Fréttablaðið - 28.05.2002, Síða 12
FRÉTTABLAÐIÐ
. FÓTBOLTI
28. maí 2002 ÞRIÐJUDAGUR
Maradona fær ekki að fara á HM:
Vísað frá vegna
lyfjaneyslu
KÁTAR KÁPUR
Þýsku leikmennirnir Marko Rehmer og
Miroslav Klose virðast ánægðir með kátu
kápurnar sem þeir fengu að gjöf frá gest-
gjöfum í Japan. Þjóðverjar undirbúa sig nú
af fullum krafti fyrir heimsmeistarakeppn-
ina. Þeir mæta Sádí-Aröbum í fyrsta leik.
fótbolti Knattspyrnusnillingurinn
Diego Armando Maradona má
ekki fara til Japans og fylgjast
með heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu. Ástæðan er einföld,
hann hefur verið dæmdur fyrir
fíkniefnamisferli. Samkvæmt
japönskum blöðum hefur málið
valdið deilum innan ríkisstjórnar
landsins. Utanríkisráðherrann
vildi hleypa knattspyrnugoðinu
inn í landið en innanríkisráðherr-
ann neitaði.
Maradona er 41 árs og einn
dáðasti knattspyrnumaður sög-
unnar. Hann stýrði liði Argentfnu
til sigurs í heimsmeistarakeppni
20 ára og yngri árið 1979. Hann
endurtók svo leikinn með aðallið-
inu árið 1986.
Maradona var sendur heim úr
heimsmeistarakeppninni í Banda-
ríkjunum árið 1994 eftir að leifar
af kókaíni fundust í blóði hans.
Hann fékk 15 mánað bann vegna
lyfjaneyslu árið 1991 og aftur
DIEGO ARMANDO MARADON
Lék síðasta opinbera knattspyrnuleik
sinn fyrr á árinu.
þremur árum seinna. Árið 1997
var hann enn og aftur tekinn fyrir
lyfjaneyslu og hugðist þá leggja
skóna á hilluna. Það var þó ekki
fyrr en á síðasta ári að hann lagði
skóna alfarið á hilluna. ■
Símadeild karia;
ÍBV
sækir
Fram heim
fótbolti Fram tekur á móti ÍBV í
kvöld í fyrsta leik þriðju umferð-
ar Símadeildar karla. Fram er í 6.
sæti deildarinnar með tvö stig eft-
ir tvær umferðir. Liðið gerði jafn-
tefli við Grindavík og Keflavík, 1-
1.
ÍBV er í áttunda sæti deildar-
innar með eitt stig. Liðið gerði
jafntefli við KA en tapaði fyrir
Keflavík heima. Það má því búast
við hörku viðureign. Leikið verð-
ur á Laugardalsvelli og hefst leik-
urinn klukkan 19.15. ■
| ÍÞRÓTTIR í DAG |
18.00 Sýn Heklusport
18.00 Stöð 2 Leiðin á HIVI
19.00 Sýn Símadeildin (Fram - ÍBV)
19.15 Símadeild karla
Fram - ÍBV
20.00 1. deild kvenna A
Þróttur R. - Fjölnir
20.00 1. deild kvenna A
Haukar - RKV
21.15 Sýn Leið Brasiliu á HM
22.10 Sýn Leiðin á HM
22.40 Sýn Heklusport
23.10 Sýn Leiðin á HM
MOLAR [
Marcelo Bielsa þjálfari
Argentínumanna á HM
stendur frammi fyrir því vanda-
máli, ef vandamál
skyldi kalla, að
þurfa að velja á
milli tveggja frá-
bærra framlínu-
manna í liðið.
Þetta eru þeir
Hernan Crespo,
sem gerði 17
mörk í 33 leikum í
undankeppninni, og mesti argen-
tínski markaskorari allra tíma,
Gabriel Batistuta sem hefur gert
55 mörk í 75 leikjum. Argentínu-
menn stilla upp í svokallaða 3-3-
1-3 leikaðferð.
Annar höfuðverkur Bielsa er
að velja markmann, þar er
samkeppnin hörðust á milli
German Burgos hjá Atletico Ma-
drid og Pablo Cavallero hjá Celta
Vigo. Þriðja erfiða ákvörðunin
verður að velja hægri kantmann
frammi, þar koma til greina Ariel
Ortega, Gustafo Lopez og síðast
en ekki síst kókaínbróðir Mara-
dona, Claudio Caniggia, sem hef-
ur átt við meiðsli að stríða og
verður líklega ekki tilbúinn í
fyrsta leik.
Lykilleikmenn
í lamasessi
Þrír dagar í heimsmeistarakeppnina. Fjöldinn allur af leikmönnum
meiddir eða verða ekki með. Zidane missir af tveimur leikjum. Eng-
lendingar og Þjóðverjar í vandræðum. Inzaghi ekki með í fyrsta leik.
