Kirkjublaðið - 01.09.1891, Side 8
40
84. Loílð vorn Drottin, hinn líknsama föður á hæhum.
35. Hve gott og fagurt og inndælt er.
36. Heyr börn þín, Gni) faðir, sem biðja þig nú.
37. Ó, minn Guð, jeg illa breytti.
38. Upp, gleðjist allir, gleðjist þjer.
89. I dag er glatt í döprum hjörtum.
40. Hve sælt hvert hús, er sinna meðal gesta.
41. Inndælan, blíðan.
42. Nú litlu vakna blómin og litast um á grund.
43. Ljett var iðjan lítil börn.
44. Nú gjalla klukkur glöðum hreim,
45. Vor frelsari Jesús Kristur kær.
íslenzkt kristniboð (mission).
I kirkjublaði voru, 1. tölublaði, hafið þjer, herra rit-
stjóri, skýrt frá tillögu minni og undirtektum synodusar
á stofnun kristniboðs innra og ytra, sem jeg leyfi mjer
að gjöra eptirfylgjandi athugasemdir við:
Það er rjett, að hugmyndin var of stór og of ný
fyrir þann fjögra tíma fund, í fundarlok, en atkvæða vildi
jeg ekki leita eins og á stóð, en þeim aðal mótbárum,
sem fram komu verð jeg að neita, bæði fátæktinni og
áhugaleysinu. Jeg hafði tekið það fram, þótt stórt þætti,
»að einu heiðnu barni yrði komið í kristinna manna tölu«,
og þar sem Gfuð er sá, sem gjörir fátækan og ríkan,
þarf alls ekki að óttast fátæktina, þegar að hans þjón-
ustu er unnið, enda sýnir regla Good-Templara, að fá-
tækir Islendingar styrkja bindindismálið um allan heim;
en hvað áhugaleysi almennings snertir, skiptir þar að
eins ókunnugleik. Áhuginn hefir eigi verið vakinn, af
þvl, að þeir sem vekja áttu, eru of ókunnugir hinu ytra
kristniboði, en sem vott þess, að áhugi almennings að máli
þessu muni auðveldlega vakinn, sýnaundirtektirsjómanna
frá Faxaflóa 15. júní þ. á., þegar jeg á þiljum »Lauru«
kl- 3 e. m. hafði talað við þá um, að vinna Guði, með
þvi að skjóta saman til »ísl. kristniboðs« innra og ytra,
og sem jeg ætlaði að leggja fyrir synodus 4. júlí. Á
j