Fréttablaðið - 28.05.2002, Blaðsíða 8
8
FRETTABLAÐIÐ
28. maí2002 ÞRIÐIUDACUR
Slys í Grafarvogi:
Féll tíu
metra niður
i ijoru
slys Níií ára gömul stúlka slasað-
ist þegar hún féll tæpa 10 metra
niður í fjöru við Krosshamra í
Grafarvogi. Tildrög slyssins eru
þau að stúlkan var að leik í hömr-
unum þegar hún féll. Óttast var að
hún hefði hlotið höfuðáverka því
fallið var hátt. Að sögn vakthaf-
andi læknis á Landspítalanum
handleggsbrotnaði stúlkan en
hlaut ekki önnur meiðsli. Hún var
þó lögð inn á barnadeild til
frekara eftirlits. ■
Tj BpWjfBappppafPi f t, ' V, £ G ' „v 'eít'
WARNEKS
Jbt/anQs* iejaby
Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins
Urslitin sýna góða stöðu flokksins
kosnincar „Við í Framsóknar-
flokknum erum ánægð og sátt
með þessar niðurstöður yfir land-
ið í heild. Við vinnum verulega á í
mörgum byggðarlögum en við
verðum vissulega fyrir áföllum í
öðrum. Þegar á heildina er litið þá
teljum við að þessar niðurstöður
sýni að flokkurinn hafi tiltölulega
góða stöðu og hafi verið í sókn að
undanförnu," segir Halldór Ás-
grímsson, formaður Framsóknar-
flokksins. „Það er alveg ljóst að
úrslit þessara kosninga ráðast af
mörgum mismunandi þáttum. Að
einhverju leyti spilar lands-
málapólítíkin inní en að lang-
mestu leyti eru það málefni við-
komandi staðar og einstaklingarn-
ir sem þar eru, sem hafa áhrif.
Þessi niðurstaða lýsir trausti á þá
einstaklinga sem eru að vinna á
vegum flokksins og þá vinnu sem
fer fram á vegum Framsóknar-
flokksins. Á mörgum stöðum
erum við hins vegar í samstarfi
við aðra, til dæmis í Reykjavík og
þar af leiðandi fáum við ekki
beina vísbendingu um stöðu okkar
þar. ■
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
„Þegar á heildina er litið þá teljum við að
þessar niðurstöður sýni að flokkurinn hafi
tiltölulega góða stöðu og hafi verið í sókn
að undanförnu,"
[LÖGREGLUFRÉTTIRl
Ovenju rólegt var hjá lögregl-
unni á ísafirði um helgina.
Gleðin var mikil en fór að öllu
leyti vel fram. Lögreglan var þó
kölluð út til að taka niður ís-
lenska fánann sem hafði gleymst
í kosningaspennunni.
Tvær bílveltur urðu í Öxnadal
en ekki urðu slys á fólki. Sam-
kvæmt lögreglunni á Akureyri
var mikill kosningafiðringur í
fólki en fór allt vel fram.
Bifreið rann í hálku og fór út
af í nágrenni Egilsstaða. Öku-
maður slapp ómeiddur og ekki
urðu skemmdir á bílnum.
Sóknarfæri í
Sjávarútvegsfyrirtæki huga að þorskeldi og sjá sóknarfæri þar. Enn er verið að
rannsaka hagkvæmni sjókvíaeldis hér við land. Sérfræðingar og útgerðir vilja forðast áföll sem
hrjáðu laxeldi á sínum tíma.
undirfataverslun
Síðumúla 3-5
Sími 553 7355
Opið mán.-föst. kl. 11-18
laugard. kl. 11-15__I
sjávarútvegur Horft er til stórfellds
þorskeldis hér við land sem sóknar-
færis fyrir sjávarútveginn í land-
inu. Enn liggur þó ekki fyrir hvort
þorskeldi hér við land er arðvæn-
legur kostur. Þá er talið að
sjávarkuldi geti sett nokkurt
strik í reikninginn og haft
áhrif á vaxtarhraða þorsks-
ins.
