Alþýðublaðið - 06.05.1960, Page 14
Minningarorð
Framhald af 13. síðu.
ans. Fegurð og gagnsemi hinn-
ar íslenzku sveitanáttúru áttu
inikil hugtök í honum. Oftast
átti hann nokkuð af sauðfé,
sér til skemmtunar og nokk-
urs gagns, hann var einlægur
dýravinur, og fór vel með
þessa vini sína, og hað út af
fyrir sig lýsir að nokkru mann
kostum og góðhug þessa sóma-
manns.
Nú er Þórður Björnsson
horfinn af sviði þessa jarð-
neska lífs, en lífið er dauðan-
um máttugra, og birtan myrkr
inu voldugra, með vori og
hækkandi sól er hann kvadd-
ur til æðri og betri heima, þar
sem vorsólin mun skína hon-
um björt og hlý um alla eilífð.
Hans er sárt saknað af vinum
og kunningjum, en sárastur
er söknuður eiginkonu hans,
sem nú er líka orðin mjög
þrotin að heilsu og kröftum,
en mikil huggun er henni gef-
in í trú og trausti á guð sinn.
Ég og fjölskylda rpín sendum
henni hjartanlega samúðar-
kveðju, og þökkum látnum
eiginmanni hennar hugljúfar
minningar.
Jón Sigurgeirsson.
Ræðo Gylfa
Framhald af 4. síðu.
vallarhugsun í kjaramálum
launþega gekkst Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja fyr
ir því á árinu 1958 að öll heild
arsamtök launþega stofnuðu
til samstarfs um sérfræðilega
athugun á efnahagsmálum
iþjóðarinnar á þeim grundvelli
■að unnt yrði að byggja upp
raunhæfa ópólitíska baráttú,
sem hafnaði lýðskrumi og yf-
i'rboðum, en ynni markvíst að
ibættum lífskjörum.
Öll heildarsamtök launþega,
auk Bandalagsins, Landssam-
iband verzlunarmanna, Sam-
band íisl. bankamanna, Far-
manna- og fiskimannasam-
bandið og Iðnnemasamband
íslands féllust á þessa hug-
mynd. Alþýðusamband ís-
lands eitt hafnaði 'henni.
Þessi' 5 heildarsamtök stofn .
uðu til samstarfs, sem ber
nafnið Samstarfsnefnd laun-
þegasamtakanna. Hefur nefnd
in þegar látið líramkvæma
nokkrar sérfræðilegar athug-
anir.
Eftir að núverandi ríki's-
stjórn hafði boðað hinar marg
þættu og róttæku aðgerðir sín-
ar í efnahagsmálum, ákvað
samstarfsnefndin að beita sér
fyrir því að ei'nhver af efna-
hagssérfræðingum launþega-
samtaka nágrannaþjóða vorra
yrði fenginn hingað til þess
að kynna sér þessar aðgerðir
og láta í té umsögn um þær
með tilli'ti til hagsmuna laun-
þega. Alþýðusambandinu var
boðin aðild að þessu sam-
starfi, en meirihluti sambands
stjórnari'nnar haðnaði því. Ég
harma þessa afstöðu meiri-
iilutans.
Þrátt fyrir þessa afstöðu er
samstarfsnefndin að gera ráð-
stafanir til þess að fá hingað
einn af færustu sérfræði'ngum
hinna norrænu launþegasam-
tak til þess að kynna sér og
gagnrýna þessar efnahagsað-
gerðir.
Vænta má mikils af komu
þessa séri/ræðings hingað ti'l
landsins og ég vona að hin
fjölmennu launþegasamtök,
sem í dag binda vonir sínar
við komu þessa sérfræðings,
beri' gæfu til þess að vega og
meta niðurstöður hans án til-
lits til þess hvort það verður
einum eða öðrum íslenzkum
stjórnmálaflokki til framdrátt
ar eða ekki.
Það er von mín og ósk til
íslenzkra launþegasamtaka á
þessum hátíðisdegi þeirra, að
þau beri gæfu til þess að hafna
pólitísku lýðskrumi og annar-
legum sjónarmiðum i'nnan
launþegasamtakanna, bindi
endi á 12 ára kyrrstöðutíma-
bil í sögu sinni og dragi aftur
að hún þann gunnfána, sem
skóp íslenzka verkalýðshreyf-
i'ngu við erfið skilyrði, hafði
stórkostleg áhrif' á endurreisn
íslenzku þjóðarinnar, tryggði
henni 8 stunda vinnudag, sem
nú er glataður, batt endi á
þrælkun togarasjómanna,
gerði mi’ðaldameðferð á þeim
sem minna máttu sín, — sjúk
um, öryrkjum og gamalmenn-
um, 'að sögulegum smánar-
bletti á mannlegu samfélagi
os skóp íslenzka trygginga-
löggjöf.
