Fréttablaðið - 28.05.2002, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 28.05.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTABLAÐIÐ KIÖRKASSINN EKKI A ÞINC Netverjar eru síður á því að borgarstjórinn fari á þing að ári. Hefurðu trú á að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir taki þátt í þingkosningunum að ári? Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is Spurning dagsins í dag: Er líklegt að brjótist út kjarnorkustríð milli Indlands og Pakistan? Farðu inn á vísi.is og segðu I þina skoðun ____________ SJÁLFSMORÐSÁRÁS Palestínumaður sprengdi sig í loft upp í sjálfsmorðsárás í bænum Petach Tikvah, nálægt Tel Aviv í gær. Sj álfsmorðsárás: Kona og 2 ára barn létust ísrael Tveir ísraelar létust þegar Palestínumaður sprengdi sig í loft upp í bænum Petach Tikvah, ná- lægt Tel Aviv í gær. Auk Palest- ínumannsins lést tveggja ára stúlka og kona. Tuttugu manns særðust, þar af þrjú bðrn. Palestínumaðurinn sprengdi sig í loft upp í verslunarmiðstöð í bænum. Talið er að hann hafi ver- ið að hefna áhlaups ísraelska hersins inn í Jerúsalem í gær. Þá setti herinn á útgöngubann og af- tengdi stóra sprengju. Herinn réðist einnig inn í Jerúsalem á sunnudaginn. Shaul Mofaz, yfirmaður ísra- elska herráðsins, sagði að herinn myndi halda áfram að þrengja að Palestínumönnum ef sjálfs- morðsárásir þeirra stöðvuðu ekki. ■ | STJÓRNMÁL [ Utlit er fyrir að Samfylking og Framsóknarflokkur haldi áfram meirihlutasamstarfi á Akranesi. Flokkarnir vinna nú að útfærslu málefnasáttmála. Frek- ar eru líkur á að Gísli Gíslason, bæjarstjóri, haldi áfram störfum en að nýr bæjarstjóri verði ráð- inn. ..♦— Fimmtungur kjósenda Sam- fylkingarinnar á Akureyri strikuðu yfir nafn Oktavíu Jó- hannesdóttur, oddvita flokksins. 230 af u.þ.b. 1.200 kjósendum flokksins strikuðu yfir nafn hennar að sögn RÚV. 60 breyttu röð listans og færðu Oktavíu neð- ar á lista. —--$-- Framsóknarmenn og Sjálfstæð- ismenn héldu áfram viðræð- um um myndun meirihluta í bæj- arstjórn Akureyrar í gær. Viö- ræðurnar eru sagðar í góðum gangi og aðeins talið tímaspurs- mál hvenær gengið verði frá mál- efnasamningi. 2 28. maí 2002 ÞRIÐJUDAGUR Flugmálastjóm neitar brotum á loftferðalögum: Kæra vegna útgáfu skírteina sögð rugl lögreglumÁl Heimir Már Péturs- son, upplýsingafulltrúi Flugmála- stjórnar, segir kæru sem lögð hef- ur verið fram hjá lögreglunni í Reykjavík og lýtur að meintri ólög- legri útgáfu lofthæfisskírteina vera ranga. Gögnin sem kærend- irni hafi aflað sér frá Flugmála- stjórn og byggja kæruna á séu ófullnægjandi. Kærendurnir eru Jón Ólafur Skarphéðinsson og Friðrik Þór Guðmundsson, feður tveggja drengja sem létust af völdum Skerjafjarðarslyssins. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu lögðu Jón og Friðrik fram gögn með kæru sinni sem þeir telja sýna að þrjár flugvélar Leiguflugs ís- leifs Ottesen ehf. hafi fengið loft- hæfisskírteini á árinu 2000 án þess að uppfylla nauðsynleg skilyrði. Þeir segja m.a. að annar hreyfill vélarinnar TF-GTX hafi verið komin 142 flugtíma fram yfir heimilaðan tíma. „Þetta er allt rugl. Hreyfillinn var innan leyfilegra marka. Sam- HEIMIR MÁR PÉTURSSON Upplýsingafullltrúi Flugmálastjórnar segir að beiðni um lögreglurannsókn á útgáfu lofthæfisskírteina þriggja flugvéla (sleifs Ottsens vera „rugl". kvæmt flugrekstrarbók, sem við samþykktum um leið og vélarnar komu til landsins, voru þessar vél- ar innan leyfilegra marka. Kærendurnir hafa fengið ljósrit af einhverjum skráningargögnum en hafa ekki allar upplýsingar í hönd- unum.