Kirkjublaðið - 01.01.1892, Side 9

Kirkjublaðið - 01.01.1892, Side 9
9 leið. Fjallkonan lýsti ánægju sinni yfir því, að kirkju- fjelag vort hefði nú fengið sitt eigið blað, því að við það ljetti á henni. Allt til þessa hefði hún verið eina blaðið hjer á landi, sem flutt hefði ritgjörðir um kirkjuleg mál, nú gæti hún betur gefið sig að öðru, án þess að hún reyndar vildi lofa að ganga í bindindi með að ræða um kirkjuleg mál endur og sinnum. Það er með öðrum orðum : Sje um nokkurt kirkju- legt málgagn að ræða á landi hjer hinn níunda tug ald- arinnar, þá er það Fjallkonan. Kirkjutíðindin litu eigi áttunda tuginn fullan, og Kirkjublaðið byrjaði fyrst, þeg- ar missiri var liðið af hinum tíunda. Nú hefur Fjallkon- an fengið nokkra hvíld, en það segir sig sjálft, að skyldi Kirkjublaðið, einhverra orsaka vegna, verða skammlíft, tekur Fjallkonan aptur til óspilltra málanna, »kirkjulega málgagnið«. Gamninu fylgir eigi svo lítil alvara. Heitið er eigi svo ómaklegt, þegar litið er til þess, hve miklu rúmi Fjallkonan ver til þess að tala um kirkju og kristindóm, Jeg hef að eins fyrir mjer þetta síðasta ár, og það lætur nærri að eitthvað, og það eigi svo lítið, sje um slík efni í 4. hverju blaði. Heitið verður eigi síður maklegt, þeg- ar þess er gætt, hve fáar raddir hafa andmælt kenning- um Fjallkonunnar; hún hefur, eins og hún líka sjálf segir frá, að mestu ein haft orðið. Loks gæti það sjerstaklega og fremur öllu öðru rjettlætt heitið, að það hefur komið optar en einu sinni fyrir, að »prestur« greinir sig að vera höfund að því og því broti úr »Fjallkonu-kristindómn- um«; nú síðast í sumar, þar sem »prestur« er að gylla únitarakenning Kristofers Jansons. Pjetur heitinn biskup mótmælti því hjer um árið, að nafnlaus Fjallkonu-grein, sem eignuð var »einum merkasta presti landsins«, gæti verið eptir nokkurn prest, því að enginn íslenzkur prest- ur, hvað þá einn hinn merkasti, mundi »þannig vilja ó- virða sig og stjett sína og smána vora kristilegu þjóð- kirkju«. Þessi mótmæli biskupsins stóðu óhrakin, þar sem höfundurinn nafngreindi sig ekki. Með þvi er þó engan veginn sagt, að höfundurinn hafi ekki verið prestur. Það stóð varla til, að hann færi að nafngreina sig. Það er eins

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.