Kirkjublaðið - 01.09.1891, Side 3
36
11. Eru safnaðarfundir vel sóttir?
12. Er hjer nokkur sjerstakur fjelagsskapur til að efia
menntun og siðgæði, svo sem lestrarfjelög, bindindis-
fjelög, sunnudagaskóli eða annað þess háttar?
13. Er hjúskapnum í heiðri haldið?
14. Tíðkast það hjer, að ógipt fólk búi saman sem hjón
eða lauslæti og hneykslanlegt athæfi á annan hátt?
15. Tíðkast hjer svall eða drykkjuskapur einkum á helg-
um dögum eða ónauðsynleg helgidagavinna?
16. Eru í þessari sókn nokkur brögð að deilum, fiokka-
dráttum, vantrú, guðleysi, villukenningum eða öðru
þess háttar?
II. Spurningar til safnaðarins:
1. Sýnir presturinn áhuga og skyldurækni í embætti sínu
yfir höfuð?
2. Rækir hann messugjörðir vel og reglulega?
3. Er tekið til embættis á ákveðnum tíma?
4. Rækir hann barnauppfræðinguna kostgæfilega ?
5. Spyr hann börn við kirkju, á hverjum tíma árs og
hve lengi ársins ?
6. Vitjar hann sjúkra tregðulaust, tilkvaddur eða ótil-
kvaddur ?
7. Sýnir hann við skírn og kvöldmáltíð lotningu fyrir
sakramentunum ?
8. Kemur hann tregðulaust til að skíra börn í heima-
húsum þegar þess þarf?
9. Húsvitjar prestur rækilega á hverju ári í allri sókn-
inni ?
10. Heldur hann reglulega safnaðarfundi á ári hverju?
11. Er prestur með kenningu, dagfari og orðræðu sinni
söfnuðinum til fyrirmyndar og upphvatningar í öllu
kristilegu líferni?
12. Lætur hann sjer annt um gott uppfóstur og upp-
fræðslu fátækra barna?
13. Líður hann umtalslaust nokkurt hneyksli, ef slfkt kem-
ur fyrir í söfnuðinum?
14. Er nokkur sjerlegur löstur eða brestur í fari hans,