Lögberg - 29.07.1954, Blaðsíða 13

Lögberg - 29.07.1954, Blaðsíða 13
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 29. JÚLÍ, 1954 13 Ásmundur Guðmundsson Framhald af bls. 9 sonar, Haralds Níelssonar og Eiríks Briem. Setið var beggja megin í kennslustofunni, og var ekki laust við að nokkur keppni v®ri milli gamla landsins götu- megin og nýju álfunnar út að garðinum. Við vorum svo ó- heppnir eða heppnir, að ekkert virtist vera um skáld í okkar hóp Sem þeirri gáfu beitti, en milli okkar fauk oft í ýmsum bókstafa þrautum og öðrum andans skyl- mingum. En þá bar meira á öðru hjá þessum skólafélaga, sem nú er heiðursgestur okkar í kvöld, og það var hin djúpa alvara bak við glaðværðina, hin heita trú hans °g óbilandi áhugi á að vinna Verk sitt vel og koma einhverju «1 leiðar fyrir kirkju Krists vor á meðal. Mér fannst það bein- h'nis athygli vert, og skildi það þó vafalaust ekki eins vel þá og síðar. Hér var kominn í okkar hóp efni í ofsamann, ofstækis- mann, fanatískan mann í þágu þess málefni, sem hann fann sig kallaðan til. Her var mikið prestsefni kom- ið í Prestaskólann, og mikið efni í leiðtoga í málefnum kirkjunn- ar. Prestsstarfi próf. Ásmundar kynntist ég ekki af eigin raun, hvorki vestan hafs né austan, en prédikanir hans — sem óneitan- lega eru einn megin þáttur þess starfs — þekki ég vel og þið öll, ef þið hafið kært ykkur um það. Og án þess að fara hér að gerast prófdómari yfir honum, vil ég segja það, að þær bera prests- hæfileikum hans fagurt vitni, ekki aðeins um mnihald, stíl og mælsku, heldur og um einlægni, dýpt og heita trú, sem jafnan skiptir mestu. En hitt hefir þá ekki síður komið fram, hvílíkur leiðtogi og WEILLER & WILLIAMS CO. LTD. UNION STOCK YARDS St. Boniface, Man. Vér grípum þetta tækifæri til að flytja hinum íslenzku viðskiptamönnmn vorum hugheilar hátíðakveðjur. Við þökkum við- skiptin á undangegnum árum og væntum þess að geta veitt ykkur greiða og góða afgreiðslu í framtíð. Hafið hugfast, að vér veitum smáum gripasendingum nákvæm- lega sömu skil og þeim, sem stærri eru. WILLIAM J. McGOUGAN, Manager QUeát&ijfield etíauie Specialists in Upholstered Furniture Since 1927 • Recovering & Reupholstering • Made-to-Order Furniture • Repairs • Drapes • Refinishing • Slip Covers • Cleaning • Nooks Phone 3-3362 L 639 PORTAGE AVE. WINNIPEG, MAN. HAMINGJUÓSKIR til íslendinga í tilefni af 65. þjóðminningardegi þeirra ó Gimli, Man., 2. ógúst 1954 CENTRAL BAKERY gimli manitoba CONGRATULATIONS to the lcelandic People on the Occasion of the 65th Anniversory of their Annual Celebration Day at Gimli, August 2nd, 1954. VICTOR BARBER SHOP 687 Sargent Ave. WINNIPEG, Man. vegsögumaður hann hefur orðið á sínu sviði. Auðvitað hefir honum farið, eins og flestum miklum áhrifa- mönnum og leiðtogum, að öldur hafa á honum brotnað og straum ar á honum klofnað. í því efni hefi ég ekki átt með honum sam leið, og tel ég það galla á mér en ekki honum. Hann hefir haldið sitt strik, það má hann eiga, hald ið sitt strik, eins og hann hefir talið rétt að láta horfa. Hversu sem hann hefir viljað vera fús til samvinni og samhugar, hversu sem hann hefir viljað látá hvern mann njóta sannmæl- is, hversu sem hann hefir viljað virða annarra skoðanir og dæma hlutlaust, þá hefir hann haldið sitt strik. Hann hefir án nokkurs undansláttar viljað fara eftir heilræði Matthíasar: Haf Guðs orð fyrir leiðarstein í stafni, og stýrðu síðan beint, í Jesú nafni, á himins hlið. Þessu striki hefir hann haldið með öllum sínum einbeitta vilja, ósveigjanlegu sannfær- ingu, hvössu gáfum, og hvergi vikið út af viljandi. En eins og menn vita, þá sýn- ist mönnunum oft sitt hverjum, bæði um það, hvar himins hlið er, og hvernig lesa beri Guðs orð og þá skerst í odda milli þeirra manna, sem eiga hinn sterka vilja og hina öruggu sannfær- ingu: Og þá geta dómarnir um þennan mann, eins og aðra mikla forustumenn, orðið svo sundurleitir, að mér og ýmsum öðrum mundangsmönnum getur ofboðið. En ég segi það alveg satt, að ég dáist að ofsamönnunum, þeg- ar þeir eru það af skynsemd og velvild, í hvora