“ ■ [lögreglufréttirI Karlmaður kastaðist út úr mal- arflutningabifreið á Geld- inganesi í gærkvöld. Að sögn lög- reglu er talið að maðurinn hafi misst stjórn á bílnum með fyrr- greindum afleiðingum. Maðurinn slasaðist ekki mikið en marðist nokkuð. ....... Harður árekstur varð á Húsa- vík í gærkvöld þegar tveir bílar lentu saman á Héðinsbraut, aðalgötu bæjarins. Að sögn lög- reglu sluppu ökumennirnir ómeiddir en bílarnir eru mikið skemmdir og þurfti að draga ann- an þeirra af slysstað með krana- bíl. Tildrög slyssins voru þau að annar ökumannanna fipaðist og ók á rangan vegarhelming. Kaupa í SR-mjöli Síldarvinnslan bætti við sig verulegum eignarhluta í SR-mjöli í gær. Samherji rúmlega tvöfaldaði eignarhlut sinn. Líklegt að óskað verði eft- ir hluthafafundi. Kom á óvart þar sem kosin var ný stjórn á föstudag. FLUGLEIÐIR Tapið minnkar milli ára. „Menn selja þegar þeir fá gott tilboð segir Magnús. sjávarútvegur „Við viljum vera þátttakendur í þeirri hagræðingu sem er í farvatninu í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski. Við höfum átt gott samstarf við SR-mjöl og teljum hagræðingarmöguleika fel- ast í fjárfestingu í góðu félagi,“ seg- ir Björgólfur Jó- hannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar hf. Félagið keypti rúm 24 prósent í SR-mjöli í gær fyr- —♦— ir um 1,5 milljarð króna og á tæp 29 prósent í félaginu eftir kaupin. Síldarvinnslan var ekki ein um að kaupa hlut í SR-mjöli í gær. Síð- degis keypti Samherji nær 8 pró- sent í fyrirtækinu. Fyrir átti Sam- herji 5% og því samtals tæp 13 pró- sent eftir að kaupin áttu sér stað. Björgólfur segir aðdraganda að kaupunum hafa verið stuttan. Ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um hvort óskað verði eftir hluthafa- fundi á næstunni. Öll mál varðandi stjórnarsæti eigi eftir að skýrast betur. Rætt verði við stjórnendur og stjórnarmenn SR-mjols á næst- unni. „Það eru engin læti af okkar hálfu.“ Hann segir ekki ráðgert að Síld- arvinnslan auki við sig eignarhlut. Nú verði næstu skref skoðuð. „Ég trúi ekki öðru en að allir séu tilbún- ir að vinna saman að framgangi þessa máls.“ Aðalfundur SR-mjöls var hald- inn síðasta föstudag. Á sunnudag- inn sagðist Benedikt Sveinsson stjórnarformaður félagsins ekki vita til þess að breytingar væru framundan á eignarhaldi SR-mjöls. Einn stjórnarmaður, Magnús Krist- insson, seldi svo á mánudag allan sinn hlut og fyrirtæki síns, Bergs Hugins í Vestmannaeyjum. Sölu- virði þess eru tæpar 295 milljónir. Auk þess seldi íslandsbanki og Sundagarðar ehf. fyrir tæpar 600 milljónir. „Menn selja þegar þeir fá gott tilboð,“ sagði Magnús Kristinsson. Aðspurður um stjórnarsetu sagði SÍLDARVINNSLAN NESKAUPSSTAÐ Forstjóri Síldarvinnslunnar telur ýmsa hagræðingarmöguleika telast í kaupum á SR-mjöli. Breytingar í veiðum og vinnslu uppsjávarfisks sé í fan/atninu. hann líklegt að nýir hluthafar óski eftir hluthafafundi til að koma að stjórnarmanni. Björgólfur segir að ekki hafi verið haft samband við stjórnarfor- mann SR-mjöls vegna þessara við- skipta. Málið hafi verið lagt fyrir stjórn Síldarvinnslunnar. „Það koma upp svona tækifæri og annað hvort stökkva menn á það eða hafna því.