Kirkjublaðið - 01.03.1893, Síða 5
maður gettur unnnið kristilegri kirkju hjá oss mjög mikið
gagn. Hann á samkvæmt embættisskyldu sinni að sjá
um, að G-uðs heilaga orð sje kennt hreint og ómeingað, að
prestar gegni embætti sínu sómasamlega og aðhneykslis-
prestar ekki sitji í embættum, auk fleiri kirkjulegra starfa,
sem á honum hvíla. Frá þeirra sjónarmiði, sem láta sig
miklu skipta hina innri stjórn kirkjunnar og kristilegt trú-
ar- og kirkjulíf, hlýtur það því að vera mjög mikið áhorfs-
mál, hvort það sje heilladrjúgt fyrir kirkjuna að kippa
burtþessum æðsta tilsjónarmanni hennar, og slengja störf-
um hans saman við hin margbreyttu störf hins verzlega
umboðsvalds. Það dugar ekki að einblína á það, þótt
þessum vandamiklu störfum biskupsembættisins kunni
stundum að vera sljólega gegnt, eða þótt margt sje öðru-
vísi en á að vera í trúar- og kirkjulífinu — í þeim efnum
er jafnan hægt að finna sjer eitthvað til, enda jafnan
eitthvaðaðfinningarvert—heldurber miklu fremur að skoða
það grandgæfilega, hverjar afleiðingarnar mundu verða af
afnámi þessa embættis, hvort þeir, sem tækju við störf-
um þess væru líklegri til að gegna ‘þeim með meiri rök-
semd, alúð og samvizkusemi, en biskupar íslands hafa
hingað til almennt gjört. Er það t. a. m. líklegt, að lands-
böfðinginn, sem getur verið hverrar trúar sem vera vill,
hafi miklu meiri köllun til að láta sjer eins annt um
kristilegt trúar- og kirkjulíf hjá þjóðinni, kenningu Guðs
orðs, framferði prestanna, uppfræðing æskulýðsins o. s. frv.,
eins og biskup landsins, sem alloptast er einn hinn merk-
asti klerkur á landinu og hefir sjerstaklega helgað líf
sitt þjónustu kristilegrar kirkju, sem andlegur yfimaður
hennar. Hina verzlegu' valdstjórn vantar líka algerlega
þau skilyrði, sem útheimtast til að geta gegnt sumum em-
bættisskyldnm biskupsins. Hvernig á landshöfðingi t. d.
að skera úr því, hvort sú og sú kenning, sem kann að
koma upp meðal presta þjóðkirkjunnar, sje samkvæm
heilagri ritningu og trúarreglubókum lútersku kirkjunnar?
Landshöf ðinginn hefir auk alls þessa svo mörg og
margbreytt störf á hendi, að lítt er ábætandi, og sje of-
lilaðið störfum á það embætti, hvað er þá líklegra, en
þau störfin verði helzt út undan, sem liggja fjærst i verka-