Fréttablaðið - 28.05.2002, Side 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
28. maí 2002 ÞRIÐJUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
TÍÐNI OG EÐLI UMFERÐAR-
SLYSA ÁRIN 1990 OG 2000
1990 2000
Alls 881 1.197
*uppl. úr skrám Hagstofu íslands.
MÁR GUÐMUNDSSON
Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir að
þótt gengi krónunnar hafi veikst tíma-
bundið í kjölfar vaxtalækkunar bankans
kunni aðrir þættir að hafa verið ráðandi I
þvi og telur að um eðlilegt gengisflökt hafi
verið að ræða.
Seðlabanki Islands:
Gengið
ræður ekki
vöxtum
efnahagsmál Gengi krónunnar
lækkaði nokkuð í síðustu viku í
kjölfar vaxtalækkunar Seðlabanka
íslands. Már Guðmundsson, aðal-
hagfræðingur Seðlabankans, telur
þó tæpast hægt að draga þá álykt-
un að bankinn hafi farið of skarpt
af stað í vaxtalækkanaferli sínu.
Hann telur frekar að um eðlilegt
gengisflökt hafi verið að ræða og
benti á að gengið hafi styrkst aftur
í vikulokin.
Már vildi lítið gefa út á hvort
gengissigið gæti orðið til þess að
bankinn hægði á vaxtalækkunar-
ferlinu. Hann benti á að frekar
væri horft til næstu verðbólgu-
mælingar. Hann sagðist ekki búast
við miklum verðhækkunum, þótt
rauða strikið sé að baki. „Þær
gætu orðið einhverjar, en raska
ekki, að okkur sýnist, síðustu verð-
bólguspá. Samkeppni er vaxandi
og samdráttur í eftirspurn sem
gerir mönnum erfiðara að hækka
verð en ella,“ sagði hann. ■
—♦—
Selfoss:
Höfnuðu
lægri stöðu
landið Tveir gamalkunnir bæjar-
starfsmenn á Selfossi og forstöðu-
menn stórra deilda á bæjarskrif-
stofunum höfnuðu lægri stöðu £
bæjarkerfinu sem þeim stóð til
boða samkvæmt nýju skipuriti
sveitarfélagsins.
Karl Björnsson, bæjarstjóri,
segir Ólöfu Thorarensen, félags-
málastjóra, sem er forstöðumaður
á félagsþjónustusviði samkvæmt
núgildandi skipuriti, hafa verið
boðin staða deildarstjóra fjöl-
skyldudeildar á félags- og
fræðslusviði. Jóni Guðbjörnssyni,
bæjartæknifræðingi, sem er for-
stöðumaður tækni- og umhverfis-
sviðs samkvæmt núgildandi
skipuriti, var boðin staða deildar-
stjóra gatna- og fráveitudeildar á
framkvæmda- og veitusviði.
Sunnlenska sagði frá. ■
Kosningabaráttan í Reykjavík:
R-listabaráttan kostaði 30 milljónir
kosningar „Við settum okkur
markmið í upphafi um hvernig
ætti að reka kosningabaráttuna og
stóðum við það,“ segir Ingvar
Sverrisson, kosningastjóri
Reykjavíkurlista. „Við tókum þá
ákvörðun að reka hana á okkar
fólki sem vann með framboðinu af
hugsjón."
Kostnaður við kosningabarátt-
una segir Ingvar að nemi 30 millj-
ónum króna. „Upphaflegar áætl-
anir gerðu ráð fyrir að baráttan
myndi kosta 25 - 26 milljónir
króna. Við ákváðum að bæta að-
eins í og því endar baráttan í 30
milljónum. „Við ákváðum að birta
nokkrar auglýsingar til að svara
blekkingum Sjálfstæðismanna um
Geldinganes og fjármál borgar-
innar. Að öðru leyti var staðið full-
komlega við áætlun.“
Ingvar segir að hver þeirra
þriggja flokka sem stóðu að fram-
boðinu hafi lagt fram eina milljón
í kosningasjóð. Þá hafi frjáls
framlög félaga og tekjur af kosn-
ingahappdrætti skilað drjúgu.
Samanlagt standi þetta undir um
helmingi kostnaðar. Framlög fyr-
irtækja og einstaklinga úti í bæ
standi undir hinum helmingnum.
