Fréttablaðið - 18.02.2002, Blaðsíða 24
FRÉTTABLAÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - sfmbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar
HYUNDAI
Total IT Solution Provider
Hagkvæm og íraust tölva
(T^TÆKNIBÆR Skipholti 50C
S: 551-6700 www.tb.is
Umboðsaðili HYUNDAI á Islandi
tengingar
;;;^040
Starnote P 4 1.6 GHz
Algengt
uera
GEHA dufthylki HP 27A
Ljosritunarpappir
GRlFFILL
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Borgarstjóra-
kosningar
Sú kraftbirting lýðræöisins í höfuð-
borginni sem menn hafa hingað til
kallað borgarstjórnarkosningar hefur
nú verið aflögð og í staðinn er í ráði
að halda hér borgarstjórakosningar í
vor. Keppendur eru tveir - Ingibjörg
Sólrún og Björn Bjarnason.
——
ÞETTA verður ljómandi spennandi
keppni og svo virðist sem margir
séu reiðubúnir að láta hefjast til
valda með því að sitja á kápufaldi
annars hvors frambjóðandans; það
heitir að taka sæti á lista. Á íslandi
hefur það alltaf verið talinn dóna-
skapur að hagga við fólki sem er
búið að koma sér makindalega fyrir
og því hefur það vakið athygli að
Stefán Jón Hafstein hefur fengið þá
flugu í höfuðið að það sé góð latína
að skora þá svarabræður Hjörvar og
Hrannar til hólmgöngu.
ENGINN slíkur áskorandi hefur
stigið fram til að berjast við Alfreð
Þorsteinsson hjá Framsóknarflokkn-
um enda gerðist sá fáheyrði atburður
á fundi kjördæmisráða þar á bæ að
Sigrún borgarfulltrúi dró sig í hlé úr
borgarmálapólitíkinni óumbeðin og
þótti sumum stórmannlegt að þekkja
sín takmörk, en öðrum var það óskilj-
anlegt með öllu að nokkur manneskja
vildi víkja úr valdastól með góðu. Ég
átta mig ekki alveg á því hvað Vinstri
grænir eru að aðhafast á þessu sviði
frekar en öðrum.
—+—-
FLOKKURINN sem Björn ætlar að
leiða til sigurs ætlar að hlífa okkur
við þeim hjaðningavígum sem eru
hluti af lýðræðislegu prófkjöri. Þess
í stað verður traustum mönnum falið
að smíða stjörnulista. Mér finnst
sjálfgefið að vinsæl kona sé í öðru
sætinu og sting upp á Dorrit
Músaéff. í þriðja sæti finnst mér
enginn annar en Þórarinn fyrrum
símaforstjóri koma til greina. Björk
væri fín í fjórða sætið og Kári Stef-
áns í það fimmta. í sjötta sætið þarf
mann sem höfðar til unga fólksins
og það gæti verið Johnny Naz. Linda
Pétursdóttir væri glæsileg í sjöunda
sætinu og svo náttúrlega hin fórn-
fúsa Inga Jóna í því áttunda. Þetta
væri sterkur listi. Þó finnst mér enn
vanta nafn þess manns sem einn
gæti leitt Flokkinn til sigurs í
Reykjavík. Það er auðvitað ekki við
hæfi að ég sé að blanda mér í fram-
boðsmál Flokksins en fyrsti stafur-
inn í því nafni er D. ■
STARFSMAÐUR MÁNAÐARINS
Þegar þú kaupir Ijósritunarpappírinn og aðrar rekstrarvörur fyrirtækisins þar sem þær eru ódýrastar
sparar þú fyrirtækinu ekki aðeins óþarfa útgjöld - þú eflir samkeppnisstöðu þess um leið.
Þú ættir skilið titilinn „starfsmaður mánaðarins". Til hamingju!
SKfllFSTOFUMABKAÐUR
Reiknivélarúllur
50 rúllur í kassa
OPNUMARTÍMI
virka daga 1 0-1 8
laugardaga 12-16
Skeifunni 1 1d • Simi 533 1010
Bantex möppur
Tandurhrein tilboð á þvottavélum,
þurrkurum og uppþvottavélum
15-20% afsláttur
BRÆÐURNIR
ORMSSON