Kirkjublaðið - 02.04.1894, Blaðsíða 7

Kirkjublaðið - 02.04.1894, Blaðsíða 7
71 bæði athugavert og miður ákjósanlegt. Hinir eldri, karlar og konur, eru optlega síður en ekki samróma unga fólk- inu. Mjög víða kvarta þessir gömlu kirkjuvinir um, að þeir hafi haft fremur skaða en ábata á skiptunum; bæði segjast þeir sakna sinna gömlu sálmalaga, sem orðið og andinn frá æskudögum þeirra hafi búið i, og þó sje hitt sem út yfir taki: spilið, orgelið, því það — segja þeir — steli frá sjer ekki einungis söngnum, heldur og orðinu. Jeg þekki gamla menn, sem jafnan fylgdu tiðum í fvrri daga, en sem aldrei hafa til kirkju komið síðan orgelið kom hjer í kirkjuna. Einn af þeim sagði mjer hjer á dögunum, að hann gæti varla ógrátandi litið til guðshúss sins, siðan »þetta fargan« tók frá honum alla ánægju og uppbygging messunnar. Prestur minn, sem mjög ann hinum nýja söng, hefir sagt mjer, að hvar sem hann vitji sjúkra og fari með söng, spyrji hann fyrst að, hvort við- komandi kjósi heldur hið gamla eða hið nýja, og kveðst þá sjálfur syngja fyrir þá gömul vers undir gömlum lög- um. Hann syngur að vísu litið, sauðurinn, en þá kveðst hann mega til, þar fáir hinna yngri vilji þá byrja. Og hvi skyldu hinir yngri hneykslast á þessu ? Er maðurinn ekki mestan part vaninn, og er ekki flestum kærast það sem þeir ungir námu? Og er ekki flestum erfltt að læra gamlir nýja siði eða listir? Trú og tilfinning, náð Drott- ins og hjartans viðkvæmni er og ekki bundið við mann- legar reglur eða iþróttir. Þvi má og ekki neita, að verulegur kirkju- eða kórsöngur er orðið allt annað nú, síðan sá eiginlegi söfnuður er hættur að syngja, og söng- urinn er mest-allur í höndum unga fólksins. Hann er að fá eins og íþróttalegri en undir eins ókirkjulegri blæ. Opt er það líka, að söngmenn vantar og hljóðfærið er nálega eitt og allt, enda bætir þá ekki úr skák, ef spil- arinn er viðvaningur og hljóðfærið eptir því. En gjörum samt ráð fyrir, að þetta jafni sig; þeir gpmlu falla úr sögunni, en hinir yngri læra fleiri og fleiri góðan söng, og þegar þeir eldast, syngja þeir með. En þetta, sem hjer er bent á, gæti þó bent til þess, að vara þá við, sem allt vilja endurskapa, að vera varkárir í »reform-

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.