ÆSKULÝÐSRÁÐ verður
sett á stofn í Hafnarfirði. Bæj-
arstjórnin hefur samþykkt á-
lyktunartillögu frá meirihlut-
anum þess efnis.
Mestu...
Framhald af 16. síðu.
Vestur-Þjóðverjar. (Hin sex
löndin sem eiga fulltrúa í
nefndinni eru Argentína, Pak-
istan, Arabíska sambandslýð-
veldið, Grikkland, Kanada og
Sovétríkin).
Þegar Panama og Líbería
voru sett hjá, firrtust fulltrú-
ar þeirra og véfengdu rétt-
mæti kosningarinnar. Líberíu
fulltrúinn lét í ljós óskir um
að Alþjóðadómstóllinn fjallaði
um málið.
Hinn 16. janúar s. 1. sam-
þykkti þing Alþjóðasiglinga-
stofnunarinnar að biðja um á-
litsgerð Haag-dómstólsins.
Ný stjarna
Framhald af 16. síðu. I
því sem sést á ljósmynd, seml
þá var tekin, nema sem lítill
ljósdepill af 10—11 stærð, og
kann það að hafa verið upp-
runaleg stærð hennar.
(Samkv. „Aktuelle Medel-
elser fra Astronomisk sel-
skap“ nr. 410 og 412.)
Þorsteinn Guðjónssoon.
*. * c « j »*
íþréllir
Framhald af 11. síðu.
3x50 m. þrísund telpna.
4x100 m. skriðsund karla.
Þátttökutilkynningar skulu
sendar íþróttabandalagi Hafn-
arfjarðar fyrir 28. maí.
í sambandi við sundmeistara
mótið verður sundþing Sund-
sambands íslands haldið og
verður það nánar auglýst síðar.
S.S.f.
Innilegar þakkir viljum við hér með mega flytja þeim
mörgu vinum, sem sýnt hafa okkur og börnum okkar ríkulega
hluttekning við sviplegt fráfall sonar okkar,
SVEINBJARNAR SIGURBERGS SIGVALDASONAR,
er drukknaði aðfaranótt sumardagsins fyrsta s.l.
Við þökkum öll hlýju handtökin ykkar, kæru vinir, allar
samúðarríku kvieðjurnar, allar minningargjafirnar um dreng-
inn okkar ti'l sjúka fermingarbróður hans, og við ibiðjum
ykkur öllum blessunar Guðs.
Hafnarfirði, 6. maí 1960.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
Sigvaldi S. Sveinbjörnsson.
Eiginmaður minn,
E V E N S Æ B O R G ,
andaðist 3. maí á sjúkrahúsi hér í Oslo.
Jónína Sæborg.
Móðir okkar .. .,
ÓLAFÍA ÁSBJARNARDÓTTIR
lézt að heimili sínu, Garðhúsum í Grindavík þ, 5. maí.
Börnin.
14.;6 ... maí 1980 — Alþýðublaðið
lniðvikúdagur
Slysavarðstofan
er opin allan sólarhringinn.
Læknavörður fyrir vitjanir
er á sama stað kl. 18—8. Sími
15030.
o---------------------o
Gengin. Kaupgengi.
1 sterlingspund ____ 106,65
1 Bandaríkjadollar .. 38,00
1 Kanadadollar .... 39,93
100 danskar kr......551,40
100 norskar kr...... 532,80
100 sænskar kr...... 734,70
100 vestur-þýzk mörk 911,25
o-----------------------o
Föstudagur
8. m'aí:
12.00 Hádegisút-
varp. 15.00 Mið-
degisútvarp. —
19.00 Þingfréttir.
— Tónleikar. —
20.00 Fréttir. —
20.30 Spilað fyrir
dansi, — erindi
(Þórleifur Bjarna
son rith.). 20.55
íslenzk tónlist: —
Tónsmíðar eftir
Árna Björnsson
og Sigursvein D. Kristinsson.
21.30 Útvarpssagan: „Alexis
Sorbas“, eftir Nikos Kazant-
zakis; 15. (Erlingur Gíslason
leikari). 22.00 Fréttir. 22.10
Garðyrkjuþáttur: Axel Magn-
ússon garðyrkjukennari talar
um áburðarþörf jarðvegsins.
22.25 Á léttum strengjum: —
Danshljómsveit útvarpsins í
Berlín leikur (sent hingað á
segulbandi). 23.00 Dagskrár-
lok.