Ekki verður upplýst um hverjir
lögðu mest fram þar sem þeir hafi
óskað nafnleyndar. Taka verði til-
lit til þess. ■
STJÓRAR FAGNA
Stóðum við þær áætlanir sem við höfðum
gert fyrir baráttuna segir Ingvar.
Útgerdir sakaðar um
70 milljóna sjálftöku
Forseti Pakistans:
Segist ekki vilja stríð
Útgerðir fjögurra báta á Snæfellsnesi sæta kæru fyrir að hafa veitt sam-
tals 487 þorskígildistonn án þess að hafa til þess heimildir. Útgerðirnar
héldu veiðum áfram þótt aflaheimildir hafi verið uppurnar og að Fiski-
stofa hafi svipt þá veiðileyfi.
ÓLAFSVÍK
Útgerðir þriggja báta á Ólafsvík eru sakaðar um að hafa haldið bátunum blákalt til veiða
án þess að hafa aflaheimildir og jafnvel eftir að bátarnir voru sviptir veiðileyfi. Sama gildir
um útgerð eins báts á Hellissandi.
tæpum 74 tonnum af þorski. Aðr-
ar tegundir voru ufsi, steinbítur,
langa, keila, skarkoli, þykkvalúra
og skötuselur.
Vegið meðalverð á óslægðum
þorski á fiskmörkuðum á Vestur-
landi £ janúar til mars á þessu ári
var 144 krónur á k£ló. Miðað við
þetta meðalverð er má gróflega
áætla að verðmæti aflans sem út-
gerðirnar eru sakaðar um að hafa
veitt £ heimildarleysi sé um 70
milljónir króna.
í byrjun april gaf efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjórans
út ákæru á hendur útgerð og áhöfn
Sveins Sveinssonar BA-325 fyrir
að hafa veitt tæp þrjú tonn af
þorski á lokuðu svæði og fyrir að
hafa veitt ríflega 5 tonn umfram
aflaheimildir.
gar@frettabladid.is
LðGREGLUMÁL Útgerðir fjögurra
báta á Snæfellsnesi hafa verið
kærðar til embættis rikislög-
reglustjóra fyrir að hafa veitt
samtals 487 þorskigildistonn um-
fram aflaheimildir. Bátunum var
öllum haldið til veiða fyrr i vor
jafnvel eftir að ljóst var að áhafn-
ir þeirra höfðu veitt umfram
heimildir og bátarnir verið sviptir
veiðileyfum.
Það er Fiskistofa sem kærir
bátana en stofnunin hefur eftirlit
með veiðum við landið. Fiskistofa
telur útgerðir bátanna sekar um
auðgunarbrot. Efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra fer því
með rannsókn málsins.
Bátarnir sem um ræðir eru
Klettsvík SH-340, Bervík SH-143,
Aðalvík SH-443 og Stormur SH-
333. Þeir eru allir gerðir út frá
Ólafsvík nema Stormur en heima-
höfn hans er Hellissandur. Útgerð-
ir bátanna heita Bervík ehf., Krist-
ján ehf., Snoppa ehf. og Blíða ehf.
Umframaflinn skiptist tiltölu-
lega jafnt á bátana. Stormur og
Bervík veiddu hvor um sig tæp
125 tonn umfram heimildir,
Klettsvík tæp 120 tonn og Aðalvík
ríflega 118 þorskígildistonn.
Langstærsti hluti umframafla
bátanna var þorskur. Þó veiddi
Bervík rúm 42 tonn af ýsu á móti
Bátur Útgerð Porskígildist.
Stormur Bliða ehf. 124,7
Bervík Kristján ehf. 124,6 1
Klettsvík Bervlk ehf. 119,8 |
Aðalvík Snoppa ehf. 118,4 1
islamabap. ap Pervez Musharraf,
forseti Pakistans, sagðist í sjón-
varpsávarpi til þjóðar sinnar í
gær ekki vilja stríð við Indland.
Hann fordæmdi hryðjuverk og
sagði af og frá að Pakistan heim-
ilaði uppreisnarmönnum í
Kasmír að fara yfir landamærin
til Indlands og gera þar árásir.
Um leið ítrekaði hann stuðning
sinn við sjálfstæðisbaráttu í
Kasmír.