Allnokkur sjávarútvegs-
fyrirtæki eru farin að huga
að þorskeldi og nokkur kom-
in af stað með eldi. Þar á
meðal eru Útgerðarfélag
Akureyringa, hraðfrystihús-
ið Gunnvör, fiskvinnslan
Þórsberg í Tálknafirði,
Hraðfrystihús Eskifjarðar og Sfld-
arvinnslan á Neskaupstað.
Á Neskaupstað hefur verið sótt
um leyfi til eldis 2.000 tonna af þors-
ki á ári og er umsóknin í meðförum
Skipulagsstofnunar. Eldi fyrirtæk-
isins nú nemur um 16 tonnum.
Valdimar Ingi
Cunnarsson
sjávarútvegs-
fræðingur tel-
ur sjávarkulda
hér við land
helsta þrösk-
uldinn í vegi
þorskeldis.
Sindri Karl Sigurðsson, umsjónar-
maður þorskeldis Sfldarvinnslunn-
ar, segir viðbúið að leyfisveitingar-
ferlið geti tekið nokkurn tíma. „En
þótt menn vilji ekki hafa neinn asa á
hlutunum þarf að fara að
huga að seiðaframleiðslu og
fleiru sem þarf til eldisins,"
sagði hann og bjóst við tekið
gæti um 10 ár að ná fram
eldi sem stæði undir vænt-
ingum. „Vitleysan sem var
gerð um ‘86 þegar farið var
út í þetta í stórum stíl var að
einstaklingar stóðu að eldinu
en ekki fyrirtæki. Það þarf
þolinmótt fjármagn í þetta
og að unnið sé að málunum
hægt og rólega," sagði Sindri.
Valdimar Ingi Gunnarsson, sjáv-
arútvegsfræðingur er verkefnis-
stjóri Þorskeldis á íslandi sem er
samstarfsverkefni fyrirtækja og
opinberra aðila á sviði sjávar-
útvegs. „Aðalverkefnið er að meta
Húsgögn eftir þínum þörfum
hornsófar
stakir sófar
stólar
hvíldarstólar
svefnsófar
veggeiningar
borðstofuhúsgögn og fl.
SJÓKVfAELDI VIÐ ÍSLANDSSTRENDUR
Talið er víðbúið að ekki veiðist meira en um 300 þúsund tonn af þorski á ári úr stofnun-
um hér við land. Af þeim sökum sjá sjávarútvegsfyrirtækin sóknarfærin helst ( eldisþorski.
IMenn eru engu að síður minnugir erfiðleika sem hrjáðu laxeldi og vilja fara varlega.
Höfðatúni 12 105 Reykjavík Sími 552 5757
www.serhusgögn.is
hagkvæmni þorskeldis hér við land.
Við leggjum áherslu á að þetta verði
þróunarvinna til að byrja með og
menn fari ekki út í stórt,“ sagði
hann. „Við höfum verið að reyna að
bremsa þróunina af og áréttað að
þetta sé kannski ekki jafn arðvæn-
legt og margur vill halda. Eldið er í
raun á tilraunastigi." Valdimar seg-
ir margt geta sett strik í reikninginn
hér við land. „Flöskuhálsinn verður
alltaf sjókvíaeldi við ísland, þar eig-
um við í miklum örðugleikum. Við
þurfum að þróa betur tækni til að
geta alið þorsk án stórfelldra áfalla
eins og var í laxeldinu á sínum
tíma,“ sagði Valdimar og taldi sjáv-
arkulda helsta þröskuldinn í vegi
þorskeldisins. „Þar sem hitastigið
er mun lægra hér við land verður
vaxtarhraðinn mun minni en annar
staðar. Það minnkar möguleika okk-
ar á að ná svipuðum framleiðslu-
kostnaði og t.d. Norðmenn og Skot-
ar.“
oli@frettabladid.is
Drífðu þig í dag og fáðu
dágóðan afslátt!
^ Spring-, latex-, svamp-
\ eggjabakkadýnur
Dg margt f leira meö
15-30®/® afslætti!
OPIÐ
Mörkin 4 • 108 Reykjavík
Sími 533 3500 • www.lystadun.is
15-30% afsláttur!