Fréttablaðið - 28.05.2002, Blaðsíða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
28. maí 2002 ÞRIÐIUDACUR
SPURNINC DAGSINS
Fórst þú á kosningavöku
á kosninganótt?
Já, ég geri það alltaf, það tilheyrir
kosninganóttinni.
Örvar Arnar Árnason, smiður.
SPRÆKLECIR GRÍSIR
í mars, apríl og maí 2002 fór fram eftirlits-
verkefni Hollustuverndar ríkisins og Heil-
brigðiseftirlits sveitarfélaga. Öll svínakjöt-
sýnin voru talin söluhæf samkvæmt regl-
um heilbrigðisráðuneytis og vinnuhandbók
Hollustuverndar hvað varðar saurkólígerla
og salmonellu.
Saurkólígerlar
og salmonella:
Svínakjöts-
synmoll
söluhæf
heilbricðismál Svínakjöt sem til
sölu er í verslunum hér uppfyllir
kröfur sem gerðar eru til þess um
gerlamengun og salmonellu.
Salmonella fannst hvergi í sýnum
í eftirlitsverkefni Hollustuvernd-
ar ríkisins og Heilbrigðiseftirlits
sveitarfélaga þar sem kannað var
örveruástand svínakjöts. Niður-
stöður rannsóknarinnar voru
kynntar fyrir helgi. Þá kom fram
að magn saurkólígerla í kjötinu
var undir viðmiðunarmörkum.
Hollustuvernd brýnir fyrir
neytendum að gegnsteikja svína-
kjöt og gæta fyllsta hreinlætis við
matreiðslu þess til að koma í veg
fyrir hugsanlega krossmengun. ■
ERLENT
*
Irak segist hafa skotið niður
ómannaða breska eða banda-
ríska könnunarflaug yfir norður-
hluta landsins á sunnudagsmorg-
un. Bandaríkin segja þetta ekki
rétt.
Leiðtogar Rússlands og aðildar-
ríkja NATO hittast í Róm í
dag til þess að stofna formlega
samstarfsráðið, sem utanríkis-
ráðherrar sömu landa gerðu sam-
komulag um í Reykjavík um
miðjan maí. Á fundinum verður
einnig rætt um væntanlega
stækkun NATO
George W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, heimsótti í
gær grafreit bandarískra her-
manna sem féllu í innrásinni í
Normandí árið 1944. „Sá dagur
kemur aldrei, að Bandaríkin
gleymi þeim,“ sagði Bush.
Saumavél í brúnni tösku olli
hræðslu í Kaupmannahöfn í
gær. Sprengjusérfræðingar voru
fengnir til að rannsaka töskuna,
sem fannst í reiðileysi á götu úti
fyrir utan samkunduhús gyðinga
þar í borg. Nokkrum götum var
lokað um hríð af ótta við að
saumavélin væri sprengja.
Héraðsdómur Reykjavíkur ætlar að dæma í nágrannadeilum í Skerjafirði:
Nágrönnum gert að
verjast Kára fyrir dómi
ðómsmál Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur hafnað frávísunar-
kröfu væntanlegra nágranna
Kára í Skerjafirði. Málinu verður
því haldið áfram.
Nágrannarnir höfðu kært
byggingarleyfi sem borgin veitti
Kára vegna fyrirhugaðs einbýlis-
húss á Skeljatanga 9. Úrskurðar-
nefnd skipulags- og byggingar-
mál felldi leyfið úr gildi í fyrra.
Arngrímur ísberg héraðsdóm-
ari vísaði hins vegar frá máli
Kára gegn Reykjavíkurborg og
úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingarmála. Hann sagði
þessa aðila ekki eiga hagsmuni í
málinu.
Nágrannar Kára, Guðmundur
Jónsson og hjónin Herdís Hall-
varðsdóttir og Gísli Helgason,
vildu að máli Kára gegn þeim
yrði vísað frá dómi vegna van-
reifunar. Dómarinn taldi kröfu-
gerð Kára hins vegar skýra og að
fullu ljóst á hverju hún byggir.
