Fréttablaðið - 28.05.2002, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 28. maí 2002
FRETTABLAÐIÐ
17
Nýlistasafnið í Los Angeles:
Aldrei fleiri
Warholverk
mynplist Um helgina opn- ; m | með frægum dósaumbúö-
aði í Nýlistasafninu í Los unt Campbell-súpu. betta
Angeles stærsta yfirlits- er einnig stærsta sýning
sýning yfir verk Andy |jP9pft jfl sem Nýlistasafnið í Los
Warhol til þessa. Þar er | y ^ Angeles hefur ráðist í.
að finna rúmlega 200 »U^H I síðustu viku var hald-
málverk, teikningar og inn kvöldverður í safninu
önnur verk eftir Warhol. andy warhol þar sem hinar ýmsu
Aldrei hefur áður verið Popplistamaðurinn stjörnur Los Angeles
safnað saman jafn mörg- Andy Warhol brosir á heiðruðu Dennis Hopper
um verkum eftir lista- mynd sem var tekin leikara, sem var góður
manninn. Meðal þeirra ánð 1976' vinur Warhol til fjölda
eru Elvis, Maó, Marilyn og Soup, ára. Fimmtán ár eru síðan Warhol
ORANGE MARILYN
Andy Warhol málaði þessa mynd árið
1964 og hafði til hliðsjónar ramma úr kvik-
myndinni Niagara, sem Marilyn Monroe
lék í árið 1953.
lést. Skipuleggjendur hjá safninu
búast við gríðarlegum fjölda fólks
á sýninguna, sem stendur yfir í
allt sumar. ■
Broadway í kvöld:
Sígaunarnir lentir
tónleikar í kvöld er loks komið að
tónleikum rúmönsku sígauna-
sveitarinnar Taraf de Ha'idouks.
Hljómsveitin kom til landsins í
gær. Þetta eru fyrstu tónleikar
hennar af þremur á Listahátíð í
Reykjavík.
Taraf de Haidouks er fjórtán
manna sígaunasveit frá Rúmeníu,
sem spilar fyrir fólk á öllum aldri
í öllum heimshornum. Sveitin nýt-
ur vinsælda um allan heim og er
sögð vera frægasta sígaunahljóm-
sveit sögunnar. „Sígaunasveitin
Taraf á engan sinn líka, nema
kannski Charlie Chaplin," segir
tónlistargagnrýnandi The Times.
TARAF DE HAÍDOUKS
Fjórtán manna sígaunasveit frá Rúmeníu.
Spilar á Broadway í kvöld, á morgun og á
fimmtudaginn.
Fljótlega eftir að miðasala á
Listahátíðina hófst seldist upp á
tvenna tónleika sígaunasveitar-
innar á Broadway, á morgun og
fimmtudag. Því var ákveðið að
bæta tónleikunum í kvöld við. ■
DAVID HARRINGTONS
Vonast til að Sigur Rós semji einn
daginn verk fyrir kvartettinn.
KRONOS
Pönkarar klassíska geirans?
búin að vinna lögin þeirra mikið
og styðjumst við raftæki í flutn-
ingum. Mér finnst tónlist þeirra
mjög hrein, skýr og persónuleg.
Eitthvað sem er mjög sjaldgæft
að heyra frá hljómsveit. Ég er að
vonast til að þeir semji einhvern
tíman verk fyrir Kronos," segir
David að lokum og byrjar að
ókyrrast í sæti sínu. Enda eru fé-
lagar hans byrjaðir að stilla
hljóðfæri sín í fjarska og ehginn
er kvartettinn án fjórða manns.
biggi@frettabladid.is
LEIKHÚS_____________________________
20.00 Nemendaleikhúsið sýnir Sumar-
gesti eftir Maxim Gorkí á nýja
sviði Borgarleikhússins. Hluti af
lokaverkefni nemendanna, sem
útskrifuðust frá LHÍ á laugardag.
20.00 Einleikurinn Sellófon í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu. Björk Jakobs-
dóttur samdi og leikur.
OPNUN_______________________________
17.00 Sölusýning á nýjum dönskum
bókum í Pennanum Eymundsson
við Austurstræti. Danski fiðluleik-
arinn Kristian Jörgensen spilar
nokkur lög. Sýningin stendur í
tvær vikur.
SÝNINGAR____________________________
Sýníngin Konan - Maddama, kerling,
fröken, frú ... er f Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar. Á þessari Ijóða- og högg-
myndasýningu flytja skáldkonur Ijóð,
sem þær hafa samið við verk Sigurjóns.
Þær eru Guðrún Eva Mínervudóttir,
Fríða Á. Sigurðardóttir, Þórunn Valdi-
marsdóttir, Kristín Ómarsdóttir, Vilborg
Dagbjartsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir,
Elísabet K. Jökulsdóttir, Ingibjörg Har-
aldsdóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir,
Margrét Lóa Jónsdóttir og Vigdís
Grimsdóttir. Sýningargestir geta hlýtt á
lestur skáldkvennanna af geisladiski.
