Kirkjublaðið - 01.03.1893, Síða 13
61
öðru sjáum vjer yfirburði nýja testamentisins. Það er fyrst
Jesús Kristur, sem hefir bókstaflega leitt i ljós lífið og
ódauðleikann. Með trúnni á upprisu Krists og gjörvallri
kenningunni um upprisuna stendur og fellur allur kristin-
dómur. Þessi trú sýnir ein guðdóm endurlausnara vors
og hefur kristindóminn langt upp yfir öll önnur trúar-
brögð; svo háleit og huggunarrík er hún fyrir sál manns-
ins.
Dýrðleg og gleðirík er þessi hátíð, kristnu bræður
og systur; fögnum henni, vinir, og verum glaðir í Guði;
fögnum vorum upprisna frelsara og rísum upp með
honum sjálfir, risum upp af andlegum svefni og kæru-
leysi um guðlega hluti og trúariunar heilögu mál-
efni, rísum upp af syndaspillingu vorri og lifum nýju,
Guði helguðu lífi, í siðbót og sönnum kærleika. Sýn-
um trú vora á Guð og elsku vora til endurlausnar-
ans með góðri breytni samkvæmt Jesú dýrðar dæmi. Ef
vjer gjörum þetta, þá höldum vjer sanna páskahátið eigi
að eins hið ytra, heldur einnig hið innra, þá getum vjer
fagnað í Guði og haldið í sannleika gleðihátíð, eins og þess-
ir dagar líka eiga að vera, og hin likamlega og ytri
gleðin, sem ávallt er eðlilegur samfari hinnar andlegu og
innri gleði, hlýtur þá að hafa sín góðu áhrif á huga vorn;
hún er þá eigi einungis saklaus, heldur líka helg, því að
hún helgast af hátíðarlifi þvi, sem býr í hjartanu, fullu
af lotningu og aðdáun fyrir Guðs dásemdum, og hrifnu af
þakklæti við hinn eilífa höfund lífsins og ljóssins. Sá
sem rís upp með Kristi, þegar í þessu lifi, með endurnýj-
ungu líf'ernisins, getur átt von á góðri upprisu fyrir lik-
ama sinn á vormorgni eilífðarinnar, þegar lieilagur andi
vekur allt hold til lífs; hann, sem árlega fyrir augum vor-
um vekur fræið og fluguna upp úr freðinni moldinni og
kallar allt fram í lífið og tilveruna. Gleðjum oss þá öll
i Guði og Guðs nafni, kæru systkin, á þessari fagnaðar-
og sigurhátíð kristilegrar kirkju. En þú vor himneski
faðir, gef þú oss öllum náð til að mega við daganna enda-
takmark fagna lífsins sönnu upprisu og eilífri páskahátið
í þínu dýrðarríki. Heyr vorar bænir í Jesú nafni. Amen.
-38©