Einnig hafnaði hann þeirri rök-
semd nágrannana að vísa bæri
málinu frá þar sem Kári hefði
ekki gætt þess að stefna öðrum
íbúum í nágrenninu sem einnig
hefðu kært. Kæra þess fólks
beindist hins vegar gegn breyt-
ingum á deiliskipulagi á lóð Kára
en ekki að útgáfu byggingarleyf-
isins sem deilan snýst um. ■
Bólusett við
heilahimnubólgu
Oll börn frá þriggja til átján ára bólusett gegn sjúkdómum af völdum
meningókokka af gerðinni C.
bólusetningar Ákveðið hefur ver-
Sjúkdómurinn
veldur lífs-
hættulegri
heilahimnu-
bólgu og sýk-
ingu í blóði og
dregur hann
einn af hverj-
um tíu til
dauða
—♦—
ið að hefja bólusetningu á börnum
frá þriggja mánaða til átján ára
aldurs gegn meningókokkasjúk-
dómi C. Sýkingum af völdum
þessarar tegundar heilahimnu-
bólgu hefur mjög fjölgað á undan-
A . förnum árum og
hafa að jafnaði
greinst tíu tilfelli á
ári að sögn Harald-
ar Briem sóttvarn-
arlæknis. „Sjúk-
dómurinn veldur
lífshættulegri
heilahimnubólgu
og sýkingu í blóði
og dregur hann
einn af hverjum tíu
til dauða. Auk þess
er alltaf hætta á faraldri á tíu til
tuttugu ára fresti þar sem tugir
barna og unglinga geta veikst."
Haraldur segir undirbúning
bólusetningarinnar standa yfir og
reiknar með að það taki minnst
tvö ár að bólusetja öll börn til
átján ára aldurs.
Þær hefjast síðar á
þessu ári. „Sjúk-
dómurinn herjar
helst á börn 1-5 ára
og 14-18 ára en um
ástæður þess er
ekki vitað.“ Harald-
ur segir að stutt sé
síðan tekist hafi að
framleiða bóluefni
geng meningókokk-
um C sem veitir
varanlega vörn.
„Það hefur þegar
Bretlandi og á ír-
TEKUR ALLT
AÐ TVÖ ÁR
Haraldur Briem
telur að allt að
tvö ár takí að
bólusetja alla.
verið reynt i
landi með góðum árangri en þar
er tíðni sjúkdómsins svipuð og
hérlendis."
Þórólfur Guðnason barnalækn-
ir og sérfræðingur í smitsjúkdóm-
um barna segir að eftir að Bretar
hafi byrjað að bólusetja hafi sjúk-
dómstilfellum fækkað um 90% og
það sé ekki ástæða til ætla annað
en árangur hér verði svipaður.
HEILSUVERNDARSTÖD REYKJAVÍKUR
i . Ift ■■■ , rprkI flVARNADEILD Q>*
LÚSg^@^'^KLAVARNADEILD
TRÚNAÐARLÆKNIR
ATVINNUSJÚKDOMADEILD
OG
HEILSUVERNDARSTÖÐIN VIÐ BARÓNSSTÍG
Bólusetningarnar eru í undirbúningi og hafist verður handa síðar á þessu ári.
„Heilahimnubólga af völdum men-
ingókokka B var til skamms tíma
mun algengari hér en tilfellum
hefur fækkað til muna. Ekki hefur
tekist að framleiða gott bóluefni
gegn þeirri tegund en það lætur
nærri að tilfellin séu sjö á móti
þremur hvað C gerðin er algeng-
ari.“ Þórólfur segir sjúkdóma af
völdum meningókokka mun al-
gengari hér en í nágrannalöndun-
um að Bretlandseyjum undan-
skyldum. „Það er ekki vitað hvers
vegna og það er enga skýringu að
finna á því nema tilgátur einar.“
Þórólfur vill árétta að þó með
þessari bólusetningu takist að
fækka mjög tilfellum af völdum
meningókokka af gerðinni C mun
sjúkdómurinn ekki hverfa með
öllu.
bergljot@frettabladid.is
Hótelið á Þingvöllum opnar 7. júní:
Nýr vert á Valhöll
þingvellir Elías Einarsson veit-
ingamaður í Borgartúni 6 ehf.
mun reka veitinga- og gistiþjón-
ustu á Hótel Valhöll í sumar. For-
sætisráðuneytið valdi fyrirtæki
Elíasr úr hópi þriggja fyrirtækja
sem buðu í reksturinn.
