Fréttablaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 20. febrúar 2002 FRÉTTABLAÐIÐ Listhús E-541: Sýnaí Volkswagen- rúgbrauð mynplist Listhús E-541 hefur gengið til samstarfs við Listaháskóla Is- lands en hópur myndlistarnema mun á næstu vikum sýna þar rýmistengd verk sem sérstaklega eru unnin með listhúsið í huga. Listhúsið er bifreið af gerðinni Volkswagen „rúgbrauð“ og meðan á sýningum þessum stendur verður það eitthvað á ferðinni. Væntan- lega verður þó þægilegast að skoða sýningarnar á bílastæði fyrir utan Borgarleikhúsið eða Grenimel 7. Þau sem sýna eru (í þessari röð): Elín GuðmundardóUir, Sigur- veig Árnadóttir, Iðunn Árnadóttir, Sólveig Einarsdóttir og Lóa H. Hjálmtýsdóttir, íris Eggertsdóttir, Helga Árnadóttir, Bergur E. Sig- urðarson og Jóhanna B. Bene- ÓVENJULEGT LISTHÚS Listhúsið er bifreið af gerðinni Volkswagen-rúgbrauð. diktsdóttir. Hver sýning stendur í tvo til þrjá daga og stendur til 15. mars. ■ s »8 ' í Tónlistarhátíðin Elíasardagar: Semur tónverk fyrir börn ELÍAS DAVfÐSSON tónleikar Elíasardagar er yf- irskrift tónlistarhátíðar sem Tónlistarskóli Sigursveins stendur fyrir næstu fjóra dagana. Á hátíðinni munu nemendur flytja einleiks- og kammerverk eftir Elías Davíðsson, tónskáld. Elías, sem borinn er og barns- fæddur í Palestínu, settist að á íslandi árið 1962. Hann fékkst við að semja nú- tímatónlist á árunum 1960- 1975 þangað til hann ákvað að leggja þær tónsmíðar á hilluna. Næstu 22 árin vann hann sem tölvunarfræðing- ur. Ákvað hann að venda kvæði sínu í kross og snúa sér að tónlist- arkennslu barna. „Áður en það gat orðið þurfti ég að setjast aftur við píanónám og klára það sem upp á vantaði til að fá kennara- Fyrstu tónleikarnir verða í kvöld ( Árseli, fé- lagsmiðstöð Árbæjar og hefjast þeir kl. 18. réttindi. Það var árið 1986 og ég orðin 45 ára gamall. Við píanó- kennsluna uppgötvaði ég hvað lít- ið var til af góðri tónlist fyr- ir börn á fyrstu námsstig- um.“ Elías tók upp á því að byrja að semja lög fyrir nemendur sína. Fljótlega fóru samkennarar hans að óska eftir ljósritum af lög- unum. „Það má segja að þá hafi boltinn farið að rúlla. Tónverkamiðstöðin gaf út fyrstu tvö verkin mín og fljótlega eftir það fóru kennarar að biðja mig um að semja fyrir fleiri hljóðfæri en píanó.“ Elías hefur ílengst í tónsmíðunum og er í dag talinn eitt þekktasta tón- skáld Evrópu sem sérhæfir sig í tónsmíðum fyrir börn. Gefnar hafa verið út rúmlega tuttugu bækur með kennsluverkum hans sem notuð eru víða um Evrópu. ■ Útsala Flísar Flísar, Innréttingar, Nuddbaðkör o.f.l. á 15-50% afslætti Mætið og gerið góð kaup. Mílanó-Flísaverslun Ármúla 17a - Sími: 511 1660 Niður á milli Brúnás og Glóey ifi@a Gildir frá 18. til 25. Tii'boð miðastÆ aðþaðsésott' j 533 2200 ART-AD.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.