öðru eins.“
Þetta eru fyrstu orð Kristjönu
Harðardóttur, ljónheppins vinn-
ingshafa úr Hafnarfirði, þegar
ég spyr hana út í nýja Yaris bíl-
inn sem hún hreppti í símahapp-
drætti á dögunum. Kristjana ætl-
ar að selja bílinn.
„Við eigum bíl. Við munum
selja hann og nota peningana til
að greiða niður skuldir," segir
Björn Sigtryggsson, bifvélavirki
og eiginmaður Kristjönu. Björn
er skráður fyrir símanum og
vinningurinn á hans nafni. Krist-
jana hringdi hins vegar inn svo
þau munu með réttu skipta með
sér vinningnum.
Bílavinningur þeirra hjóna er
ekki eini happdrættisvinningur-
inn sem rekið hefur á fjörur þeir-
ra að undanförnu. Fyrir tæpum
hálfum mánuði vann Kristjana
300 krónur í sama happdrætti.
„Ég hélt reyndar að ég hefði
unnið stóran vinning vegna þess
að það var hringt í mig. Þetta var
símsvari sem tjáði mér að ég
hefði unnið 300 krónur."
Kristjana segist vera á þeirri
skoðun að stórir vinningar eigi
að fara þangað sem neyðin er
mest og nefnir að bílavinningur-
inn sé yfrið nógu stór fyrir þau.
„Mér finnst þetta hæfilegur
vinningur," segir Björn líka.
„Þegar fólk fer að fá of mikið
verður það bara vitlaust."
Sem fyrr segir fer andvirði
bílsins í að greiða niður skuldir
og veraldlegar freistingar bíða
betri tíma. Kristjana blæs á það
þegar ég spyr hvort ekki sé
freistandi að fjárfesta í pels eða
öðru slíku ef vera skyldi að hann
kólnaði að nýju?
„Nei, nei, nei. Ég er engin
pelsakona," segir hún afdráttar-
laust.
Kristjana og Björn hafa valið
lit á nýja Yaris bílinn. Hann er
grásanseraður og lyklana fengu
þau afhenta í gær.
kristjangeir@frettabladid.is
Hvernig stendur á því að hjá
þeim eru þetta alltaf taugarnar
en við erum skaphundar?
; ^