Að sögn Guðmundar Árnason-
ar, skrifstofustjóra í forsætis-
ráðuneytinu, mun ríkið sjá til þess
að grunnþættir, eins og vatn, frá-
rennsli og rafmagn sé fyrir hendi
og í lagi. Borgartún 6 ehf. muni
hins vegar leggja út í talsverðar
endurbætur í hótelinu sem nauð-
synlegar séu til að selja megi þar
þjónustu. Fyrirtækið á að auki
greiða leigu sem tengd verður
tekjum af rekstrinum.
Gistiaðstaða er fyrir 59 manns
á Hótel Valhöll. Nokkur breyting
verður á gistiþjónustunni því hún
mun eiga verða fábrotnari en
áður, meira í ætt við bændagist-
ingu. Til dæmis verða ekki símar
eða sjónvörp á herbergjum.
Elías Einarsson segist stefna
að því að opna hótelið 7. júní nk.
og halda því opnu út september. í
matseldinni muni hann m.a.
HÓTEL VALHÖLL
Elías Einarsson veitingamaður í Borgartúni
6 ehf. mun reka veitinga- og gistiþjónustu
á Hótel Valhöll I sumar.
leggja áherslu á silung úr Þing-
vallavatni og lambakjöt. Hlaðborð
verði allar helgar.
Nýi hótelhaldarinn á Þingvöll-
um segir reksturinn leggjast vel í
sig: „Eg er ævintýtamaður og
stóðst ekki þessa áskorun." ■
Grandi hf.:
Rekstrar-
tekjur
aukast
sjávarútvegur Grandi og dóttur-
fyrirtæki þess, Faxamjöl, hagnað-
ist um 575 milljónir á fyrstu
þremur mánuðum ársins 2002. Á
sama tíma í fyrra var hagnaður-
inn 68 milljónir króna. Rekstrar-
tekjur fyrirtækisins á tímabilinu
námu 1.673 milljónum króna sam-
anborið við 1.257 milljónir króna á
sama tíma á síðasta ári og jukust
um 33%.
Hreinar fjármunatekjur námu
193 milljónum króna samanborið
við 128 milljóna króna gjöld á
sama tíma árið 2001. ■
HÉRAÐSDÓMUR
REYKJAVÍKUR
Sýkn af kynferðisbroti:
Orð
gegn orði
dómsmál Karlmaður sem ákærður
var fyrir að hafa þuklað á 13 ára
stúlku var í gær sýknaður í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur.
Stúlkan mun hafa verið gest-
komandi hjá manninum.
Orð stúlkunnar stóð gegn orði
mannsins sem neitaði öllum ásök-
unum um kynferðisbrot gegn
barninu. Dómarinn sagði ekki
hægt að dæma manninn enda
væru þau aðeins tvö til frásagn-
ar. Engin sýnileg gögn sem
styddu ákæruna hefðu komið
fram í málinu. ■
ÞYRLA LANDHELGISGÆSLUNNAR
Sköpum skiptir i sjávarháska að upplýsing-
ar berist björgunarmönnum fljótt og ör-
ugglega. Sjálfvirka tilkynningarskyldukerfið
þykir bylting að þessu leyti.
Sjálfvirka
tilkynningarkerfið:
Tíðar
tækjabilanir
öryggismál Starfshópur á vegum
samgönguráðuneytis segir sjálf-
virka tilkynningarskyldukerfið,
STK, fyrir báta undir 24 metrum
hafa sannað gildi sitt. Hins vegar
þurfi að sníða ýmsa agnúa af kerf-
inu.
Alls hafi 97 tæki af um 1500
bilað á tveimur árum. Einnig hafi
lofnet meira en 140 tækja bilað.
Senda þarf tækin til Bretlands til
viðgerða. Það hefur hingað til tek-
ið of langan tíma, eða um sex vik-
ur. Samið hefur verið um að þessi
tíma verði styttur niður í tvær til
þrjár vikur. Starfshópurinn segir
að fjölga þurfi varatækjum sem
hafi reynst vera of fá til að anna
eftirspurn.
Starfshópurinn segir að stytta
þurfi tímann sem þarf til að þrýs-
ta að neyðarhnapp. í dag þurfi að
þrýsta á hnappinn á fimm sekúnd-
ur til að neyðarskeyti skili sér.
Stytta þurfi þennan tíma í eina
sekúndu. ■