Lögberg - 01.08.1957, Síða 1
70. ÁRGANGUR »*• • í WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 1. ÁGÚST 1957 S 1 • f 1 t 1 / 1 I I j: NÚMER 31 og 32
Mmning rrum nerianna sarnar Dusunaum a isi lendi ingadaginn
Fréttir frá ríkis-
i
úfvarpi íslands
— 5. JÖLÍ —
Fjöldi skipa hefir tilkynnt
komu sína til Siglufjarðar
með góðan afla, sum með
ágætan. Sum skipin biðu
kvölds á miðunum, þótt þau
fengju veiði í fyrri nótt og
gærmorgun.
☆
Hvíldarheimili það fyrir
mæður með börn, sem Mæðra
styrksnefndin í Reykjavík
hefir átt í smíðum undan-
farin ár við Reykjahlíð í Mos-
fellssveit ,tekur til starfa á
morgun. — Ahenti Auður
Auðuns, forseti bæjarstjórnar
Reykjavíkur og formaður
byggingarnefndar heimilið
formlega, en Guðrún Péturs-
dóttir, formaður nefndarinn-
ar veitti því móttöku. Húsið,
sem er nær 400 fermetrar að
flatarmáli, hefur Mæðra-
styrksnefnd byggt fyrir 976
þúsund krónur, mestmegnis
fé, sem nefndin hefur safnað
á Mæðradaginn. Reykjavíkur-
bær lagði fram 200 þúsund
krónur til heimilisins. Þarna
geta dvalizt í senn tólf mæður
með ein fimmtíu börn. Til að
byrja með takmarkast dvalar-
tíminn við þrjár vikur í senn.
Forstöðukona heimilisins er
Jónína Guðmundsdóttir.
☆
6. JÚLÍ
Geysimikil síldveiði er
nyrðra. A rúmum sólarhring,
frá kl. 16 í gær til kl. 18.30 í
dag, komu 112 skip til Siglu-
fjarðar með um 56 þúsund
mál í bræðslu auk allmikillar
STEFAN HANSEN, B.A., F.F.A.
Flytur ræSu fyrir minni Canada
á Gimli.
MABYLYN MAGNÍtSSON
Hirðmey
Dóttir frú Ellenon Magnússon og
látins manns hennar Franks B.
Magnússonar.
síldar til söltunar. Saltað var
mjög víða á Siglufirði.
☆
Önnur vörusýning Kaup-
stefnunnar í Reykjavík var
opnuð með athöfn í Austur-
bæjarbíó í Reykjavík í dag.
Meðal gesta voru forseti Is-
lands og forsætisráðherra,
ræður fluttu viðskiptamála-
ráðherra íslands, borgarstjór-
inn í Reykjavík, formaður
verzlunarráðs, og fulltrúar
þeirra landa, sem sýna vör-
urnar, en þau eru Tékkósló-
vakía, Austur-Þýzkaland og
Rúmenía. Að lokinni setning-
arathöfn skoðuðu gestir sýn-
inguna, sem er í porti Austur-
bæjarbarnaskólans og hefir
verið byggt yfir það á einum
mánuði af því tilefni. Tékk-
neska sýningardeildin er lang-
stærst. Sýningin er öll hin
fjölbreytilegasta.
EHIC STEFÁNSON
Forseti íslendingadagsins á Gimli
5. ágúst.
MARGRÉT IIELGA SCRIBNER
Hringur frá Siglufirði með
3,377 mál og tunnur, — fjögur
skip höfðu yfir 3,000 mál og
tunnur, og 20 milli 2,000 og
3,000 mál og tunnur.
☆
Mikil hátíðahöld voru í gær
að Hólum í Hjaltadal í tilefni
af 75 ára afmæli bændaskól-
ans. Mannfjöldi var þar mjög
mikill og veður eins gott og
framast varð á kosið. Hófst
hátíðin með guðsþjónustu. —
Hermann Jónasson forsætis-
og landbúnaðarráðherra hélt
ræðu og rakti hversu sér-
menntun bænda hefði stöðugt
orðið meira nauðsynjamál
hér á landi. — Gísli Magnús-
son í Eyhildarholti minntist
látinna skólastjóra. — Páll
'Zóphóníasson, fyrrum búnað-
armálastjóri og skólastjóri á
Hólum, sagði frá námsárum
sínum í skólanum og afhenti
skólanum málverk að gjöf frá
sér og konu sinni, — og Stein-
grímur Steinþórsson búnaðar-
málastjóri sagði frá því
hversu Skagfirðingar stofn-
uðu búnaðarskóla á Hólum
árið, sem ekki kom sumar á
Norðurlandi.
Fró Budapest
Ordass biskup flutti útvarp
frá Budapest, á ensku, þýzku,-
sænsku og ungversku: „Við
oss blasir mikill missir í söfn-
uðum vorum, og margar fjöl-
skyldur hafa misst fyrirvinnu
sína. Marga særða skortir
meðul, og mikið tjón er orðið
á húsum vorum og öðrum
jarðneskum eignum- Vér
biðjum yður í nafni Krists:
Hjálpið oss. Vér viljum gjöra
allt, sem í voru valdi stendur,
til þess að kirkja vor geti orð-
ið til hjálpar þeim, sem þjást
allt umhverfis oss. Guð blessi
yður öll. Oss langar ekki til að
taka þátt í stjórnmálunum.
Vér þráum einungis frelsi
vort. Eftir því sækjumst vér,
enda þótt vér verðum skotnir
fyrir það á morgun.“
Heimsækið Betel!
Forstöðukona Betel á Gimli,
býður öllum þeim, er íslend-
ingadaginn sækja, að heilsa
upp á ættingja og vini í hinni
vönduðu og fögru, nýju bygg-
ingu, sem fyrir nokkru hefir
verið tekin í notkun; viðgerð
og endurnýjun gömlu bygg-
ingarinnar er nú hafin, og er
nefndinni það brennandi á-
hugamál, að fjárhagsstuðning-
ur af hálfu almennings gangi
eins greitt og framast má
verða!
Fjallkona IslcndiiiKadagslns FRÚ
8. JÚLÍ
S.l. laugardag á miðnætti
var síldaraflinn samanlagt
206,971 mál og tunnur, — þar
af saltað 11,130 tunnur upp-
mældar. Vitað var um 202
skip, sem höfðu fengið ein-
hvern afla, og 144 þeirra
höfðu fengið 500 mál og
tunnur samanlagt eða meira.
Aflahæsta skipið var þá
Séra BENJAMIN KRISTJANSSON
prestur Grundarþinga I EyjatirSi
Mælir fyrir minni Islands á Gimli
EIjAINE IjIIjIJAN sciubner
Hirðmey
Dðttir F. E. Scribners læknis og
frú Margrétar Helgu Scribners.