Lögberg - 29.07.1954, Blaðsíða 4

Lögberg - 29.07.1954, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 29. JÚLl, 1954 Lögberg Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Gefið 6t hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE. WXNNIPEG, MANITOBA J. T. BECK, Manager Utanáskrift ritstjórana: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG. MAN. PHONE 743-411 Verð $5.0U um árið — Borgist fyrirfram The "Lögberg” ia printed and published by The Columbia Presa Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada Authorlzed as Second Claas Mail, Post Office Department, Ottawa íslands minst í Vesfrurvegi A mánudaginn þann 2. ágúst næstkomandi verður haldin Islendingahátíð á Gimli, hin 65. í röð; skemtiskrá er auglýst á öðrum stað hér í blaðinu og ber hún þess ljós merki, hversu vel hefir til alls undirbúnings vandað verið, enda væri annað með öllu ósæmandi uppruna vorum og ætt. Valdir ræðumenn minnast Islands og Canada, skáld flytja drápur, mikill og vel æfður söngflokkur blandaðra radda skemtir með fjölda íslenzkra úrvalssöngva, auk þess sem hin þjóðlega íþrótt, glíman, verður sýnd. Glæsileg Winnipegkona, „Fjallkonan“, flytur ávarp, helgað Islandi og Canada, en prúðar hirðmeyjar standa um hana vörð; að þetta verði fögur og tilkomumikil hátíð verður eigi dregið í efa; þá verða og sýndar kvikmyndir af lýðveldis- tökunni á Þingvöllum 1944, er prófessor Finnbogi Guð- mundsson útvegaði, og eykur slíkt að sjálfsögðu eigi all-lítið á hátíðabrigðin. Islendingadagsnefndin vinnur eins og að undanförnu öll störf sín endurgjajdslaust; hún stingur einnig tíðum hendinni í eigin vasa vegna kostnaðar, sem leiðir af ferða- lögum hennar til fundarhalda á Gimli; í þessu felzt óeigin- gjörn og fögur þjóðrækni, sem vonandi er að almenningur að fullu meti. Frá því var skýrt í fyrri viku, að íslendingar í Norður- Nýja-Islandi hefðu ákveðið að efna til mannfagnaðar að Iðavelli við Hnausa hinn 14. ágúst- Skemtiskrá er enn eigi að fullu við hendi, en víst er þó um það, að hr. Björn Sigur- björnsson stúdent frá Reykjavík minnist þar Islands; er hann gáfaður maður og vel máli farinn; og almennan fögnuð vakti fréttin um það, að óperusöngkonan, frú Guðmunda Elíasdóttir kæmi til Hnausa þenna áminsta dag til að skemta samkomugestum með sinni unaðsfögru rödd; heim- sókn hennar um bygðarlög vor í fyrrahaust var slík, að seint mun fyrnast yfir. Að áminstar samkomur verði á báðum stöðum fjöl- sóttar, má nokkurn veginn telja víst, ef byggja má á reynslu margra undanfarinnar ára. Það er engan veginn einhlítt að vera í sólskinsskapi þá tiltölulega fáu daga ársins, sem sérstaklega eru helgaðir Islandi, vorri tiginbornu tungu og öðrum dýrum menningar- erfðum; slíkt er á sína vísu falleg þjóðrækni, þó betur megi ef duga skal; vér verðum vinna að því sýknt og heilagt, að sem allra flest fólk af íslenzkum stofni, læri svo og skilji íslenzka tungu, að það skilji til hlítar hyldýpi þeirrar fegurðar, sem býr í lagi og ljóði eins og Ó, Guð vors lands, og fari ekki á mis við þá ómælisfegurð, sem liggur til grund- vallar sálminum Alt eins og blómstrið eina, sem að líkindum er eitt allra undursamlegasta helgiljóðið, er ort hefir verið á þessari jörð. Herör þarf að vera skorin upp og skal verða skorin upp, til að fyrirbyggja það slys, að tunga vor og rætur hennar visni hér upp og deyi; slíkt yrði