Sýningin er liður á dagskrá Listahátíðar i
Reykjavík og stendur til 30. júní.
I Safnaskálanum að Görðum á Akranesi
er sýningin íþróttasaga íslands . Þar er
sögð saga íþrótta á (slandi og tengsl
þeirra við sögu landsins. Sýningunni er
ætlað til frambúðar að verða í nýju sýn-
ingarrými í Safnaskálanum. Nær allar
íþróttagreinar eru kynntar og helstu af-
reksmenn og íþróttamunir skoðaðir.
MYNDLIST____________________________
Sýningin Enginn getur lifað án Lofts er
í aðalsal Hafnarborgar, menningar- og
listastofnunar Hafnarfjarðar. Þar gefur að
líta ún/al Ijósmynda eftir Loft Guð-
mundsson. í Sverrissal Hafnarborgar er
sýning á málverkum Elíasar B. Hall-
dórssonar frá síðastliðnum tveimur
árum.
í Listasafni ASf stendur sýning á verk-
um listakvennanna Guðbjargar Lindar
Jónsdóttur, Guðrúnar Kristjánsdóttur
og Kristínar Jónsdóttur frá Munka-
þverá. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar
í Reykjavík.
Alda Ármanna Sveinsdóttir sýnir stutt-
sýninguna Konur í borginni i Gallerí
Reykjavík við Skólavörðustíg. Þar sýnir
hún olíumálverk unnin á árinu. Við-
fangsefníð er konur og ýmislegt úr
kvennamenningu, matarstúss, ávexti,
blóm og draumar. Sýningin stendur til
31. maí. Aðgangur ókeypis.
Fyrirlesari frá Úrúgvæ:
Ljóðið sem andspyrnuafl
fyrirlestur Dr. Enrique Fierro
heldur fyrirlestur í stofu 101 í
Odda klukkan 16.15 í dag. Fyrir-
lesturinn nefnist La poesía como
elemento de resistencia en Latin-
oamérica eða Ljóðagerð sem and-
spyrnuafl í Rómönsku Ameríku.
Dr. Fierro er ljóðskáld frá Úrú-
gvæ. Hann starfar um þessar
mundir sem prófessor við Texas-
háskóla í Austin.
Árið 1974 flúði Dr. Fierro frá
Úrúgvæ og fluttist til Mexíkó.
Árið 1985 sneri hann aftur og var
meðal annars yfirmaður Lands-
bókasafns Úrúgvæ í fjögur ár.
Hann er mikilsvirt ljóðskáld í
heimalandi sínu og víðar um álf-
una. Hann kemur hingað til lands
ásamt ljóðskáldinu Idu Vitale,
sem einnig er frá Úrugvæ.
Fyrirlesturinn fjallar um ljóða-
gerð í álfunni á tuttugustu öld.
Hann verður fluttur á spænsku en
þýddur jafnharðan á íslensku. Dr.
Fierro bregður ljósi á mikilvægi
ljóðahefðarinnar sem andspyrnu-
afls allt frá tímum sjálfstæðisbar-
áttu álfunnar. Ljóðlistin skipar
enn þann dag í dag stóran og mik-
ilvægan sess í mótun sjálfs- og
samfélagsmyndar í þeim mörgu
löndum sem hafa spænsku að
þjóðmáli.
Fyrirlesturinn er í boði heim-
spekideildar Háskóla íslands og
Stofnunar Vigdísar Finnbogadótt-
ur í erlendum tungumálu. ■
DR. ENRIQUE FIERRO
Ljóðskáld frá Úrúgvæ. Flytur
fyrirlesturinn á spænsku en
hann verður þýddur jafn-
harðan á íslensku.
irdi MiAbsp Hafnarfjan
Fjölhæf mús með innbyggðum síma sem er nýjung
fyrir skrifstofuna og netrápið. Ekki binda hendur
við óþarfa og njóttu þess að vera við tölvuna
á meðan þú talar í símann. Hljóðhnappar og Ijós
sem sýnir hvað er í notkun. Auka tengi fyrir
módem eða fax. Fæst í fjölmörgum litum.
Auk þess er þessi mús iíka með hjólflettara
sem gerir rápið á netinu auðveldara fyrir þig
Útvarpsútstöð
fyrir sjónvarpið
Hlustaðu á sjónvarpsþáttinn þinn
án þess að trufla aðra fjölskyldumeðlimi
eða aðra í kringum þig. Þú getur líka hlustað
á útvarpið með þessu litla handhæga tæki.
Músarmotta
Hvar færðu betri þægindi?
Þessi músamotta er alveg einstök
því hún hefur upp á allt að bjóða.
Auk mottunnar er innbyggt með henni
sími, útvarp, reiknivél, dagatal og auk
þess heyrnartæki með hljóðnema.
Ótrúlegt - en satt!
Stafræn
myndavél,
tölvumyndavél
og myndbandstökuvél,
þrjár í einni. Hægt er að halda
netfundi með þessari.
-og pantaðu!
Ýmsar aðrar
spennandi v"~
#
Vmsar-uörurehf.