Kirkjublaðið - 01.03.1893, Síða 2

Kirkjublaðið - 01.03.1893, Síða 2
50 Nú er trúin byggð á bjargi; bifast aldrei getur það. Undan oss er Guðs son genginn Guði hjá að búa’ oss stað. í síns föður húsi á himnum hvíld oss býr er æfin dvín; til sín lætur börnin bera, býður þreyttum heim til sín. S. B. Biskupsembættiö. Biskupsembættið er elzta embætti lands vors, það er að kalla jatngamalt kristninni á íslandi. Á gullöld þjóð- ar vorrar þótti forfeðrum vorum svo mikils vert um vöxt og viðgang kristninnar á ættjörð sinni, að þeirreistu tvo biskupsstóla og lögðu til þeirra eignir sínar og óðul. Síð- an hafa setið á þessum biskupsstólum margir hinna ágæt- ustu íslands sona, er bæði hafa verið árvakrir verðir Guðs kristni og forkólfar margra nytsemdarverka hjá þjóð vorri. Til skamms tíma heflr og biskupembættið ís- lenzka verið augasteinn þjóðarinnar, hún hefir kannazt við það sem bein af sínurn beinum og hold af sínu holdi. Þetta vald, sem þjóðin sjálf hafði í öndverðu fengið í hendur beztu mönnum sínum var auðvitað þyrnir í aug- um hins útlenda valds, er spennti laud vort heljartökum á 16. og 17. öld. Síðan hefir hin erlenda stjórn sífellt reynt að draga það undir sig, og henni hefir tekizt það betur en skyldi. Þjóðin hefir samt sem áður haldið fornri tryggð við þetta embætti og elskað og virt biskupa sína, sem andlega feður og leiðtoga, og yflr kistu þess biskups vors, er síðast var borinn til grafar, var sagt: »Læri- faðir íslands er látinn«; orð, sein eflaust hafa verið töluð úr hug og hjarta hinnar islenzku þjóðar. Nú er talað um að afnema þetta embætti. Það á að verða samferða amtmannaembættunum, þessum embætt- um, sem dembt var upp á oss af einvöldum konungi á hinni mestu kúgunaröld, og sem þá stundum var sannkölj- uð reiðisvipa erlendrar áþjánar á þjóð vora og aldrei

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.