Kirkjublaðið - 01.01.1892, Side 1
mánaðarrit
handa íslenzkri alþýðn.
II.
REYKJAVÍK, JAN. 1892.
Nýársvers.
0, kom nú, kristinn skari,
að keppa fram í hulda tíð;
en með þjer merkið fari
og með þvú skaltu heyja stríð.
Þú mátt þitt merki kenna,
það merkið Jesús er;
þjer hæfir hvergi’ að renna,
er hann i broddi fer.
I Jesú náðarnafni
þitt nýár byrja þú;
hans náð þjer saman safni
til sín í hlýðni’ og trú.
B. II.
Við áramótin.
Kirkjublaðið er nú missirisgamalt, og leyfir sjer, til
hægðarauka, að telja þetta fyrsta missiri sem ár. Það
er nú sannað, að fyllsta þörf var á kirkjulegu málgagni,
því að blaðinu hefur rjett alstaðar verið tekið mæta vel,
og mjer er það bæði ljúft og skylt, að þakka sem bezt
hinum mörgu styrktarmönnum þess, nær og fjær, fyrir
samvinnuna þennan stutta tíma, sem af er. Starfið hefur
orðið mjer enn ánægjulegra við það, aðjeg hef við þessa
litlu byrjun kynnzt brjefiega svo mörgum góðum mönnum,
lærðum sem leikum, og endurnýjað fornan kunningsskap.
Vjer kynnumst vonandi enn betur á komandi ári.