“ Ekki náðist í Benedikt Sveinsson vegna þessa máls. bjorgvin@frettabladíd.is Stjórn hugsanlega að fæðast í Færeyjum: Meirihlutinn yrði afar naumur færeyiar Anfinn Kallsberg, leið- togi Fólkaflokksins í Færeyjum, hefur undanfarna daga reynt að mynda nýja stjórn með Þjóðveld- isflokknum, Sjálfstjórnarflokkn- um og Miðflokknum. Sú stjórn hefði einungis 17 þingmenn af 32 og væri meirihluti hennar því naumur. Þetta væri í raun gamla stjórnin að viðbættum þingmanni Miðflokksins. í gær voru taldar verulegar líkur á því að stjórnin gæti orðið að veruleika mjög fljót- lega. Jenis av Rana, formaður Mið- flokksins, segist í færeyska dag- blaðinu Sosialurin leggja mesta áherslu á að ná fram stefnu flokksins í velferðarmálum. Full- veldismálið er því ekki aðalatriðið fyrir Miðflokkinn. Ef hann nær sínu fram í stjórninni, þá lætur hann sig litlu skipta hvort stjórnin haldi áfram að vinna að sjálfstæði Færeyja. Þegar kosið var í Færeyjum til lögþingsins í lok apríl misstu stjórnarflokkarnir þrír meirihluta sinn. Stjórnarandstöðuflokkarnir þrír fengu heldur ekki meirihluta og hafa stjórnarmyndunartilraun- ir gengið illa til þessa. ■ ANNFINN KALLSBERC Leiðtogi Fólkaflokksins hefur undanfarna daga reynd að mynda nýja stjórn með þremur öðrum flokkum. Sú stjórn hefði aðeins 17 af 32 þingmönnum. Afkoma Flugleiða á fyrsta ársfjórðungi: rTT •• X • I opuou ein- um og hálf- um milljarði viðskipti Flugleiðir töpuðu rúm- lega hálfum milljarði króna á reglulegri starfsemi sinni fyrstu þrjá mánuði ársins. Afkoman er þó þriðjungi betri en á fyrsta árs- fjórðungi í fyrra. Tapið nú nemur 1.553 milljónum króna. Það er 745 milljónum króna minna en á fyrsta ársfjórðungi í fyrra þegar tapið nam 2.298 milljónum króna. Tekjur Flugleiða jukust um 263 milljónir króna á milli ára. Út- gjöld drógust saman um 497 millj- ónir króna. Farþegar í millilandaflugi Flugleiða voru 23,7% færri í síð- asta mánuði en þeir voru í apríl- mánuði í fyrra. Farþegum í innan- landsflugi Flugfélags íslands fækkaði einnig. Þeir voru 18,5% færri í apríl á þessu ári en í sama mánuði á síðasta ári. ■ —*— Fyrrum fylgdarkona dæmd fyrir manndráp: Dæmd fyrir að drepa elskhuga MANNDRÁP Dómstóll í Leeds í Bret- landi dæmdi í gær fyrrum fylgd- arkonu fyrir að bana sambýlis- manni sínum með öxi eftir að þau höfðu haft mök. Maðurinn var handjárnaður og með bundið fyrir augun þegar hann fannst látinn í rúmi sínu á heimili þeirra. Konan hafði þá höggvið hann 20 sinnum með öxinni. Konan sagði að hún hefði ban- að manninum í sjálfsvörn. Ilann hefði hótað henni að myrða hana, misnota þriggja ára dóttur hennar og myrða svo. Vitni báru því við að maðurinn ætti að baki langa sögu ofbeldishneigðar sem hann hefði fengið útrás fyrir í kynlífi. Meðal annars með því að stunda ofbeldiskennt kynlíf meðan hann horfði á dýraklám. ■ Ilögreglufréttir Ekið var á hjólandi vegfarenda á Grettisgötu nálægt gatna- mótum Vitastígs í gærkvöld. Að sögn lögreglu er ekki vitað hvernig slysið vildi til, en maður- inn, sem er 24 ára, slapp með lít- ilshátt meiðsl.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.