Hefur áhrif á auglýsingatekjur.
fótbolti „Ég hef því miður slæmar
fréttir að færa,“ sagði Claude Simo-
net, yfirmaður franska knatt-
spyrnusambandsins, þegar hann
tilkynnti að Zinedine Zidane, besti
knattspyrnumaður heims og lykil-
leikmaður landsliðsins, myndi
missa af tveimur fyrstu leikjunum
á heimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu. Zidane, sem er dýrasti
knattspyrnumaður heims, mun
missa af opnunarleik mótsins sem
og leik við Úrúgvæja. Talið er að
Frakkland og Úrúgvæ muni berjast
um efsta sæti A-
riðils.
Zidane meidd-
ist í æfingaleik við
Suður-Kóreu á
sunnudaginn.
Myndataka sýndi
að hann verður frá
í tveimur fyrstu
leikjunum. Hann
er ekki eini lykil-
leikmaður sem á
við meiðsli að
stríða. Claudio Cannigia, framherji
argentínska landsliðsins og Celtic,
gat ekki æft á sunnudaginn var
vegna hnémeiðsla sem hann hlaut í
bikarúrslitaleik í Skotlandi.
Sömu sögu er að segja af Danan-
um Martin Jörgensen, Jason
McAteer hjá írlandi, Alen Boksic
hjá Króatíu, Agustin Delgado hjá
Ekvador, Chris Armas hjá Banda-
ríkjunum. Óvíst er hvort þeir verði
með á HM.
Englendingar hafa orðið fyrir
hverju áfallinu af fætur öðru.
DAVID BECKHAM
Meiddist I leik í
Meistaradeildinni.
CANNIGIA FILLIPO INZAGHI
Meiddist á hné I Meiddist á hné I
bikarúrslitaleik. æfingaleik.
Landsliðsfyrirliðinn, David Beck-
ham, hefur verið á sérstökum æf-
ingum síðan hann ristarbrotnaði í
leik í Meistaradeild Evrópu fyrr á
árinu. Auk hans er óvíst með fjóra
aðra miðjumenn liðsins. Kieron
Dyer, Nicky Butt, Danny Murphy
og Steven Gerrard.
Framherjinn Filliipo Inzaghi
meiddist á hné þegar ítalir lögðu
japanska liðið Kashima Antlers, 2-
1. í fyrstu var talið að hann hefði
slitið liðbönd en myndataka sýndi
að svo var ekki. Hann verkjar þó
MEIDDUR
Zinedine Zidane einn besti knattspymu-
maður heims missir af öllum líkindum af
tveimur fyrstu leikjum franska landsliðsins.
Frakkland er í riðli með Úrugvæ, Senegal
og Danmörku.
enn í hnéð og óvíst er hvort hann
verði með í fyrsta leik gegn
Ekvador.
Þýski landsliðshópurinn á einnig
í vanda. Miðjumaðurinn Michael
Ballack er tæpur. Sebastian
Deisler, Mehmet Scholl, Jens
Nowotny, Christian Worns og Alex-
ander Zickler verða ekki með.
Liðin þurfa að tilkynna 23
manna leikmannahóp sólarhring
áður en keppnin hefst. Það er því
ljóst að áhorfendur munu ekki
berja marga af bestu knattspyrnu-
mönnum heims augu þegar flautað
verður til leiks á föstudaginn kem-
ur. Talið er að meiðsli leikmanna
geti einnig sett strik í reikninginn
þegar að auglýsingum og styrktar-
aðilum kemur.
kristjan@frettabladid.is
STEVE COTTERILL
Arftaki Guðjóns Þórðarsonar
hjá Stoke City.
Nýr þjálfari Stoke:
Cotterill
tekur vid
af Guðjóni
fótbolti Steve Cotterill var í gær
ráðinn knattspyrnustjóri Stoke
City. Hann tekur við starfinu af
Guðjóni Þórðarsyni. Guðjón kom
Stoke upp í 1. deild á síðasta tíma-
bili en samningur hans var ekki
framlengdur.
„Ég vil bjóða Steve Cotterill
velkominn til starfa hjá Stoke
City,“ sagði Gunnar Þór Gíslason,
stjórnarformaður liðsins í yfirlýs-
ingu sem hann sendi frá sér í gær
á heimasíðu liðsins.
„Cotterill hefur fengið góð
meðmæli og er einn eftirsóttasti
þjálfari landsins. Hann hefur náð
góðum árangri með Cheltenham á
þeim tíma sem hann hefur stjórn-
að liðinu."
Cotterill þjálfaði Cheltenham
Town og kom liðinu upp í 2. deild
á síðasta tímabili. Óánægju hefur
gætt meðal sumra stuðnings-
manna Stoke City eftir að Guðjóni
var sagt upp. Gunnar Þór segir
mikilvægt að stuðningsmenn viti
hvaða mann félagið er að ráða.
„Það er mikilvægt að stuðn-
ingsmenn okkar þekki þjálfarann
og störf hans. Hann er maðurinn
sem við vorum að leita að. Hann
er metnaðargjarn og vill koma
liðinu enn lengra. Við tökumst á
við fyrstu deildina á næsta ári og
svo er stefnan sett á Úrvalsdeild-
ina.“ ■