Kirkjublaðið - 02.04.1894, Side 14
18
stuttrar en mjög efnismikillar, um hina postullegu^trúar-
játning, sem dr. Theodor Zahn í Erlangen hefir nýlega gefið
út í tilefni af deilunni, en sjálft rit hans er að minnstu
deilurit, en mjög svo fræðandi. Þessi dr. Zahn er viður-
kenndur að standa jafnfætis dr. Harnack hvað lærdóm
snertir, enda skilur þá eigi verulega um uppruna játn-
ingarinuar, en dr. Zahn stendur á grundvelli kristinnar trú-
ar. Ritið er nýþýtt á norsku1.
■----s/2/a------
Hvert fer þu?
NiOurlag ræSu á. 4. ad. eptir páska,
eptir Sigurð prófast Gunnarsson á Valþjófsstat).
Hvert fer þú? Hver er stefna þín í lííinu? Hvert mun vegur
sá leiða, er þú gengur á ? Er það nú víst, að þú sjert á þeim vegi,
sem leiðir heim til íöðurhúsanna ? Það má ætlast til þess af
þjónum Drottins, sálusorgurunum, að þeir leiði athygli þeirra, er
þeir vinna á meðal, að þessum spurningum. Það má einnig ætlast
til þess, að allir kristnir safnaðarmenn veki sjálíir upp fyrir sjer
þessar spurningar. Vegirnir eru svo margir, sem vjer sjáum
mennina ganga í þessum heimi, en ekki nema einn er rjettur,
vegurinn heim. Það eru svo mörg ljós, sem hirtast sjónum manna
í heiminum, en í sáluhjálplegum skilningi er ekki nema eitt hið
sanna ljós, ljósið af himnum, ljósið Jesús Kristur. Það eru svo
margir andar, sem hreifa sjer og tala í heiminum, sumir næsta
háværir, en í sáluhjáiplegum skilningi er það ekki nema einn andi,
sem er sannleikans andi, andi Jesú Krists, sem sannfærir heiminn
um syndina, rjettlætið og dóminn. Sá and.i talar engan fagurgala,
enga hræsni, hann særir og hann græðir, hann niðurlægir og hann
upphefur, hann sýnir þjer, hvað þú ert af náttúrunni veikur,
óstöðugur, ósjálfbjarga einkum hvað þitt andlega líf snertir, en á
hina hliðina sýnir hann þjer einnig, hvað kærleikur Guðs er mátt-
ugur, miskunnsemi hans óþrotleg, náð hans eilít', hann sýnir þjer,
þessi eini góði andi, hvað þú getur orðið sterkur með Guði, með
hans hjálp, hans leiðsögn, að þú í trúnni á hann getur unnið sig-
urinn yíir heiminum og komizt heim, heim til frelsara þíns.
Hvert fer þú? Sumir hafa efiaust einlægan vilja á að feta í
þau sporin, sem helgust hafa verið gengin á þessari jörðu. Þeirra
iöngun er að gjöra Guðs vilja. ’Þeir vanda orð sín, vanda verk
sín dags daglega; þeim er viðbjóður að sjá illt og ljótt athæíi,
þeim tekur sárt að heyra guðsorði hallmælt af þeim, sem þykir
1) Dr. Theodor Zahn: Det apostolske Symbol. — Th. Steen.
Kristiania 1893. Verð 1 kr. 50 a.