oss til lítillar mannsæmdar, ef vér legðum árar í bát við vaxandi ágjafir í stað þess að brynjast til átaks með sigurvon og sigurvissu í huga. Þjóðernisbarátta vor dag út og dag inn, verður ávalt og á öllum tímum að vera jákvæð hugsjónastefna, ósýkt af afkvistunarsöngli, uppgjöf og lítilmensku. ☆ ☆ ☆ ☆ Alf í grænum sjó Sálarástand íhaldsflokksins í British Columbia, eins og raunar svo víða annars staðar, hefir verið næsta bágborið upp á síðkastið, handapat og fálm og tilgangslausar rysking- ar um metorð og völd. Ekki alls fyrir löngu héldu íhaldsmenn í áminstu strandfylki vestur við hafið ársþing sitt í bænum Vernon, er endaði með skelfingu og svipmerkt var af gráti og gnístran tanna. Nafnforingi flokksins í fylkinu, Mr. Finlayson, sem ekki á sæti á fylkisþingi, veittist þunglega að Mr. Drew þjóðleiðtoga flokksins og kendi honum allar þær mein- semdir, er þjáð hefðu flokkinn frá þeim tíma, er Mr. R. B. Bennett lét af forustu hans; að loknum löngum og ströngum umræðum, lýsti fundurinn vantrausti á Mr. Drew með allmiklu afli atkvæða. Sambandsþingmenn flokksins frá British Columbia, þeir Green, Pearkes og Fulton, vörðu Mr. Drew með oddi og egg, en alt kom fyrir ekki. Að þessu sinni hafði Mr. Finlayson sitt fram, þó engan veginn sé ólíklegt að slíkt verði einungis skammgóður vermir. Að loknum síðustu fylkiskosningum vestur þar, tók sæti í þinginu einn íhaldsþingmaður, er fundið mun hafa þungt til einstæðingsskapar síns, þótt lítt léti hann það uppi; en svo fengu átökin í Vernon á hann, að hann sagði sig úr flokknum og kvaðst aldrei framar stíga mundu fæti þar inn fyrir dyr. Rabbað við veiðimenn Fyrsti laxveiðidagur stanga- veiðimannanna var í gær. •— Veðurfar og vatn mun vera með bezta móti. Stórstreymt er um þessar mundir (stærstur straum- ur í dag. Veiðiskilyrði ætti því að vera ágæt ef lax gengur næstu daga í árnar, sem fyrstar eru til. ■» I Elliðaánum fengust alls 3 laxar, 8 pd. 10 Vi pd. og 11% pd. Fyrsti fiskurinn veiddist í foss- inum. Lítið sást til laxa í ánni fyrst um morguninn. en er leið á daginn, urðu menn varir við tals verða hreyfingu. Aðeins 2 laxar voru komnir í kistuna. í Norðurá fengust alls 4 laxar, þyngd þeirra mun hafa verið 8 pd. 11 pd. og 13 pd. Aðeins einn af þessum fiskum var veiddur á flugu. Þrátt fyrir að menn urðu svona vel varir, sáu veiðimenn mjög lítið af fiski við Laxfoss. I Laxá í Kjós veiddist enginn lax og ekki urðu veiðimenn var- ir við hreyfingu þar. Laxá er oft dálítið, seinni til en þær tvær fyrrnefndu, svo þetta getur allt verið eðlilegt og laxinn birtist eflaust eftir nokkra daga. Aðeins 8 eða 9 laxar voru komnir á land hjá netabændum í Borgarfirði í fyrradag, en bú- ast má við að veiðin aukist í strauminn. Það, sem ég sagði um ferðir fólks við Elliðaárnar og umhverf ið þar, hafa sumir Elliðaárveiði- menn tekið heldur óstinnt upp. Þeir segjast vera langþreyttir á þeim truflunum, sem æfinlega séu við árnar um laxveiðitímann og ekki sé rétt að vera að hvetja fólk þangað. — Varla gat rabb mitt skilist á þann veg, en það er staðreynd, að inn að ám koma alltaf margir. Það er að vísu rétt, að margir ganga þar nokk- uð harkalega um og styggja þá oft fyrir veiðimönnunum, en venjulega er það af ókunnug- leika og auðvelt að fá fólk til að fara varlega. Sannleikurinn er sá, að veiði- mennirnir sjálfir, þeir sem koma af forvitni en eiga ekki