áttina, sem þeir vilja halda. Ég sé í þessu ein- hvérn spámannsins móð, ein- hvern glóandi kerúgsins altaris- stein, sem gefur orð að mæla og lífinu salt og annað krydd. Og eftir allt er stríðið líf og lífið stríð. ☆ Þessi ræða mín fer að verða of löng. En hvað skal segja, þegar umtalsefnið er stórt? Mér finnst ég í raun og veru eiga flest eftir, sem ég vildi sagt hafa, en hugga mig við að aðrir muni hér um bæta, og tala um preststarf hans vestan hafs og austan, kennslu hans í háskólanum, kennslu hans utan háskólans og skóla- stjórn, um hinn mikla íslenzku- mann, um formann og drifkraft Prestafélags íslands o. s. frv. En einu get ég ekki alveg sleppt, því að það er í raun og veru það, sem ég hefði viljað tala um hér, og það, sem fyrst og fremst hefir mótað mynd mína af heiðursgestinum, er það er maðurinn Ásmundur Guðmunds son, sem ég hefi nú verið með og starfað með, meira og minna, upp undir hálfa öld. En þar vandast málið, því að þótt ekk- ert sé til stærra en mótaður per- sónuleiki, ekkert betra en góður vinur og ekkert áhrifameira en mikilhæfur og ljúfur samferða- maður á lífsleiðinni og sam- starfsmaður í ævistarfinu — þá er ekkert til, sem erfiðara er að lýsa með orðum en einmitt þetta. Ég bregð því á léttara hjal, og byrja á þvi, að lýsa viðbufða- litlu ferðalagi, sem við áttum saman á ungdómsárunum. Þetta var að vísu langt ferðalag, alla leið vestur í miðja Ameríku. Ferðalög eru sérstaklega vel -fallin til kynningar. Þau ein- rfngra tvo eða örfáa menn frá öllum öðrum, slíta þá úr venju- legu umhverfi, sópa öllum hvers dagsins umbúðum af, daglegum störfum og áhyggjum. Þarna sá ég Ásmund Guð- mundsson eiginlega fyrst í út- flytjendahópnum sumarið 1912, undir forustu okkar ágæta Am- eríku-agents B. B. Olson.----- Á öðru ferðalagi kynntumst við þó enn betur ,þá orðnir full- orðnir menn, um fimmtugt. Það var á margra mánaða ferðalagi okkar um Landið helga. Ég ætla ekki að lýsa því sumri, svo barmafullt er það af alls konar endurminningum og áhrifum. Og þá sá ég skýrar en nokkru sinni fyrr marga af mannkostum Ásmundar Guðmundssonar. Tveir einir í hersetnu landi, með morð og sprengingar daglega á götum úti, í opinberum bygg- ingum, strætisvögnum og hvar sem var, en jafnframt landi, sem átti hjarta okkar allt löngu fyrir ,fram og uppfyllti þó allar vonir okkar og bætti miklu við. Hér var tækifæri til þess að kynnast ferðafélaga, sem óhætt var að treysta út í yztu æsar, hvað sem fyrir kom, og á hverju sem gengi. Þessa mynd af heiðursgestin- um okkar á enginn nema ég og með hana 1 huga mínum vil ég enda þessi orð. Guð og gæfan fylgi honum. Ég yrði ánægður, ef þér vild- uð nefna einhvern sérstakan dag sem þér ætlið að greiða mér skuldina, sagði lánardrottinn. — Já, alveg sjálfsagt, svaraði skuldunauturinn; — hvernig lýzt yður á dómsdag; en þann dag verðið þér líklegast dálítið upptekinn; — þá segjum við bara daginn eftir dómsdag! ☆ Hún: — Svei mér, ef ég held ekki að ég sé ekki ég sjálf í kvöld! Hann: — Við ættum þá að geta skemmt okkur vel!! Kirkjuriiið HAMINGJUÓSKIR til íslendinga \ tilefni af 65. þjóðminningardegi þeirra ó Gimli, Man., 2. ógúst 1954 Minnumst sameiginlegra erfða á Islendingadeginum á Gimli, 2. ágúst 1954. GIMLI MOTORS LIMITED ver/.lar me8 Chevrolet, Pontiac, Buick og Oldsmobile bifreiðar og Chevrolet og G.M.C. vörubifreiðar. IAllar tegundir af akuryrkjuverkfærum ALLIS-CHALMERS TIP TOP MEATS & FROZEN FOOD LOCKERS PHONE 101 GIMLI. MAN. CONGRATULATIONS to the lcelandic People on the Occasion of the 65th Anniversary of their Annual Celebration Day at Gimli, August 2nd, 1954. | I j OFFICE SPECIALTY MFG. CO. LIMITED 358 Donald Street Tel. Nos. 93-4712 93-5364 “We make everything we sell and guarantee what we make.” Fljót afgrelðsla, vingjarnlegt viðmót GIMLI MOTORS LTD. O. T. KRISTJANSON, forstjóri Centre Street Sími 23 GIMLI, Man. Compliments of . . . i COWIN & CO. j LIMITED I Reinforced Concrete Engineers Structural Engineers i ( Telephone 74-2581 i j 1137 PACIFIC AVE. WINNIPEG, MAN.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.