Kirkjublaðið - 01.07.1895, Page 7

Kirkjublaðið - 01.07.1895, Page 7
hún enn kvað vera, er eilífðarkenningin ekki jafn hugg- unarrík og hún annars gæti verið. Klerkur einn á vest- urströnd Jótlands jarðsöng í fyrra vetur flskimenn marga, er farizt höfðu í óveðri; lýsti hann þá svo átakanléga kvölum þeirra hinum megin, að eptirlifandi ættingjum lá við óviti. Kvað hann menn þessa hafa lifað svo illa að enginvonværi um náð og notaði það, auðvitað í bezta tilgangi, til að áminna þá, sem eptir lifðu. Ekki gazt kirkjustjórninni reyndar að þessari ræðu prests og fjekk hann áminningu, en foringi innra trúboðsins, sem mjög er hjer útbrcitt, hjelt yflr honum hlífiskildi og kvað hann hafa rjett gert. Að mínu áliti er útskúfunarkenningin sá blettur, sem kirkjan nauðsynlegast þarf að má út úr trúar- bókum sínum. Meðan hann stendur, svo svartur sem hann er, getur hún ekki áfellt trúna fyrir það tilveruleysi, sem hún liefir að bjóða. Mejra um sama efni frá útg. Svör uppá fríkirkjuspurningar sjera Vaidimars, Allir menn verða að vera samdóma um það, að kirkjuliflð sje fjörugra og framkvæmdarsamara í frikirkj- unum en i rikiskirkjunum. Tíl þess að sannfærast um framför trúarlífsins og áhugans í fríkirkjunum þarf eigi annað en líta á afleiðingar fríkirkjufyrirkomulagsins í Ameríku, og verður þá naumast annað sagt en þær sjeu hmar glæsilegustu og gleðirikustu. í því landi þar sem uh tillög eru frjáls, leggja menn svo mikið fje til kristi- ^egra augnamiða og fyrirtækja að undrum sætir. Kirkju- hyg'gingar, biflíufjelög, kristniboð, sunnudagaskólar, smá- iitaútgáfur 0g. kirkjutímarit Bandamanna í Vesturheimi er aht nafnfrægt um víða veröld, og sýnir liið dáðríka líf i landinu, er annarstaðar finnast eigi dæmi til. Einnig skara frikirkjurnar í Evrópu t. a. m. »frjálsa kirkjan« í >Sviss og »frálausa kirkjan« á Skotlandi í mörgu fram úr öörum kirkjufjclögum Norðurálfunnar. Fríkirkja er kirkjufjelagið kallað, þegar það er með öllu óháð afskiptum ríkisins og stendur alveg á sama Stigi gagnvart ríkisvaldinu, sem hvert annað einstaklinga-

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.