veiðidag, eru snöggtum verri viðureignar. Þeir eru oft hreinasta plága á þeim sem eru að veiða, sérstak- lega á neðri áni og þegar lax er tregur. Venjulega er þetta ein- tóm hjálpsemi og áhugi fyrir að viðkomandi fái eitthvað, en verð ur þó flestum hvimleitt. Svo langt hefur þetta gengið á stund um, að hjálparmaðurinn hefur horfið með stöngina eitthvað út í buskann um langa stund, en veiðimaðurinn setið eftir með sárt ennið. Gamansögu hef ég heýrt af veiðimanni, sem átti að hafa beð ið árvörðinn fyrir boð til eins hjálparmannsins um að skila stönginni til sín að loknum veiði degi, því sjálfur væri hann far- inn heim. Að sjálfsögðu er ekkert at- hugavert við að menn líti inn- eftir til að sjá hvernig veiðin gengur, en bezt mun vera að lofa þeim, sem eru að veiða, að fara að öllu eftir sínu höfði. Einn er sá maður, er stundar veiði á annann hátt en allir aðr- ir. Þegar stangaveiðimennirnir sitja um laxinn, sem gengur upp árnar, þá situr hann um laxinn, sem gengur niður. Hjá venju- legum veiðimönnum miðast allt við það sem fer upp, en hann leggur einskonar aflangan net- poka og lætur opið vita upp í strauminn, svo hans fiskar, eða POLIO ■■■■ i; v.i.Lv.1» THIf SPACC CONTRIBUTKD DREWRYS MANITOIA OIVItlON WESTERN CANADA BREWERIES l I M I T I D ættum við að segja síli, ganga afturábak í netið. Flest snýr sem sagt öfugt hjá þessum veiði- manni, ef miðað er við okkur hina, nema ekki hefur orðið vart við að hann aki Jeppanum aftur- ábak að ánni, þegar hann vitjar um. Þessi náungi er góðkunningi margra stangaveiðimanna og stundar sitt ágæta starf í kyrr- þei, en heitir annars Einar og er starfsmaður hjá Veiðimálaskrif- stofunni. Aðallögn sína hefur hann haft í Korpu undanfarin ár og veitt og merkt þar fjölda lax- og sil- Framhald á bls. 5 Með innilegum kveðjum í tilefni af íslendingadeginum 2. ágúst 1954. Use Easton’s Cash and Carry for Fast Service or Phone 59-6304 EASTON'S CLEANERS & DYERS 173 McGregor St. Winnipeg Minnumst sameiginlegra erfða á Íslendingadeginum á Gimli, 2. ágúst 1954 ★ PioUtSie Bring your Pictures, Photos, Paintings, Petit Point, Cross Stitch and all framing framing problems to . . . LITTLE GALLERY, where expert consultants, designers and framers with over fifty years of know-how and ability can save you 20% to 40%; assure you of the correct selection and prove it by results. Pictures should be framed correctly. LITTLE GALLERY 396 Noíre Dame Ave. Winnipeg, Man. HEADQUARTERS FOR FRAMING I Conqrahilations . . . to the lcelandic People on the Occasion of the 65th Anniversary of their Annual Celebration Day | at Gimli, August 2nd, 1954. ☆ Our lcelandic citizens are noted for their strong civic pride and have played a very real part in the development of Canada. ☆ This announcement is sponsored, hy WESTERN PUBLISHERS L I M I T E D Publishers of "WINNIPEG AND WESTERN GROCER" also "WESTERN MOTOR TRANSPORTATION" Winnipeg Canada 'iiai!!!B!il!BIII!B!!liailllHI!!iail!!HII>!BI!!H!!na!!!IH»ia!IIIBIIIIHIH!l!IH!l!iani!HI!!ia!l!IH!l!!B!!IIH!l!iailllH!l!IH!! CONGRATULATIONS to the lcelandic People on the / Occasion of the 65th Anniversary of their Annual Celebration Day at Gimli, August 2nd, 1954. From Your Neighborhood Theatres THE AIRPORT DRIVE-IN Ellice Ave. (near Airfield) THEROSE - THE WONDERLAND THE ARLINGTON AND MACS

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.