Kirkjublaðið - 02.04.1894, Blaðsíða 13
7?
Sjerstaklega er það þetta orðalag i siðari játníngunní
»Getinn af heilögum anda, fæddur af Maríu meyju«, þar
sem áður stóð »fæddur af heilögum anda og Maríu meyju«,
sem helzt hefir verið byggt á og mestdeiltum. Þessi orð
hiunar fornu játningar skilja þeir Harnacks-sinnar svo,
að hin elzta kirkja hafi talið Jósef föður Jesú, en að and-
anum til var hann Guðs son, Guðs anda fylling bjó í hon-
um fram yfir alla menn, hann heitir því í sjerlegum skiln-
iugi Guðs son, og í því felst hluttaka heilags anda við
fæðing hans. Til þess að fá þetta í samræmi við nýja
testamentið er gripið til hins vanalega gjörræðis, að stryka
yfiralit það í guðspjöllunum, lýsa það allt óekta og seinni
viðbót, þar sem beint er talað um, að hann var getinn
af heilögum anda og átti engan mannlegau föður.
Þessi nýja, en þó reyndar gamla vantrú, neitar beint
guðdómi Krists, fórnardauða hans og þrenningarlærdóm-
inum.
Svar hinna kristnu safnaða á kirkjulegum samkom-
um, smærri sem stærri, hefir að kalla alstaðar verið eitt
og hið sama, skýlaus mótmæli og eindregin fastheldni við
trú feðranna. Kristinn söfnuður spyr af helgum móði:
Hvað verður um vorn kristindóm án endurlausnara?
Hvernig getum vjer þá beðið til Jesú Krists? Hvað
verður uin vort jólahald og páskahelgi og alla vora guðs-
þjónustu? Slík alvarleg árás hefir orðið til mikillar trú-
arstyrkingar og almenningi hefir orðið það miklu ljósara
en áður, hvílíkur kjörgripur hin postullega trúarjátning er
í sínum gagnorða einfaldleik, sem herkuml kristinna
manna. En jafnframt hefir og þeirri spurningu veiið
hreift mjög alvarlega, hvort kristnir söfnuðir geti unað
því, að háskólakennarar ríkiskirkjunnar, sem svo langt
eru horfnir frá hinum kristilegu meginsannindum, haldi
áfram að búa menn undir prestsstöðu i söfnuðinum, og
sjá menn eðlilega, verði því eigi kippt í lag, eigi önnur
úrra'ði betri en þau, að iosa kirkjuna við yfirráð ríkis-
ins. Enn sem komið er gætir þó fríkirkjuhreifingarinn-
ar lítið.
Þetta er stutt mál um mikið efni, en prcstum sem
vilja kynna sjer þetta betur skal vísað til góðrar bókar,