Lokunartími sölubúða. — At-
hygli almennings skal vak-
in á því, að lokunartími
sölubúða á laugardögum
breytist nú, — þannig að á
■tímabilinu 1. maí—30. sept.
verður lokað kl. 12 á há-
degi. Á föstudögum er opið
til kl. 7, eins og verið hefur.
Skipaútgerð
ríkisins:
Hekla er væntan-
leg til Rvk í dag
ið vestan úr hring
ferð. Esja er á
Austfjörðum á
suðurleið. Herðubreið fer frá
Rvk í dag austur um land til
Fáskrúðsfjarðar. Skjaldbreið
fór frá Rvk í gær til Breiða-
fjarðarhafna. Þyrill er á Aust
fjörðum á norðurleið. Herj-
ólfur fer frá Rvk kl. 21 í
kvöld til Vestmannaeyja.
Skipadeild S.Í.S.:
Hvasafell losar á Húnaflóa
höfnum. Arnarfell fór í gær
frá Rvk til Vopnafjarðar. Jök-
ulfell fer í dag frá Calais til
Rvk. Dísarfell er í Rotterdam.
Litlafell er á leið til Rvk frá
Akureyri. Helgafell er í Rvk.
Hamrafell fór 3. þ. m. frá
Gíbraltar til Rvk.
Spilakvöld og sumarfagnaður
Borgfgirðingaféalgsins verð
ur í Skátaheimilinu við
Snorrabraut á laugardaginn
kl. 21 stundvíslega. Húsið
opnað kl. 20.15. Glæsileg
kvöld- og heildarverðlaun.
Sumarfagnaður verður hald-
inn hjá Kvenfélagi Hall-
grímskirkju, mánudaginn 9.
maí, kl. 8 e. h. í Blönduhlíð.
Konur
í Styrktarfélagi vangefinna
hafa bazar 8. maí nk. í Skáta
heimilinu við Snorrabraut.
Þeix, sem vilja gefa muni á
bazarinn, eru beðnir að koma
þeim fyrir 1. maí, annaðhvort
í Prjónastofuna Hlín, Skóla-
vörðustíg 18 (verzlunina) eða
til Sigríðar Ingimarsdóttur,
Njörfasundi 2. Bazarnefndin.
Kvenfélagið Aldan: — Munið
skemmtifundinn í Tjarnar-
kaffi laugardaginn 14. maí,
fyrir félagskonur og gesti.
Tilkynnið þátttöku sem
fyrst til Fjólu Helgadóttur,
Hverfisgötu 100B, sími
23282, Sigríður Ólafsdótt-
ur, Laugavegi 82, sími
19916. Þórdísar Karelsdótt-
ur, Bugðulæk 20, sími 36024
og Ernu Jónsdóttur, Hring-
braut 48, sími 11824.
Félag Djúpamanna: Sumar-
fagnaðurinn ér á laugardag
inn 7. þ. m. kl. 9 í Tjarnar-
kaffi, niðri.
mxrfMS
m
w
Wb
Flugfélag
fslands h.f.:
Millilandaflug:
Hrímfaxi fer
til Glasgow og
Kmh. kl. 08.00
í dag. Væntan
leg aftur til
Rvk kl. 22.30 í
kvöld. Gull-
faxi fer til
Oslo, Kmh. og
Hamborgar kl.
10.00 í fyrramálið. — Innan-
landsflug: í daog er áætlað
að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Egilsstaða, Fagurhóls
mýrar, Flateyrar, Hólmavík-
ur, Hornafjarðar, ísafjarðar,
Kirkjubæjarklausturs, Vest-
mannaeyja (2 ferðir) og Þing
eyrar. — Á morgun er áætl-
að að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Egilsstaða, Húsavík-
ur, ísafjarðar, Sauðárkróks,
Skógasands og Vestmanna-
eyja (2 ferðir).
Loftleiðir h.f.:
Leifur Eiríksson er vænt-
anlegur kl. 6.45 frá New
York. Fer til Glasgow og Lon
don kl. 8,15. Leiguflugvélin
er væntanleg kl. 19.00 frá
Hamborg, Kmh., Oslo. Fer til
New York kl. 20.30. Leifur
Eiríksson er væntanlegur kl.
23.00 frá London og Glasgow
— Fer til New York kl. 00.30.
LAUSN HEILABRJÓTS:
Aukagesturinn í herbergi
nr. 1 (gestur nr. 2) er flutt
ur í herbergi nr. 5, en þá
gleymist alveg gestur nr. 6.