Kirkjublaðið - 01.08.1893, Page 9
137
eptir því sem hann leyfir oss, og eigum að verja því öllu
eptir hans vilja og boðum, en ekki eptir eigin geðþótta í
þjónustu vorra holdlegu fýsna. Hann innibindur það allt
í orðinu daglegt brauð, til þess að kenna oss nægjusemi
með það, sem er að eins til nauðþurftar.
Attunda boðorð: »Þú skalt eigi Ijúgvitni bera gegn
náunga þínum«. Þetta boðorð bannar oss alla lýgi og
fals í orðum, ómilda dóma um náunga vorn og allt sem
óvirðir eða skapraunar náunga vorum með orðum vorum.
Oss er svo hætt við, eins og .Jesús segir, að sjá flísina í
auga bróður vors, en gæta eigi að bjálkanum í voru eig-
in auga.
Jesús kennir oss að stinga hendinni í vorn eigin
barm og gæta þess, hve mjög vjer erum sakfallnir við
Guð og biðja í 5. bæninni: Faðir vor, »fyrirgef oss vorar
skuldir, svo sem vjer og fyrirgefum vorum skuldunautum«.
Með þessari bæn lætur hann oss sjálfa setja það skilyrði
fyrir bænheyrslu um fyrirgefniugu hjá föður vorum á
himnum fyrir sjálfa oss, að vjer fyrirgefum náunga vor-
um það sem hann brýtur á móti oss, svo að vjer eins og
sönn Guðs börn innrætum oss sáttfúst og umburðarlynt
hjarta, er færi alla hluti til betri vegar fyrir vorum
breysku bræðrum.
Niunda boðorð: »Þú skalt eigi girnast liús náunga
þins, og tíunda boðorð: »Þú skalt eigi girnast eiginkonu
náunga þíns; þjón, þernu, fjenað eða annað, sem hans
er«. Bæði þessi boðorð banna oss að láta hinar vondu
girndir fá vald yfir oss og vekja hjá oss öfund eða ásælni,
heldur skulum yjer vera ánægðir með það, sem Guð gef-
ur oss og unna náunganum þess, sem Guð gefur honum og
hjálpa honum til þess að hann haldi því. »Sjerhver
freistast dreginn og veiddur af sinni eigin girnd«, segir
post. Jakob (1, 14); með þessum orðum bendir hann oss
á, að það sjeu girndirnar innan frá sjálfum oss, sem freisti
vor, ogJesús segir (Mark. 7, 21—23): »Innan frá hugskoti
mannsins koma illar hugrenningar, hór, frillulífi, manndráp,
þjófnaður, ágirnd, illmennska, hrekkvisi, óstjórnlegt líferni,
öfund, lastmæli, drambsemi, heimska, allir þessir vondu hlut-
ir koma að innan og saurga manninn«. Af þessu verður