Spenna hefur vaxið undanfar-
ið milli Indlands og Pakistans
vegna Kasmírs, sem ríkin hafa
deilt um í meira en hálfa öld. í
síðustu viku sögðu indversk
stjórnvöld þolinmæði sína á þrot-
um og báðu hermenn sína að búa
sig undir úrslitaátök. Um síðustu
helgi gerðu Pakistanar tilraunir
með kjarnorkuvopn, en sögðu
þær ekkert tengjast hótunum
PERVEZ MUSHARRAF
Ávarpaði þjóð slna í gær.
Indverja. Bæði ríkin hafa safnað
saman hátt í milljón hermönnum
við landamæri ríkjanna.
George W. Bush Bandaríkja-
forseti hefur reynt að fá Mus-
harraf til þess að koma í veg fyr-
ir hryðjuverk aðskilnaðarsinna í
Kasmir gegn Indverjum. Mus-
harraf sagði hins vegar í ræðu
sinni að þessir sömu uppreisnar-
menn væru að gera hryðjuverk
innan landamæra Pakistans. ■
Bruninn á Laugarvegi:
Enn í lífs-
hættu
slysfarir Karlmaður, sem hlaut
alvarlega brunaáverka þegar eld-
ur kom upp í risíbúð á Laugar-
vegi 20-B á laugardagsmorgun,
er enn í lífshættu.
Að sögn læknis á gjörgæslu-
deild Landspítalans við Ilring-
braut er manninum haldið sof-
andi í öndunarvél.
Greiðlega gekk að slökkva
eldinn, en um er að ræða stórt
timburhús. Upptök eldsins eru
ókunn en málið er í rannsókn hjá
Tæknideild lögreglunnar í
Reykjavík. ■
LANDSPÍTALINN fossvogi
Að sögn læknis er maðurinn með alvar-
lega heilaáverka.
Líkamsárásin í
Hafnarstræti:
Enn meðvit-
undarlaus
í öndunarvél
lögregla Hittugu og tveggja ára
karlmaður, sem ráðist var í Hafn-
arstræti á laugardagsmorgun, er
enn í lífshættu. Hann fór í aðgerð
á Landspítalanum í Fossvogi strax
á laugardaginn og liggur enn með-
vitundarlaus í öndunarvél á gjör-
gæsludeild. Að sögn læknis er
hann með alvarlega heilaáverka.
Tveir menn um tvítugt réðust á
manninn og lömdu hann til óbóta.
Að sögn lögreglu hafa mennirnir,
sem báðir gáfu sig fram við lög-
reglu á sunnudaginn, ekki gefið
upp neina ástæðu fyrir árásinni.
Talið er að þeir hafi verið undir
áhrifum áfengis þegar atburður-
inn átti sér stað. Mennirnir, sem
hafa verið úrskurðaðir í gæslu-
varðhaldi til 4. júní, hafa báðir
komið áður við sögu hjá lögreglu.
Þó ekki vegna atburða í líkingu
við þann sem átti sér stað á laug-
ardaginn. ■
—♦— ,
Pharmaco Island:
Fjárfestar
volgir
fyrirtæki Hreggviður Jónsson
segir að það gangi ágætlega að
safna saman fjárfestum um eign-
arhaldsfélagið sem kaupir 80 pró-
sent eignarhlut í Pharmaco ísland
ehf. og hann er í forsvari fyrir.
Hann vildi ekki tjá sig um hverjir
væru nefndir til sögunnar fyrr en
búið væri að ganga frá stofnun fé-
lagsins.
Móðurfélag Pharmaco ísland,
Pharmaco hf., bætti eiginfjár-
stöðu sína um 3 milljarða með
sölu hlutarins. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins tekur
Pharmaco ísland yfir skuldir auk
þess að greiða með reiðufé. Sölu-
verðið var ekki gefið upp. ■
STUTT
Karlmaður festist í lyftu í
Bankastræti 5 síðdegis í gær.
Kalla þurfti slökkviliðið á staðinn
og tók nokkurn tíma að komast
inn í húsið, þar sem það var lok-
að. Að sögn slökkviliðs varð
manninum ekki meint af dvölinni
í lyftunni. Hann hafði brotið rúðu
og fékk því nægt súrefni. Maður-
inn er starfsmaður hjá Sævari
Karli, en sú verslun er í Banka-
stræti 7.